Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

31. janúar 2007 klukkan 17:49
Jæja ég er búin að ná mér niður eftir gærkvöldið. Datt í hug að setja hérna inn smá upplýsingar fyrir ykkur sem eruð að byrja hvað mér finnst nauðsynlegt að eiga til á "lager"

q       Ísskápurinn: Fjölbreytt úrval ávaxta og grænmetis. Fjörmjólk, létt AB mjólk, undanrenna, kotasæla, viðbit, ostur, skyr, sýrður rjómi, létt-vanillujógúrt, egg, léttmajones
q       Frystirinn: Rækjur, ber, fiskur, kjúlli og kjöt.
q       Búrskápnrinn: Niðursoðnir tómatar, svartur pipar, herbamare-jurtasalt, allskonar krydd, kraftur, sætuefni í fljótandi formi, kakó 100%, , undanrennuduft, allskonar bragðefni, allskonar olíur, morgunkorn, túnfiskur.

Allt sem segja þarf!!!!!!!

31. janúar 2007 klukkan 04:16
Púff..........ég er í skýjunum, hér koma nokkrar staðreyndir:
Námskeið vigtarráðgjafana byrjaði 5. sept ´06 þá var ég
87,6 kg.
Námskeiði vigtarráðgjafanna lauk 5. des ´06 þá var ég
77,9 kg.
Námskeið vigtarráðgjafanna byrjaði að nýju í dag 30. jan og er ég
74,8 kg.


Mér finnst þetta sanna það (fyrir mér) að lífsstílsbreytingin er komin til að vera.........ég get ekki komið því í orð hvernig mér líður, en tilfinningin er góð Hlæjandi 
Fór í fitumælingu á þessari vigt , svo furðulega sem það hljómar....þá stóð ég þarna á vigt og út úr henni kom strimill með fullt af upplýsingum.
Hér koma þessar upplýsingar:
BMI 26,8
Brennsla í kyrrstöðu 1528 kcal
Fituprósenta 37,6 (æskilegt 21 - 33%)
Fitumassi 28,1 kg (æskilegt 12,4 - 23 kg.)
FFM 46,7 kg (hmhmhm ekki viss hvað þetta á að vera)
TBW 34,2 kg (þessi tala á að vera 50% af þyngd, segir til um vatnsmagn....)
Skil reyndar ekki svona mælingar, hvaða tækni liggur þarna að baki? Er eitthvað að marka þetta?
Jæja læt þetta duga að sinni, og enn og aftur takk fyrir hvatningu og kvitt.


Í dag er....

30. janúar 2007 klukkan 15:47
......sko dagurinn!!!!!!!!!!!!
Fundurinn er í dag kl 17:30.
Gærdagurinn var 100%
Það fór allt vel af stað í morgun og stefni ég því að 100% degi í dag:
Mm: brauð, smyrja, ostur, 1/2 banani, kaffi.
Hm: Rækjur, grænmetissúpa, brauð.
Km: Fiskibollur, kartöflur, grænmeti.
Kk: Það sem eftir verður af ávaxta, mjólkur og fituskammti.

Það eru veikindi hjá dagmömmunni þannig að vinnan fer fyrir ofan garð og neðan í dag.....og svo er leikurinn kl 19:00. ÁFRAM ÍSLAND
Nú er ég að koma mér í prjónagírinn, fitjaði upp á peysu í gær.......þýðir ekkert annað þegar saumó er á næsta leyti.

Takk fyrir innlit, kvitt og þátttöku í skoðanakönnuninni Glottandi

einn dagur í að námskeiðið hefjist!!!

29. janúar 2007 klukkan 19:50
Stefni á að þessi dagur verði 100%. Ætla að gera súpu í kvöld, gott að eiga hana í ísskápnum.
Munið að kvitta og taka þátt í könnuninni, ætla að hafa hana hér inni í ca viku. Aldrei að vita nema ég breyti markmiðunum mínum.....fer allt eftir niðurstöðunni.
Námsskeiðið byrjar á morgun, JESSSSS!!!!!!!
Eigið góðan dag!

sunnudagur

29. janúar 2007 klukkan 02:28
Jú, ég prjónaði peysurnar sem drengirnir eru í á myndinni. Ég er algjör lopapeysukona........liggur við að lopapeysan mín sé gróin við mig!

Afmælið var frábært (mæli með Mýramanninum), bóndanum tókst ekki að draga mig heim fyrr en....ja ég veit ekki hvenær, ég borðaði magál og harðfisk eins og ég fengi borgað fyrir það og svo auðvitað kjötsúpuna sem var æði. Svo drakk ég rauðvín og eiginlega heldur mikið af því!  Núna ætla ég að láta áfengið vera um hríð...... þó virðist það ekki hafa mikil áhrif á þyngdina hjá mér en ég ætla aðeins að hægja á mér í þeim efnum. Það sem mér fannst eiginlega ótrúlega skemmtilegt í afmælinu voru öll hrósin sem ég fékk, TAKK STELPUR ÞIÐ ERUÐ ÆÐI!

Það verður 10 vikna námskeið hjá vigtarráðgjöfunum, það byrjar á þriðjudaginn, ohhhhh hvað ég hlakka til. Ætti ég að koma með nýtt markmið? Hvað leggið þið til konur góðar? - 5, 6,7,8,9 eða 10 kg á þessum 10 vikum????? Ætla að setja upp smá skoðanakönnun sem ég mun láta standa yfir í viku. Takið þátt.

Fréttir helgarinnar.....Oddný Steina og Gústi eignuðust dreng í fyrrinótt, TIL HAMINGJU!!!!

26. janúar 2007 klukkan 15:59
Hér er ég komin!! Búin að fara austur á Egilsstaði að hitta félaga mína hjá hinum skógræktarverkefnunum, það var alveg ofsalega gaman og gagnlegt. Vestlendingar, sunnlendingar og vestfirðingar voru samferða í flugi austur og þar hittum við austfirðinga og norðlendinga. Funduðum á gistihúsinu á Egilsstöðum eftir hádegið á miðvikudag....ofsalega skemmtilegur staður, um kvöldið fórum við á kaffi Nielsen og ég fékk mér humarsúpu og BJÓR!!!!!!! Súpan var æði. Síðan fór ég til Júlíu frænku og við spjölluðum fram á nótt, gisti þar semsagt. Í gærmorgun lá leið okkar í Skriðuklaustur (æðislegur fundarstaður, frábær matur) þar sem við funduðum til kl 3 en þá fórum við í smá skoðunarferð. Hittum grisjunargengi sem var að höggva inn á Fljótsdal, kíktum á viðarkyndingu á Hallormsstað og brunuðum síðan út á hótel Hérað þar sem formleg opnun "Grænsíðu" fór fram. Snittur, smáréttir og bjór fóru þar inn um varir mínar...........fór síðan með flugi suður.
Var pínu svekt þegar ég kíkti á kommentin áðan og sá að ég hefði kannski getað hitt MissUA....en ég fer aftur austur á ráðstefnu í mars, hver veit nema við getum mælt okkur mót þá Glottandi

Í kvöld erum við að fara í fertugsafmæli Gísla Einars en þar mun hann frumsýna einleikinn
Mýramanninn/Homo palustre það mun verða dálagleg skemmtun.....mér skildist á afmælisboðinu að í boði verði magáll og sviðasulta, naumt skammtað. Þannig að ég fitna ekkert í kvöld.....
Jæja best að hætta þessu kjaftæði og fara að vinna.

Ég get ekki skilið annað en að þetta námskeið verði hjá vigtarráðgjöfunum....þannig að ég er himinlifandi!

Smá viðbót....varðandi opunina á "Grænsíðu" þá setti landsleikurinn mark  sitt á þessa athöfn og endaði með því að tónlistarmennirnir sem voru að spila á meðan fólkið var að gúffa í sig snittur og teiga vína voru látnir stoppa og leiknum var varpað upp á skjá....kokteilboðið breyttist semsagt í leikáhorf....bara gaman að því.

600 upp

24. janúar 2007 klukkan 03:20
Sko, $$$%&!!!&&&&$$$$$!!!!!! segir allt sem segja þarf!!!!! Sexhundruð grömm upp!!!! ansans Skömmustulegur 
Allt einhverjum þorramat og afmælisveislustandi og bjórdrykkju að kenna. Svo ég gleymi nú ekki henni mér sem hefði átt að standast allar þessar freistingar.
Ég mun ekki verða mikið í tölvusambandi næstu tvo daga en vinir mínir, þið sem fáið fréttir af vigtarráðgjöfunum, plís sendið mér sms. Það eru sko fleiri en ég sem þarfnast þeirra!
Jæja, best að fara að gera sig klára fyrir Egilsstaði........hér kem ég Glottandi

Fögur fyrirheit

23. janúar 2007 klukkan 15:38
Bara að láta vita af mér.....gærdagurinn var frábær:
Mm: Brauð, smyrja, ostur, banani.
Hm: Skyr, grænmeti.
Sk: Vínber, kaffi.
Km: Fiskur, grænmeti.
Kk: Appelsína, fjörmjólk, olía.

Dagurinn í dag...
Mm: Brauð, smyrja, ostur, banani.
Hm: Fiskur, grænmeti.
Sk: Kanilepli, sýrður, kaffi.
Km: Hakk, grænmeti.
Kk: Appelsína, fjörmjólk, olía.

Morgundagurinn og hinn......
Fundahöld á Egilsstöðum....reyni að halda mig sem mest við prógrammið.....sleppa sykri, áfengi  og gæta hófs í áti!

Kem svo með  nýja tölu í kvöld, vonandi hef ég ekki þyngst...... Koss Eigið góðan dag!

10 kíló upp???

22. janúar 2007 klukkan 14:10

Jæja, mér finnst ekki ganga á öðru en það sé mánudagur og síðan er allt í einu kominn föstudagur. Ég á von á því að þessi vika verði engin undantekning. Ég verð að vinna hérna á skrifstofunni í dag og á morgunn síðan er fundur austur á Egilsstöðum á miðvikudag og fimmtudag, vinna hér á skrifstofunni á föstudag og þá um kvöldið er fertugsafmæli Gísla, haldið í Landnámssetrinu úllalla. Og ætli laugardagurinn og sunnudagurinn verði ekki nýttir í að koma sér og öðrum fjölskyldumeðlimum á réttan kjöl aftur og svo auðvitað heimilinu. Já það verður í nógu að snúast þessa vikuna. En ég bara verð að taka á mataræðinu....finnst eins og ég hafi þyngst um tíu kíló um helgina!!

Á morgun verður síðasta vigtun hjá okkur áður en vigtarráðgjafarnir byrja með námskeiðið sitt þann 30. jan. Já, ég ætla bara rétt að vona að það verði næg þátttaka. Síðasti dagur til að skrá sig er í dag á
ddv@simnet.is merkt "Borgarnes" sjá www.vigtarradgjafarnir.is

21. janúar 2007 klukkan 22:14
Nú er ég búin að svindla allsvakalega....og ég hef mér ekkert til málsbóta. Borðaði kökur og át þorramat eins og ég fengi borgað fyrir það í gær! Og ekki nóg með það, ég drakk þrjá bjóra. Í dag fór ég síðan í hangikjöt til Ingu.....það er ekki í lagi með mann!!!!!!!!!! Núna er ég að bíða eftir að Gudda systir kíki við en hún er á leið norður eftir menningaráfyllingu í höfuðborginni. Ætli við fáum okkur ekki kaffi og súkkulaðiköku sem ég luma á.......
NEI nú verð ég að fara að taka mér tak......

Sólin

19. janúar 2007 klukkan 14:14
Það var merkilegur dagur hér á Hvanneyri í gær, það sást til sólar. Hún hefur ekki sést hér í ja....nokkrar vikur, ætli það séu ekki svona 7-8 vikur. Af því tilefni fórum við familían til Ingu í sólarkaffi. Við úðuðum í okkur kaffi og pönnsum. Já ég svindlaði allsvakalega....en nú tek ég á því, ekki spurning.
Eigið góðan dag, takk fyrir kveðjur og komment, það skiptir mann ótrúlega miklu máli að vita hverjir eru að fylgjast með manni.
Þetta verður flottur dagur Glottandi

Hvað er í gangi?

18. janúar 2007 klukkan 15:01
Ég skil ekki stjórnmálamenn.....var að horfa á Ísland í dag, í gær og líka Kastljósið og þar var verið að fjalla um frjálslindaflokkinn og stöðuna sem þar er komin upp.....krísa er þetta heldur betur. Hvað hafa menn svona mikið á móti Margréti Sverris? Hún virkar mjög vel á mig......það er kannski vegna þess að ég er ekki í frjálslindaflokknum? Svo er þetta blessaða málþóf á hinu háa Alþingi....þó ég sé ekki hlint ríkisstjórninni að þá finnst mér þetta einum of........þeir standa þarna í púlti og tala og tala og tala og hver hlustar? Kannski fjórar manneskjur í salnum en ætli þeir séu að hlusta, nei örugglega ekki.......þeir eru bara með ipodinn sinn.
Núna í vikunni kom Samfylkingarfólkí heimsókn á minn vinnustað, þau þræddu skrifstofurnar í húsinu....já nú er sá tími að koma, fínir frambjóðendur að sýna sig og sjá aðra. Alveg merkilegt þeir koma hingað bara í kosningabaráttunni.... nema reyndar einn alþingismaður kjördæmisins hann kíkir oft hingað  í kaffi ef hann á leið hjá.....það er Jón Bjarnason. Aðrir láta ekki sjá sig, alveg merkilegt. NEMA ef maður lendir í kokteilboði sem ráðuneytið borgar ÞÁ koma sumir og skvetta í sig.

Dagurinn í gær var ekki 100% - það var saumó hjá Önnu Lísu. Saumóinn var reyndar mjög ddv-vænn en ég borðaði of mikið.

Þetta verður frábær dagur hjá mér, vonandi verður hann það hjá ykkur!

athugið

17. janúar 2007 klukkan 15:38
Ég sá á netinu að ddv námskeiðin á Egilsstöðum, Húsavík og Dalvík verða ekki því ekki náðist næg þátttaka. Ég er mjög leið fyrir hönd þeirra sem langaði að vera með Gráta

Þess vegna hvet ég ykkur sem eruð á Vesturlandi og langar að taka þátt að skrá ykkur fyrir 23. jan á ddv@simnet.is merkt "Borgarnes" en námsskeiðið hefst 30. janúar kl 17:30. Og koma svo!!!!!

Þetta er frábært, ég þurfti að létta mig um 20 kg og er nú þegar búin að ná ríflega 12 af mér og á bara 8 eftir.  Nota bene ég byrjaði 5. september 2006. Konurnar sem voru samferða mér í þessu segja að kílóin hafi hreinlega fokið af sér.
Ég ætla sko að vera með!!!

Varðandi hreyfinguna þá er ég ekki byrjuð á fullu....jebbs skamm ég!!! Ég hef samt haldið mig við göngutúrana 3svar í viku. Svo kemur sundið þegar ekki er svona mikið frost og lyftingarnar koma svona einhverntíman!

Tala vikunnar

16. janúar 2007 klukkan 23:19
Þetta þokast allt í rétta átt.......þrátt fyrir sukk helgarinnar 400 gr niður. Var að átta mig á einu, það eru bara 2,8 kg í að ég nái næsta markmiði mínu, pælið í því!!!!!

hér er ég

16. janúar 2007 klukkan 18:16
Það er lítið að gerast sem mundi teljast merkilegt hjá mér annað en vinna, vinna og aftur vinna.......ég er búin að bóka gistingu fyrir hópinn á nokkrum stöðum í Skotlandi og á eftir að staðfesta þrjár nætur.....dararræ. Það er allt að gerast.

Við ætlum að hittast nokkrar og vigta okkur seinnipartinn....það verður fróðlegt.

Það er eitthvað svo mikið að gera hjá mér að ég hef engann tíma til að gera neitt eins og t.d. handavinnu og að lesa.....ég leggst upp í rúm er sofnuð á "nó tæm".....Ólafía bíður á náttborðinu en hún lofar góðu, fellur vel að mínum smekk.......en ég er þó búin að lesa eina bók síðan um jól (Konungsbók)....húrra fyrir mér!

Bless í bili!

15. jan

15. janúar 2007 klukkan 14:14
Afmælisdagurinn fór vel, fullt af vinum og ættingjum kíktu í kaffi. Rommbomban var algjört æði og skyrkakan stendur alltaf fyrir sínu.  Næsta mál á dagskrá er partý fyrir bekkinn.....það er s.s. ekki svo slæmt, þau eru 11 í bekknum. Erum að spá í að taka seinnipartinn á laugardaginn í það.

Fengum barnapíu í gærkv. og kíktum til Guðrúnar og Gísla......veit ekki síðan hvenær við höfum gert eitthvað svoleiðis.....rosalega gaman, mikið skrafað, heleið ....og borðað, jamm 10 gerðir af ostum, annað eins af pulsum og rauðvín. Þetta var æði!!

Þrátt fyrir þetta vaknaði mín kl 6 og fór út að labba, ég er reyndar svolítið þreytt en hvað um það, hressandi var það Glottandi

Hef ekkert planað daginn í dag í matarlegu tilliti en ég ætla að taka á því þessa viku eins og síðustu, gangi mér vel og ykkur líka Brosandi

snjór, snjór, snjór!

13. janúar 2007 klukkan 18:34

Búin að hreyfa mig í dag, fór i göngutúr. Við vorum reyndar bara tvær sem mættum í gönguhóp, plús Þórður Logi og Lubbi. Það vildi ekki betur til en það að það kom él um tíuleitið þannig að það viðraði kannski ekki mjög skemmtilega til göngu. Við biðum élið af okkur í morgunkaffi hjá Ingu og Kela í Garði en héldum síðan áfram, tókum smá hring hér um staðinn. Það má segja það að þó göngutúrinn hafi ekki verið langur þá er alltaf aðeins erfiðara að ganga í ökladjúpum snjó og síðan til að auka aðeins á erfiðið þá var ég með Þórð Loga á bakinu.
Maturinn í dag:
Mm: Brauð, smyrja, ostur, kaffi, kiwi.
Hm: Grænmetissúpa, egg, brauð.
Sk: Kaffi, vínber, kanilepli.
Km: Fiskur í ofni, grænmeti.
Kk: Appelsína, fjörmjólk.
 Í dag ætla ég að vinna eitthvað í bókhaldi (sem mér þykir frekar leiðinlegt enda hef ég ekkert vit á því!!) og baka því stóri strákurinn minn er 11 ára á morgunn og hann á von á ættingjum í kaffi.
Á morgunn er matarplanið svona:
Mm: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
Hm + sk: Afmælisveisla.....heitur réttur, rommbúðingur og skyrkaka (af heimasíðu súpers) grænmeti.
Km: Grænmeti og eitthvað óákveðið........
Kk: ávextir og fjörmjólk ef ég á eitthvað inni!

Tók eftir því að ég er númer 2001 hingað inn á síðuna....átti ekki von á að fá svona margar heimsóknir, einhverntíman var ég að spá í hvort ég ætti að setja það inn sem eitt af markmiðunum að vera búin að missa 15 kg þegar innlitin færu í 2000......fegin að ég setti það ekki inn. Hefði aldrei staðist það! Ætti ég að setja mér það markmið að vera komin í 15 kg í mínus við 2500 innlit?
Ég þakka ykkur öllum fyrir innlit, hvatningu, athugasemdir og kvitt í gestabók....það skiptir mann miklu máli. TAKK!!!!! Koss
Svo í lokin þá ætla ég bara rétt að vona að þessi snjór haldist eitthvað, það birtir svo mikið yfir öllu við að fá hann.
Góða helgi.

12. janúar

12. janúar 2007 klukkan 15:06
Sælar, hérna snjóaði í nótt þannig að maður þurfti að búa sig vel út í dag. Reyndar sváfum við mæðginin yfir okkur en þó ekki svo að Stefán missti af rútunni .....sem betur fer!

Svona lítur dagurinn út hjá mér:
Mm: Brauð, smyrja, ostur, banani.
Hm: Grænmetissúpa, harðfiskur.
Sk: Kanilepli, sýrður rjómi, kaffi.
Km: Píta, grænmeti.
Kk: Það sem ég á eftir af ávaxta og mjólkurskammti.

Við Tedda skruppum út í "Nýja skóla" eða Ásgarð og skoðuðum líkamsræktaraðstöðu nemenda, okkur líst bara ágætlega á og ætlum að spara okkur ferðir í Borgarnes með því  að lyfta hér tvisvar í viku til að byrja með í stað þess að keyra  næstum 30 km og eyða slatta tíma til að koma okkur á staðinn. Stefnum á að taka fyrsta tímann seinnipartinn í dag. Hreyfði mig ekkert í gær og fyrradag vegna kvefsins en þetta kemur allt saman! Síðan er gönguhópur á morgunn.

Jessss!

12. janúar 2007 klukkan 01:57
Smellti mér í kaffi til Þórunnar eftir vinnu og fékk afnot af vigtinni hennar í leiðinni, bara svona af því ég var stödd þar.......við höfum sko alltaf notað vigtina hennar eftir að vigtarráðgjafarnir fóru í frí.
Viljið þið sjá, ég er búin að ná jólasukkinu af mér!!!!!!! Jesss




Að lokum vil ég minna ykkur sem hafið áhuga á að ganga til liðs við vigtarráðgjafana í Borgarnesi að tilkynna þátttöku á ddv@simnet .is eða kíkja á
www.vigtarradjafarnir.is

út og suður

11. janúar 2007 klukkan 15:55
Hér á bæ halda veikindi áfram, ég er samt öll að koma til og stefni á að skunda til vinnu eftir hádegið  en þá kemur Haukur heim og verður hjá Þórði. Reikna svo með að Þórður Logi fari til dagmömmu á morgunn.

Matarplan dagsins lítur svona út:
Mm: Brauð, ostur, smyrja, mandarína, kaffi.
Hm: Grænmetissúpa, rækjur, brauð.
Sk: Banani, kaffi.
Km: Fiskur, grænmeti.
Kk: Vínber, Fjörmjólk, olía.

Mikið ofboðslega hlakka ég til þegar janúar er búinn þá verður vonandi mest öll vinnan vegna ferðarinnar búin en það er svolítið stressandi að sjá um að skipuleggja ferð fyrir svona hóp, bóka gistingu á nokkrum stöðum, finna rútu og láta þetta allt smella saman. Það er t.d. ekki auðvelt að finna ódýra gististaði sem taka þó ekki stærri hóp en þetta.....agalegt að þurfa að dreifa fólki á 2-3 gististaði á hverjum næturstað.......það er semsagt þeta sem veldur stressi í mér þessa dagana!!!
Svo ég minnist ekki á blessaða bókhaldið hjá badmintondeildinni sem ég ætti nú að vera tilbúin með......hmhmhmh skil ekki hvað ég er að láta plata mig í svona lagað....en hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín?

Ég hef verið svolítð hugsi yfir umræðunni um matvælaverðið. Ég hef ekkert vit á hagfræði eða hvað þetta heitir nú allt saman en ég hef verið að hugsa um neyslumynstrið á mínu heimili. Málið er nefnilega að ég versla meiri munaðarvöru en ég gerði áður......tökum dæmi:
Fyrir 5 árum:
Keypti ég Bónus  eða BKI kaffi, ódýrustu ávextina, ódýrasta áleggið og svona mætti lengi telja.
Það var undantekning ef farið var til útlanda.
Fórum næstum aldrei út að borða.
Var nýtnari á fatnað.
"Sparaði" ferðirnar í Bogarnes.
Spáði í stærð jólatrésins!
Í dag:
Kaupi kaffi frá Kaffitár, kaupi þá matvöru sem mig langar í.
Árið 2006 fór ég tvisvar til útlanda og maðurinn minn þrisvar. Á þessu ári er nú þegar búið  að plana eina utanlandsferð hjá mér en tvær hjá manninum mínum
Förum út að borða ef við viljum og ef við fáum pössun.......
Kaupi föt ef okkur langar eða vantar spái ekki mikið í verð aðallega að fötin og skórnir séu þægileg/ir.
Spái ekkert í fjölda ferða í Borgarnes
Kaupi flottasta jólatréð!
Þetta er auðvitað ekki heilbrigt!

Þetta mundi sumir segja að væri algjört bull í mér en svona er þetta bara ég eyði í meiri munað og e.t.v. vitleysu........mikið væri ég rík í dag ef ég hugsaði eins og ég gerði fyrir fimm árum. Við höfum það bara ansk..... gott þó erum við hjónin bara ríkisstarfsmenn. Við búum þó ekki í einbýlishúsi og eigum ekki sumarbústað og jeppa. Við búum í 137 fm parhúsi með bílskúr og tveimur sólpöllum og keyrum um á 7 ára gömlum Suzuki Baleno. Talandi um bílskúrinn þá er hann fullur af drasli sem einhverntíman var keypt af því það var algjör nauðsyn......neysluþjóðfélag?
Eins og ég sagði fyrr þá hef ég ekkert vit á hagfræði, rekstri eða viðskiptum. Ég tel mig hafa vit á náttúrufræði, umhverfinu sem við búum í og oggulítið vit á landbúnaði.
En það er ekki að sjá í verki.....ég keyri stundum óþarflega margar ferðir í Borgarnes, ég er með ýmislegt í sambandi sem eyðir rafmagni (já vissuð þið það að tæki eyða rafmagni ef þau eru í sambandi??), ég er ekki nógu dugleg að flokka ruslið mitt, Ég fer á kaffistofur og matsölustaði sem eru eingöngu með einnota ílát sem er bara gagagagaga, ég á allt of mikið af fötum sem ég geng ekki í......fötin eru jú mörg hver unnin úr náttúrulegum efnum....já og svona get ég haldið endalaust áfram.
Jæja verð að hætta litli ormurinn minn kalla á athygli, ætla að fara að leika við hann og finna eitthvað fleira sem ég get bætt í mínu daglega lífi. Njótið dagsins í dag, hann kemur ekki aftur.

Kvef, hiti og góðar fréttir

10. janúar 2007 klukkan 17:09
Það er lítið að frétta frá mér annað en að það var hringt í mig frá dagmömmunni í gær og Þórður kominn með hita. Ég er semsagt heima í dag, kannski sem betur fer því ég er svo smekkfull af kvefi að mér verður líklega ekki mikið úr verki.

Gærdagurinn var 100% ddv og þannig verður dagurin í dag líka.
Mm: Hrökkbrauð, ostur, kiwi, kaffi
Hm: Brauð, túnfisksalat, grænmeti.(fékk mér sko bara 1/2 túnfiskskammt í gær....hlýt að mega splitta túnfisknum svona upp)
Sk: Appelsína, kaffi.
Km: Kjúlli, grænmeti.
Kk: Fjörmjólk, 1 tsk kakó, melóna.

Góðu fréttirnar eru þær að Vigtarráðgjafarnir byrja aftur 30. janúar í Borgarnesi.....ef næg þáttaka næst!!!

Þriðjudagur

09. janúar 2007 klukkan 14:10
Vaknaði klukkan sex í morgun, klæddi mig mjög vel og skellti mér út í frostið með hann Lubba minn. Hittum Teddu og gengum hringinn. Var komin inn heima hjá mér rétt fyrir klukkan sjö. Frábær byrjun!
Semsagt hreyfing dagsins: búin.
Dagurinn lítur svona út í matarlegu tilliti:
Mm: Brauðsneið, 1 tsk sulta, 75 gr kotasæla, banani, kaffi.
Hm: Brauðsneið, 1 egg, 50 gr túnfiskur, 30 gr majo, 300 gr grænmeti (tómatar+blómkál), kaffi
Sk: Melóna, kaffi.
Km: Hakk, 300 gr grænmeti (hakkaðir tómatar, laukur, hvítlaukur, sveppir - allt hitað í potti)
Kk: Appelsína, fjörmjólk

Að öðru....hafið þið séð halastjörnuna? Ekki ég enn!

Svona verður þetta árið 2007

08. janúar 2007 klukkan 20:10
Jæja, loksins geri ég eitthvað í því að gera mér alvöru hreyfingarplan....ég vil hafa hreyfinguna fyrst og fremst fjölbreytta. Vinkona mín ætlar að fara eftir þessu prógrammi líka en það er mjög gott svona til að maður hafi stuðning.
Svona lítur þetta út:
Mánudaga og þriðjudaga kl 6:15  út að ganga "hringinn" 4,5 km.
Miðvikudaga og föstudaga kl 16:30 syndi lágmark 500 metra.
Fimmtudaga kl 16:30 og sunnudaga kl 10:00  lyfta.
Laugardaga kl 10:00 út að ganga með gönguhópnum.

Maturinn í dag

08. janúar 2007 klukkan 14:26
Þetta ætla ég að borða í dag.

Mm: Brauðsneið, 5 gr smyrja, 25 gr ostur, banani, kaffi.
Hm: 150 gr skyr, 300 gr grænmeti, brauðsneið, 5 gr smyrja, kaffi.
Sk: Melóna, kaffi.
Km: 120-170 gr soðin ýsa, 300 gr grænmeti.
Kk: 4 dl fjörmjólk, appelsína, 5 gr olía.

Ath. Ég reikna alltaf með að ég drekki ca 1/5 af mjólkurskammti út í kaffið yfir daginn.

Jólin búin

08. janúar 2007 klukkan 02:37
Jæja, þá eru jólin formlega búin, kertasníkir farinn á heimaslóðir og  helgin senn á enda og ég hef staðið mig vel í að gera ýmislegt.......nema auðvitað að standa mig í danska..........nei, nei!

Skelltum okkur í bíó á föstudagskvöldið, sáum íslensku myndina "Köld slóð" það er fín mynd, urðum ekki svikin af henni.
Í gær, laugardag fórum við í göngutúr, á þrettándabrennu og fengum gesti í mat.
Í dag byrjuðum við daginn á að bruna suður að sækja Stefán, vorum komin aftur um kl eitt....í tæka tíð fyrir landsleikinn við dani. Tókum stuttan göngutúr,  síðan var jólaskrautið tekið niður og því pakkað ofan í kassa. Eigum reyndar eftir að taka útiseríurnar, gerum það næst þegar hlýnar. Nokkrir gestir ráku inn nefið....semsagt fín helgi.
Þá er best að taka vikuna 100% og vera endalaust bjartsýn Glottandi Ætla samt rétt að vona að það fari að koma auglýsing frá vigtarráðgjöfunum, þarf svo á því að halda að komast á fund......annars verð ég bara að vera dugleg á blogginu.

Best að sækja stækkunarglerið.......

05. janúar 2007 klukkan 19:57
Vatnsberi: Þér er lagið að ná árangri í rannsóknum á nánast hvaða sviði sem er í dag. Geta þín til þess að kafa undir yfirborðið og komast að sannleikanum er einstök.

Góðan daginn

05. janúar 2007 klukkan 14:11
Hér er ég! Skellti mér til borgarinnar í gær, þræddi útsölurnar. Tveir bolir og ein peysa.....ekki var það mikið.......jú og ein jólasería....ekki má gleyma henni Glottandi

Stefán Snær fór líka en hann varð eftir hjá Stebba frænda sínum og þ.a.l. í fríi í skólanum í dag....það var ómögulegt annað en hann fengi að fara til þeirra og ekki síst fyrir ömmu hans að fá hann suður en það eru erfiðir tímar, lítil frænka Stefáns (dóttir föðurbróður hans) dó í fyrrinótt. Það skiptast á skin og skúrir hjá fjölskyldunni því það á að skíra tvo nýja fjölskyldumeðlimi á morgun....svona er lífið, eins og góð vinkona mín segir þá er bara tvennt sem við ráðum ekki það er líf og dauði, annað er val.

Gærdagurinn var svona 90%, borðaði ekki nóg í kvöldmatnum....enda ekki alveg besti staður að vera í Kringlunni í mat.

Eigið góðan dag, það ætla ég að gera!

4. janúar

04. janúar 2007 klukkan 14:20

Mataræðið er bara alveg að gera sig hjá mér núna.....ég er samt kannski ekki alveg að ná að klára mjólkurskammtinn og eins fituna en þetta fer allt að koma....ætla að prenta út matardagbókarblað í dag því það gengur ekkert annað en að skrifa. Annars var saumó í gær og ég fékk mér snickersrjómagums þar og heitan og rétt og eitthvað fleira en ég hafði sparað, kvöldmatinn, 2 ávexti, mjólk og fitu. Borðaði rófufranskar áður en ég fór, þannig að þetta er ekki svo slæmt.

Ég er að jafna mig á þessu með hundinn.....þetta kemur allt, þurfum bara að vera ákveðin við hann og láta hann skilja það að hann er neðstur í virðingarröðinni á heimilinu.

Þórður Logi "týndist" í gær, fundum hann  inn í hundabúrinu í hrókasamræðum við Lubba, þegar hann vaknaði í morgun þá var hann fljótur að stika fram í þvottahús og inn í búrið.....þetta er svo mikið sport!

Þjóðmálaumræðan....hmhmhmhm hvað get ég sagt, hef misst af fréttum undanfarið....hef lítið sett mig inn í flugumferðarstjórnunarmálið......EN ég er á móti dauðarefsingum!!

Jamm ég held ég hafi ekki meira að segja í bili, nema jú eigum við ekki að vera bjartsýnar fyrir þetta ár? Vinna í okkur sjálfum og vera jákvæðar? Það held ég bara.

3. janúar

03. janúar 2007 klukkan 14:52
Gærdagurinn gekk vel í matarlegu tilliti. Súpa í hádeginu ásamt eggjum, fiskur í kvöldmat og allt í gúddí. Borðaði þrjá ávexti og grjón með fisknum. Í kvöld verður hakk með tómatajukki, jammí jammí!

Hins vegar var ég ekki eins bjartsýn þegar ég fór að sofa eins og ég hafði verið fyrr um daginn,....ástæðan? Jú hann Lubbi minn er ekki alveg að ná að verða "húsvanur" hann tók upp á því að gera þarfir sínar inn um allt hús....jebb ekki spennandi þangað til hafði hann alltaf gert sitt á dagblöð inn í þvottahúsi sem var kannski heldur að gera sig mikið lengur en ég ætlaðist eiginlega til þess að hann lærði að gera þetta úti.....en nei ekki hann Lubbi hann hefur þrisvar sinnum migið úti!!!!! Ég er frekar þreytt á þessu, þó hann sé búinn að vera úti í göngu í klukkutíma þá gerir hann ekkert úti en um leið og inn er komið þá kemur bunan!!! Svo óþekktaðist hann í gær allsvakalega....eyðilegði úlpuna hennar Teddu, ég varð frekar pirruð og það varð til þess að ég var ekki mjög glöð þegar ég fór í háttinn í gær.....eiginlega frekar pirruð!!! Öskrandi Er að spá í að skila honum, jamm ég veit....er ekki að höndla þetta! Þetta kann ég bara ekki enda eru hundar ekki af sömu tegund og ég Glottandi Og við erum búin að vera með hann í næstum mánuð.......jamm það er hundur í mér í dag!!!!

Svo í lokin þá vigtaði ég mig í gær......................ARGGGGGGGGGGG 1,8 kg bættust á mig um hátíðirnar......já mér er nær....helv....ans......djöööö.... sukkerí!

2. janúar seinni hluti!!

02. janúar 2007 klukkan 20:46

Áramótaheitið....jamm gleymdi að strengja áramótaheit á áramótunum en þetta ætla ég að gera:

Vera komin í 67 kg. 17. júní 2007.
Klára páskalöberinn sem ég byrjaði á í fyrra.....fyrir páska.
Fara til Skotlands í ágúst, ferðast um hálöndin, í viku (búin að panta miða).
Komast norður á skíði.

Það sem mig langar til að gera:
hmhmmhmhmhmhm það er svo margt að ég læt það ekki uppi hér!!!

2. janúar 2007

02. janúar 2007 klukkan 14:27
Gleðilegt ár allir saman!
Takk fyrir samskipti, stuðning og vináttu á árinu sem er liðið.

Já á svona tímamótum sem áramót eru þá lítur maður gjarnan um öxl og hugsar með sér hvað maður gerði markvert á árinu sem er liðið. Það markverða sem ég gerði er í stuttu máli þetta.
Ég var móðir, húsmóðir og eiginkona þetta árið eins og áður.....náði að styðja eldri soninn í námi þannig að markmið náðust sem ég átti ekki von á strax. Ég var í fæðingarorlofi fyrri hluta ársins og náði því að eiga dýrmætar stundir með yngri syninum. Við fórum í ógleymanlega fjölskylduferð til Danmerkur í júní og síðan í matarklúbbsferð til Dublin. Við fengum okkur hvolp. Ég ákvað að gera eitthvað í mínum málum og skráði mig hjá íslensku vigtarráðgjöfunum og náði að losa mig við tæp 12 kg (eiginlega meira rúm 11 kg!!!) frá byrjun september til jóla.
Er þetta ekki bara ágætt, vona að þetta ár verði ekki síðra!

Hátíðirnar fóru mildum höndum um mig, við fórum norður í Skagafjörð þann 28. des og komum heim í gær. Þetta var yndislegt, nema eins og alltaf þá kemst maður ekki yfir að hitta alla sem maður hefði viljað hitta.
Áramótunum eyddum við síðan að Hólum í Hjaltadal í góðu yfirlæti hjá Sillu systur en þar komum við öll saman systkinin og mamma og pabbi.

Jæja látum þetta nægja að sinni, eigið góða vinnuviku.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.