Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Játningar

27. desember 2006 klukkan 22:04

Jæja þá er fyrri umferð lokið í ofáti og sukkeríi!!
Síðustu 5-6 dagar hafa farið í vaskinn hjá mér.......ég borða sörur, lagtertu, konfekt, mat og drekk jólaöl, bjór og ég veit ekki hvað og hvað!! Grænmeti.....neeei.....hef alls ekki staðið mig. Afleiðingarnar, jú endalaus viðrekstur, svitaköst, bjúgur og slen!!!! OG MÉR VAR NÆR!!!!!!!!!!!!!!!!! Næstu dagar verða eitthvað skárri en þó ekki en við erum að fara norður í Skagafjörð í fyrramálið og komum aftur heim á nýársdag. Til að bæta eitthvað fyrir þetta þá fór ég í göngutúr áðan (stafgöngu) og svitnaði bara pínu. Reyndar er ágætt að fara norður því ef ég þekki systur mína rétt þá eigum við eitthvað eftir að þramma saman.....veit ekki hvort við komumst á skíði, líklega er snjórinn farinn ...... jamm líklega.
Þetta voru sannkölluð bókahól hjá okkur, við hjónin fengum 10 bækur samtals og Stefán Snær fékk eitthvað svipað, Þórður Logi fékk mikið af dóti sem heyrist í!!! Í fyrra fengum við eina bók saman og það var íslensk knattspyrna 2005........öfgarnar eru gríðarlegar!
Horfði á Blóðbönd í sjónvarpinu í gær....varð fyrri vonbrigðum, ekkert spes mynd .... finnst mér....en ég hef líka svo skrítinn smekk, hehehehe.
Jæja best að halda áfram að lesa Konungsbókina eftir Arnald, það finnst mér góð bók, ólíkt mörgum öðrum sem ég þekki og  hafa lesið hana......
Kvöldið: Elda fullan pott af tómatsúpu og spila fram eftir nóttu.

Svo þarf maður að upphugsa áramótaheit............

23. desember 2006 klukkan 22:19
Núna er ég að bíða eftir að jólin komi, dúlla mér við lestur og útsaum sitt á hvað!!!

Njótið hátíðanna og hafið það hugfast að það er ekki sjálfsagður hlutur að upplifa jólin, hugur minn reikar til allra þeirra sem eiga um sárt að binda.

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla!

21. desember 2006 klukkan 15:00
Það er ekki allt tilbúið heima hjá mér.....sko eftir vinnu í dag ætla ég að fara með Stefán Snæ í klippingu,  þurrka af, skúra og þrífa baðherbergið. Skötuveisla hjá Teddu í kvöld. Muna að taka lambahrygginn úr frysti.
Á morgun ætla ég að skreyta og dúlla mér með drengjunum mínum.......og kaupa jólagjöf handa honum Hauk mínum. Klára að pakka inn. Göngutúr
Þorláksmessa, skötuveisla hjá Sirrý í hádeginu. Sjóða hangikjötið og rauðkálið.....og hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu. Göngutúr.
Aðfangadagur, mamma og pabbi koma að norðan, jólagrautur í hádeginu og möndlugjöf að sjálfsögðu, Sirrý, Júlli og Berghildur koma í grautinn.....orðin hefð. Slaka á og fer í göngutúr. Bý til "Sigríðrsúpu" (grænbaunasúpa...hefð frá heimili pabba) sýð egg með henni. Lambahryggurinn látin malla í ofninum drjúgan hluta úr deginum. Fullt af meðlæti. Eplapæ í desert, líka hefð frá heimili pabba.

Skrifa meira seinna í dag....eða á morgun!!!!

20. desember 2006 klukkan 14:51
Engin breyting varð á þyngdinni þessa viku, um leið og maður slakar á og skrifar ekki þá gerist ekkert....ég veit að ég hef ekki verið að standa mig í fitunni og mjólkinni.....síðan fékk ég mér alkohól um helgina og kakó með rjóma....þannig að skýringin er komin!
Annars er ég bara sátt, ég þyngdist ekki Skömmustulegur
Það sem pirrar mig núna er allt þetta nammi allsstaðar.....ARG!!!!!!!

Ótrúlegt alveg.....heyrði í fréttunum í morgun að lokað hefði þurft Holtavörðuheiði vegna þess að "það hefði flætt yfir hana á tveimur stöðum" .....stjúpid ég ....hélt það mundi flæða yfir veginn ....ekki heiðina.....

Stjúpid ég!!

19. desember 2006 klukkan 14:32
Ótrúlegt hvað maður er eitthvað illa upplýstur.....það var sko þannig að það var Kompáss-þáttur á stöð 2 á sunnudagskvöldið síðasta - eins og eflaust flest allir hafa orðið varir við. Ég horfði ekki á þáttinn og hef ss ekkert verið að setja mig inn í málin (en hefði kannski betur gert það). Nema hvað að þegar umræðan var um þennan blessaðan forstöðumann í Byrginu þá varð mér að orði, ..."er þetta þessi Mummi í Götusmiðjunni?" ....semsagt ekki upplýstari en þetta!! Síðan var ég að lesa Moggann í gær og þá sé ég yfirlýsingu frá Mumma í Götusmiðjunni ........ málið er semsagt það að það var ekki bara ég sem hélt að Guðmundur í Byrginu og Guðmundur í Götusmiðjunni væri einn og sami maðurinn! Þetta eru tveir menn ekki einn og sami maðurinn. Og Götusmiðjan og Byrgið er ekki það sama.
Lærdómur: Kynna sér málin!! Fylgjast með!! Lesa, lesa, lesa!!!!
Fréttin er hér á mbl

18. desember 2006 klukkan 20:47

Var að fletta aðeins í blogginu mínu áðan, vá....mikið svakalega hugsa ég mikið um mat!! Yfirmaður minn segir að ég sé alltaf að tala um mat og mér hefur fundist þetta vera algjört rugl í honum, ....en þetta er víst rétt hjá honum.....matur, matur, matur, matur, matur..........auðvitað ástæðan fyrir því hvernig maður er!!!

Svindl í fleirtölu!!!

18. desember 2006 klukkan 14:10
Jamm, ég svindlaði um helgina.
Laugardagur: fékk mér hvítvín....eiginlega næstum hálfa flösku....jamm!
Sunnudagur: fékk mér heitt súkkulaði og rjóma, kanelsnúð með glassúr og tvö mjöööög væn púrtvínsglös!

Við fórum í góðra vina hópi í gær og náðum okkur í jólatré....vorum búin að finna fullt af álitlegum trjám en þegar betur var að gáð þá var ein hliðin bjöguð vegna þrengsla í skóginum.....EN þetta er alltaf jafngaman og veðrið hefði ekki getað verið betra. Logn, smá snjóföl og 5-8 stiga frost, bara frábært.

Jæja best að fara að vinna, eigið góða vinnuviku og nú tökum við á því fram að jólum!!!

p.s. ég káraði bútasaumsjólalöberinn sem ég byrjaði á fyrir tveimur árum, engin smá framtakssemi!

15. desember 2006 klukkan 18:00

Í dag er ég ekki nógu hress, kvefið sem fór að láta kræla á sér í fyrradag er að gera útaf við mig....held að það stefni í einn vænan sjúss af koníaki þegar ég kem heim í dag!!!!!
Annars gengur allt svona ágætlega.....svindlaði rosalega í kvöldmatnum í gær...fékk mér pizzu og brauðstangir!!! Nennti ekki að elda því ég var búin að gera brúna lagtertu (randalínu) og var komin með nóg af eldhússnúningum!!! Sé ekki eftir þessu, í kvöld ætla ég að elda þorsk, baka hann í ofni og setja slatta af osti og sveppum með og sýrðan rjóma og krydd....mmmmmm, rosagott. Ullandi

14. desember 2006 klukkan 15:21
Það verður jólahlaðborð í hádeginu. Þá hittast starfsmenn allra stofnanna í húsinu og borða saman jólamat, allir koma með eitthvað á hlaðborð. Það verður hangikjöt, skinka, kjötbollur, síld, reyktur lax, grafinn lax, uppstúfur, kartöflur, kartöflusalat, ávaxtasalat, laufabrauð, ostakökur, konfekt, jólaöl, snafs, og og og og ....fullt af kræsingum!! Ég gerði kjötbollur og ávaxtasalat. Ávaxtasalatið samanstendur af eplum, vinberjum, rauðbeðum (frá ddv) og sýrðum rjóma........mjög einfalt en ofsalega gott. Ég tók með mér tómata til að borða áður en síðan ætla ég bara að passa mig. Þetta er ekkert mál!

13. desember 2006 klukkan 18:41
Je, je, je!! Ég vissi það!!! 1,5 kíló niður segir vigtin og þó sýnir hún 300 gr of mikið miðað við vigtina hjá vigtarráðgjöfunum. Ég er svakalega glöð, jejejejejjejejejejjejejejejjejejejejejjejejejjejejejejjejejejejejejjejejej!!!!!!!!!!! Meira en hálfnuð, djö...ætla ég að standa mig um jólin, ég skal, vil og get!!!
Takk fyrir hvatninguna stelpur þið eruð frábærar, veit ekki hvar ég væri án ykkar dúllurnar mínar!! Best að fara að fá sér heita og góða tómatasúpu
Koss


12. desember 2006 klukkan 20:13
Smá frétt!! Í gær keypti ég mér flík í small!!!! ó mæ god, þetta er ótrúlegt....hér eftir kaupi ég ekkert nema í small hehehehe Brosandi

12. desember 2006 klukkan 15:25
Úff mikið rosalega er ég syfjuð í dag........langar mest heim að sofa zzzzzzzzzzzz!
Það verður svona "heimavigtun" hjá mér seinnipartinn, bíð spennt. Veit að ég er komin yfir 10 kílóin....finn það bara....og af því tilefni fór ég í Clarins-heilnudd í gær á snyrtistofu Jennýar í Borgarnesi mmmmm, það var æði. Kom svo heim og beint í kvöldmat og þaðan upp í rúm. Fékk jólagjöf frá Jenný, næturkrem frá Clarins, rosagott.
Ég ætla að byrja að pakka inn jólagjöfum í kvöld, verð að fara að senda þær frá mér....Hjalti kemur suður á morgun til að fara á jarðaförina og þá nota ég tækifærið og sendi pakka með honum norður.
Uppeldið á litla ferfætlingnum gengur vel, hann er svo ótrúlega skynsamur Brosandi
Jamm og mataræðið, það er bara allt að gera sig, sko!!

11. desember 2006 klukkan 14:45
Nei ekki aldeilis...ég er enginn klettur! Ég féll í freistingar um helgina, vegna þess að eins og alltaf þá er gert jólakonfekt á mínu heimili....gerðum 5 sortir og ég smakkaði tvær þeirra og síðan fékk ég mér söru...mmmmmmmmmm.....svo gott en rosalega sætt!

Síðan er kominn nýr einstaklingur á heimilið, hann hefur hlotið það virðulega nafn Lubbi, algjört krútt
Svalur

Heimilið er að taka á sig jólalegan blæ, setti upp nokkrar seríur, inni og úti, þetta er allt að koma!

08. desember 2006 klukkan 14:32
Sörugerðin gekk vel. Við hjálpuðumst að við þetta eins og undanfarin ár, ég og Stefanía. Vorum mikið að spá í hvað við gerðum margfalda uppskrift í fyrra og ákváðum að byrja á tvöfaldri....og það var bara eins gott að við gerðum ekki fjórfalda.....því í heildina gerðum við 280 sörur!!! Já 140 stk fyrir hvora!!!!
Ég get sagt ykkur það að ég hef ekki hugmynd um hvernig þær smakkast en Stefanía segir að þær séu guðdómlegar eins og ævinlega
Brosandi

07. desember 2006 klukkan 16:06
Órjúfanlegur hluti af jólaundirbúningnum á mínu heimili er að gera sörur. Þær verða gerðar í kvöld. Vænti ég þess að þær veki mikinn fögnuð heimilismeðlima og gesta sem líta við á aðventunni. Ekki ætla ég að borða þær (sagt með þjósti) ;)

- 300 grömm

06. desember 2006 klukkan 16:20
Þrjúhundruð grömm fóru þessa vikuna......ekki alveg eins og ég ætlaði mér en það verður bara að hafa það!
Nú eru vigtarráðgjafarnir komnir í frí í Borgarnesi og við verðum því að kíla á þetta sjálfar fram undir lok janúar þegar nýtt námskeið hefst (ef næg þáttaka verður).
Við vorum með veislu á fundinum í gær og það var bara æði....síðan verslaði ég nokkra dropa til að hafa í desertana um jólin. Nú á sko að taka á því!!!! Við vorum allar sammála um að við ætlum að standa okkur og vera frekar búnar að léttast meira en hitt þegar fundirnir byrja að nýju.
BERJAST STELPUR!! Hlæjandi

Svo í lokin þá er hér smá leikur að tölum.
Þrettán vikur eru síðan ég fór á fyrsta fundinn og ég hef misst 9,7 kg á þessum tíma, sem þýðir að ég hef misst 746 grömm að meðaltali á viku. Ég á eftir 10,9 kg að kjörþyngd sem þýðir að með sama áframhaldi þá ætti ég að vera komin í kjörþyngd eftir u.þ.b. 15 vikur .... sem er í kring um 20. mars!!!! Raunhæft....hmhm...nei held ekki! en 5 -6 kíló fyrir 20. mars, það er raunhæfara.
Best að hætta að þvæla þetta fram og til baka og snúa sér að vinnunni.....er kominn með allan hugan til Skotlands, jejejjej!

Lítið að gerast....

05. desember 2006 klukkan 14:20
Reyndar er ég enn að naga mig í handarbökin yfir djamminu um helgina en það þýðir víst ekki. Vigtunin í kvöld er nú þegar farin að valda mér þungum áhyggjum....ÉG BARA VERÐ AÐ NÁ 10 KÍLÓA MARKINU! Ef ég næ því ekki get ég ekki kennt neinum um nema mér Fýldur 

jóla, jóla

04. desember 2006 klukkan 14:38
Púff þá er þessi helgi búin! Hún einkenndist af áti, jamm og drykkju áfengra drykkja, jamm! Eins gott að við förum ekki nema á eitt jólahlaðborð, jamm!
Er að pæla í að hætta endanlega að smakka vín nema bara í rólegheitum heima hjá mér, hugs, hugs, jaaamm!!!!
Við fórum í Fossatún á jólahlaðborð, það lukkaðist vel, sérstaklega forréttirnir og rjúpusúpan mmmmmmm hún var æði. Sveitungarnir skemmtu það var mjög gaman að því. Semsagt mikið gaman og mikið fjör á jólahlaðborði.

Kransagerðin heppnaðist vel (sorry Ingibjörg), ég þarf að taka mynd af kransinum og skella hér inn við tækifæri.
Lítið af seríum rataði upp hjá mér um helgina, hins vegar fóru jólagardínurnar upp og aðventuljósin, þetta kemur allt saman.

Prófaði að baka eina ddv smákökusort í gær.....piparhnetur heitir hún, vantaði reyndar negulinn í en það orsakaði það að þessar kökur eru ekkert svakalega spes.....gengur betur næst!

01. desember 2006 klukkan 13:53
Þar kom að því!! Stefán Snær fékk BINGO í gærkvöldi á jólabingói kvenfélagsins. Vinningurinn var svona allt mögulegt frá bönkunum, já, já, það var íþróttataska, bolur, smekkur og sparibaukur frá kbbanka, sundpoki, litir, penni, spil frá sparisjóðnum, sundpoki frá Íslandsbanka, engill frá rúmfatalagernum, lítil mynd, sokkapar, súkkulaðirúsínur og after eight.......slatti í pakkanum semsagt.

Annars er allt í gúddí, tekst alveg ágætlega að lifa eftir nýja lífsstílnum....snerti ekki á sætindum, nei, nei!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.