Hugmynd
Bingó og aðventukransar
Alltaf nóg að gera hjá mér..........best að fara að vinna!
p.s. Gleymi alltaf að þetta á víst að heita átaksblogg, mataræðisstjórnunin gengur vel
Ný tala
Mínus áttahundruð grömm voru það heillin! Jamm þá vantar mig bara sexhundruð grömm til að ná tíu kílóa markmiðinu......jamm og ég hef heila 24 daga til þess! Nei að öllu gríni slepptu þá væri ég rosalega stolt ef ég næði því í næstu vigtun. Já og næsta vigtun er á þriðjudaginn kemur og það er lokavigtun þessa árs, því miður. Þá er bara að standa sig, fengum uppskriftir af fullt af smákökum á fundinum í gær og líka rauðkáli....ég er ein af þeim sem finnst ómissandi að sjóða rauðkál á Þorláksmessukvöld eða aðfangadag.
Það gengur semsagt allt voða vel í mataræðinu þessa dagana. ![]()
Ég er hins vegar á kafi í í vinnunni, þarf að gera eitthvað svo mikið í desember og janúar út af Skotlandsferðinni sem við erum að skipuleggja. Ég geri semsagt lítið annað en að hugsa um skosku hálöndin þesa dagana hérna eru tveir staðir sem ég er sérstaklega spennt að skoða Aigas og Glen Affric. Gaman, gaman!
Svo er eitt mál sem ég vil koma að en það eru virkjanamál. Ég skora á ykkur, sem hafið áhuga, að kynna ykkur fyrirhugaða virkjun Jökulsánna í Skagafirði á þessari síðu hér. Þarna getið þið skráð ykkur á lista "Við segjum NEI" sem er vinstra megin á spássíunni á þessari síðu. Ég er semsagt alfarið á móti þessum áformum....og þá vitið þið það! ![]()
Vigtun í kvöld, það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því
Fór í spinning á laugardagsmorguninn, það var alveg æðislegt. Klukkutími á hjóli og hálftími í maga, rass og læri......og potturinn á eftir. Spinning hentar mér mjög vel, er ekki eins hrifin af aerobikki.
Jólamarkaðurinn var æðislegur, keypti sitt lítið af hverju t.d. æðislega jólasveina úr tré sem kona í Dölunum framleiðir...eiginlega langflottasta trédót sem ég hef séð, verð nú bara að segja það.
Varðandi vigtina þá finnst mér ekki mikið vera að gerast, furðulegt hvað þetta kemur allt (eða réttara sagt fer) í slumpum. Bíð spennt eftir næst síðustu vigtuninni en hún er annað kvöld.
p.s. Guðrún Kristín, Inga Dóran mín er Halldórsdóttir og vinnur hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands
hopp og hí og trallala
Edda systir Hauks kom í gær og gisti í nótt, hún var að fara til Reykjavíkur í verslunarleiðangur. Ég ætla að taka mér frí í vinnunni eftir hádegið í dag en við Oddný Steina ætlum að fara til Elínar í Mosfellsdal, höfum ekkert farið til hennar síðan sorgin bankaði að dyrum þar á bæ.
Við hjónin erum að fara í matarklúbb í kvöld hjá Palla og Ingu Dóru, þar verður boðið upp á danskan julefrokost, ég ætla að hafa með mér sveppapate og grænmeti og smakka bara á kræsingunum, það á sko ekki að missa sig
Veit ekki hvað ég blogga mikið um helgina en ég hef verið að gæla við að fara á jólamarkað í Gallerí Álfhól að Bjarteyjarsandi í Hvalfirði og síðan ætla ég auðvitað að standa mig 100% í mataræðinu.
Eigið góða helgi
Klúður
Það var mikið fart á okkur í gær, ég fór suður eftir hádegið en tilefnið var þríþætt, Þórður Logi fór til læknis, bekkurinn hans Stefáns Snæs fór í keilu og bíó og Haukur þurfti að snúast eitthvað fyrir vinnuna. Þetta gekk bara allt saman vel en ég var frekar þreytt þegar ég kom heim rétt fyrir níu og lá bara í sófanum og úðaði í mig mandarínum, mataræðið fór svona fyrir ofan garð og neðan í ferðinni en dagurinn leit nokkurnveginn svona út:
Morgunmatur: brauð, smyrja, ostur, 2 mandarínur.
Hádegismatur: brauð, smyrja, egg, grænmeti.
Það sem eftir var af deginum: Popp, 1/2 líter diet kók, 4 mandarínur og kaffi!!!!!!!!!! Arg, klúður ég veit algjört klúður!!!
Er að fara í Borgarnes núna og síðan út í sveit í eina heimsókn eftir hádegið, síðan er það aerobik klukkan fimm og afslöppun heima í kvöld.
keila og mandarínur
Jæja, þá er miðvikudagurinn kominn, sonur minn er búinn að bíða lengi eftir þessum degi. Það er nefnilega þannig að bekkurinn ásamt foreldrum og kennara er að fara til höfuðborgarinnar í keilu og bíó, svaka stuð. Það hitti þannig á að litli stubbur á tíma hjá lækni í bænum seinnipartinn þannig að þetta verður notadrjúg ferð!
Ég fékk í fyrsta skipti á þessum vetri almennilegar mandarínur í gær, þær voru keyptar í Samkaup, mikið varð ég nú glöð.....og þá sjáið þið að það þarf ekki mikið til að gleðja mitt litla hjarta ![]()
Það gengur allt vel í mataræðinu, mér til gamans þá steig ég á vigtina í morgun á Evuklæðunum einum saman....mikið varð ég nú glöð en þetta er víst ekki marktækt miðað við hvaða tíma dagsins ddv vigtanirnar eru. Vel á minnst, það var ekki vigtun í gær en hún verður næsta þriðjudag (28.nóv) og þarnæsta (5.des) en þá verður þessu lokið fyrir áramót
EN þá tökum við okkur saman og verðum með okkar eigin vigtanir þar til næsta námskeið byrjar....ekki spurning ![]()
Hélt áfram í jólasveinasaum í gær þegar stubburinn var sofnaður, mikið er þetta gaman. Núna þarf maður að fara að kaupa jólakortin....hhmm ja eða búa þau til, hugmyndir óskast! Ég hef prófað að nýta gömul kort og klippt þau út og sett gervisnjó og svoleiðis, síðan hef ég gert pastelmyndir og límt á kort og vatnslitamyndir og allskonar eitthvað sem ég lærði á jólakortanámskeiði fyrir tveimur árum í Garðheimum......já og svona mætti lengi telja......
Nóg í bili!
Bráðum koma blessuð jólin
Gestur númer 1000, kvitta takk!
Þegar nálgast fer í aðventu og jól þá hef ég verið að fá spurningar varðandi mataræðið á hátíðunum. Þær hljóma eitthvað á þessa leið: "ætlar þú að svelta þig um jólin?" "hva á bara ekki að borða neitt konfekt?" hvernig getur þú sleppt jólasmákökunum?" .....og svona gæti ég haldið áfram, tek það þó fram að ekki nærri því allar spurningarnar eru svona neikvæðar. Svarið sem ég hef gefið fólki er þetta: Ég ætla ekki að ákveða að ég ætli að leifa mér eitt eða neitt, svo ég taki eitt dæmi...ég ákveð ekki að ég ætli að leifa mér að fá mér tvo mola af jólakonfekti á aðfangadagskvöld, heldur sér maður bara til og ég "díla" við það (ísl. tek á því) þá NB ef löngunin kemur yfir mig. Ég geri hins vegar eplaköku sem ég get haft sykurlausa og í stað rjóma verður það sýrður rjómi, laufabrauðið borða ég í staðin fyrir venjulegt brauð og kjötið og meðlætið það er allt í góðu með það....!
Niðurstaðan er þessi:
Ég óttast ekki nammipúkann eða sætindagrísinn á jólunum.
Talandi um jólin, ég settist niður við jólasveinasaum í gærkvöld, keypti efni í tvo eftir föndurkvöldið hjá FAK.
Síðan var ég að klára að baða blómin mín í morgun, það er algjör nauðsyn, allt annað loft í íbúðinni eftir það.
Helgin
Ég skemmti mér vel á námskeiðinu sem við vorum með á föstudag og laugardag fyrir skógarbændur, það voru ekki endalausir fyrirlestrar heldur sátu allir með hníf og tálguðu í tré. Ég verð nú að segja að ég er engin tálgunarmaður/kona þetta er jú ágætt en samt ég heillaðist ekki alveg uppúr skónum. Stefán Snær fékk að fara með mér seinnipartinn á föstudaginn og þetta á miklu betur við hann. Ég held mig bara við saumaskapinn og prjónið!
Í gær var letidagur, ég fór með strákana í heimsókn í sveitina til Önnu Lísu og það var svakafjör eins og vant er, ég gleymdi að hafa með mér handavinnu til að heimsóknin væri fullkomin. Það er ofsalega notalegt að koma til Önnu, svo fallegt heimili og æðislegt hús og krakkarnir gleymdu sér í leik. Eftir hádegið rölti ég til Eddu og Gulla en þangað hef ég örugglega ekki komið í mánuð enda varð Þórður Logi bara feiminn.
Við skelltum okkur síðan á leiksýninguna hjá leikdeildinni, það er verið að sýna "Maður á mislitum sokkum" eftir Arnmund Backman, skondin sýning sem óhætt er að mæla með, ég hló út í eitt.
Mataræðið hefur gengið svona lalala...erfitt að fara eftir því þegar maður er á námskeiði og fer ekki í mat heima hjá sér...hmhmh ætli það hafi ekki verið svona 75% DDV vænt á föstudag og laugardag, ekki gramm af sykri nema jú á leiksýningunni í gær þá fengum við okkur kaffi, kleinu og pönnsu í hléinu...smá sykur þar....
Vikan verður bara venjuleg vinnuvika en síðan er von á Oddnýju Steinu í gistingu, gaman að því
Þúsundasti gesturinn er beðinn um að kvitta fyrir sig....það verður kannski ekki í dag en vonandi á morgun
Smá hreyfing
Þessir tímar eiga að vera til jóla tvisvar í viku, ágætis byrjun að fara fast í það og taka svo sundið, stafgönguna og gönguna með. Annars vorum við Tedda að tala um að fara að skella okkur í últraspinningtíma hjá Gunnu og Erlu í Borgarnesi á laugardagsmorgnum. Það eru frábærir tímar fór oft í þá áður en ég varð ólétt, tveggja tíma puð og pottur og gufa á eftir, æði. Byrja ekki í því á morgun og sennilega ekki næsta laugardag heldur...einhverntíman þó!
p.s. engir strengir, ekki gott, þá hef ég ekki tekið nóg á
Loksins
Það sem er helst að frétta hjá mér rita ég hér í stikkorðastíl því ég hef ekki mikinn tíma fyrir blogg í augnablikinu:
Þórður Logi er aftur veikur! Jamm en hann fer líklega til dagmömmu á morgun.
Það var saumó í gær, fínn saumó gerði slatta í jóladagatalinu og borðaði slatta. Margrét Helga sem var með saumóinn var með ddv vænar veitingar, þetta eru sko algjörar dúllur í þessum klúbb.
Jólaföndur hjá FAK er í kvöld, gaman, gaman.
Síðan er að hefjast 6 vikna leikfiminámskeið hér á Hvanneyri, það verður tvisvar í viku kl 17:00 og ég ætla að vera með, ekki spurning.
Námskeið hjá vinnunni á morgun og laugardag, alltaf nóg að gera hjá mér
Tala vikunnar: -1,5
Í vigtuninni síðasta þriðjudag var ein kona sem hafði náð að léttast um 2,9 kg! Það eina sem hún breytti þá vikuna var að hún kreisti hálfa sítrónu út í bolla af vatni á hverjum morgni.....jamm rosa gott fyrir lifrina!
Skógarkot
Morguninn eftir var farið í gönguferð og um hádegisbil fóru þær kerlurnar heim en við Þórunn urðum eftir og biðum eftir körlunum okkar og börnunum. Það sem eftir var af helginni vorum við svo í góðu yfirlæti með fjölskyldunum okkar, fórum í gönguferð, tíndum köngla, borðuðum góðan mat, fórum í pottinn (börnin fóru 3 eða 4 sinnum) þetta var ofsalega góð helgi og kosturinn var samt að þetta er svo stutt að heiman, maður er innan við hálftíma að keyra í allt annað umhverfi.
Ég er strax farin að huga að næstu ferð í þennan bústað, ekki spurning.
P.S. er rosalega ánægð með ísskápinn nýja....takk fyrir hamingjuóskir og hlý komment!!
ROK
Það er rok. Kleppjárnsreykjaskóla var aflýst í dag vegna veðurs, ekkert vit í að senda börnin í þessu roki með rútu upp í sveit.
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun gnauðaði svo í húsinu því inn á einhverri skrifstofu hefur verið pínulítil rifa á glugga og þvílík læti. Við vorum tvær sem mættum á sama tíma og það var svolítið draugalegt.....tvær í þessu stóra drungalega húsi sem gnauðaði í!! Síðan þegar mínúturnar liðu þá lifnaði húsið við, líf færðist í skrifstofurnar einni af annarri.
Ef það væri ekki bara rok heldur líka snjókoma þá væri svona ekta "undirsængveðurmeðbók"
Núna hef ég farið yfir tölvupóstinn og kíkt á verkefni dagsins, komin með kaffibollann og er að fara að vinna
p.s. þennan dag fyrir 22 árum var bróðir minn skírður, man enn hvað ég var spennt að vita hvað hann ætti að heita, og fötin sem mamma keypti á hann fyrir þennan atburð, þau voru æði. Man að hún keypti þau í barnafataverslun sem var í Brekkugötunni á Akureyri, rétt við Ráðhústorgið. Svona man maður!!!!!
Smá "uppdeit"
Skruppum í hádeginu og keyptum ísskáp, tók Heiðu á orðinu og keypti einn RISASTÓRAN 180 cm á hæð ooooooo æði!!! Þið getið séð mynd af honum hér
Það sem ég sagt vildi hafa.....
Ég og Þórunn P erum búnar skipuleggja óvissuferð fyrir FAK-hópinn, förum seinnipartinn á morgun, gaman, gaman. FAK er félag aðfluttra kvenna í Borgarfirði, félagsskapurinn varð til fyrir tæpum tveimur árum síðan. Mjög skemmtilegur félagsskapur
p.s. góð heilsa gæti reyndar fengist með fáum aukakílóum!!
Sorg
Blót, blót, blót, blót, blót!!!! Pirr, pirr, pirr!!!
Þá er best að fara í Pollýönnuleik;
Ég er á túr....það er góð ástæða er það ekki?
Ég nota álfabikar, hann vigtar eitthvað.....eiginlega ekki nógu mikið huhum svona 16 grömm eða svo, nota bene tómur!
Það var fullt tungl um helgina, stórstreymi og allt það, eða var það ekki annars?
Já og lægð yfir landinu.
Verkalyf og pensilín og svoleiðis hægir á brennslu....en ég hef reyndar ekki verið að nota neitt svoleiðis.....
Ég fékk mér 100 gr af frönskum kartöflum á sunnudagskvöldið!!!! Sek!!!!!
Okey, ég þyngdist ekki þetta var þó léttingur.
Þá kemur Sigga Júlla, mjög raunsæ og yfirveguð:
Ég á eftir að skafa af mér 2,9 kg til að 10 kílóa múrinn falli. Þangað ætla ég að vera komin 23. des. 2006. Það þýðir 446 grömm verða að fara á viku fram að því. Það verður að takast, annars má ég hundur heita!!!!! voff, voff!!
Áskorunin:
Síðasta vigtun í námskeiðinu er 5. des. Líklega verður farið aftur af stað um miðjan janúar. Þannig að tímabilið frá 5. des til 15. jan, þá vorum við stöllurnar að ákveða að hittast hjá hvor annarri með eina vigt og vigta okkur....jamm og halda utan um þær tölur en markmiðið er að þyngjast ekki á þessu tímabili, það er áskorun.
Að lokum:
Muna eftir að hlæja og brosa.....já og nætursvefninn ;)
myndir
Ég tók mér frí í vinnu í dag, það er frí í skólanum og ég er heima hjá litla/stóra stráknum mínum ;)
Oddný Steina er hjá okkur þessa viku, hún er að taka tvo kúrsa í LBHÍ í tengslum við masterinn.
Vigtun í kvöld, spennandi!
Það sem ég gerði um helgina
Föstudagskvöld: kláraði Grafarþögn (bókina)
Laugardagur: Gerðist kvenfélagskona og fór á glernámskeið, gerði fimm hluti þar. Fór í te til Ingu Dóru. Fór á basar hjá gamla fólkinu á Dvalarheimilinu í Borgarnesi. Fór í afmæli til Teddu. Eldaði læri í kvöldmat.
Sunnudagur: Þreif baðherbergið. Fékk gesti. Náði í munina sem ég gerði á námsskeiðinu. Og aftur gestir. Þvoði þvott.
Á basarnum var rosalega flott kaffihlaðborð, örugglega hátt í 20 sortir, ég fékk mér flís af brauðtertu en naut þess að gefa stubbnum mínum heitan rétt og pönnsur. Afmælið hjá Teddu var eins og vant er á við meðal fermingarveislu....og ég var stapíl þar, smakkaði smá heitan rétt og einn munnbita af kaffiostaköku (úr nýjasta kökublaði Gestgjafans). Ég mundi samt segja að helgin hafi verið 100% DDV.
Varð hugsað til Dúu heitinnar um helgina, langaði svo óstjórnlega í prinspóló en hún fékk sér prinspóló á laugardögum þegar hún var á DDV fyrir nokkrum árum. Hún gekk reyndar alla leið og leyfði sér prins póló, litla kók í gleri og eina með öllu á laugardögum EN hún var líka alltaf búin að ganga brýrnar áður ;)
Fór ekkert í sund um helgina en ég ætlaði í morgun en þegar ljóst var að ég færi seint í rúmið í gærkv. þá ákvað ég að slaufa því, maður verður sko að fá góðan nætursvefn
Veit ekki hvort það verður neitt um sundferðir í vikunni þar sem ég hef trú á að ég verði á floti hmhm þið vitið frænkan í heimsókn! Spurning um að maður taki fram stafina og skelli sér í stafgöngu, hugs, hugs
Já, já það verður bara slatti að gera í vikunni, foreldraviðtal á morgun í grunnskólanum, vigtun annað kvöld og síðan er auglýstur stærsti foreldrafundur í heimi á miðvikudagskvöldið....það er fyrirlestur sem Stefán Karl heldur í beinni frá LA. Ja reyndar sá einhver hann auglýstan á þriðjudagskvöldið en það kemur allt í ljós.......
Þekkir þú mig?
Síðan langar mig til að deila öðru með ykkur. Þannig er að ég hef lengi látið mig dreyma um að fara í framhaldsnám. Snemma í haust var mér bent á þetta nám sem hljómar mjög spennandi og hentar vel í því starfi sem ég er í, í dag. Ég hef hugsað mikið um þetta og þetta kemur vel til greina. Kíkið á og segið mér síðan hvað ykkur finnst.
Sund
Jú, jú í sund fór ég! Stóð við það að hluta...vaknaði rétt fyrir klukkan sex í morgun, hafði mig til og beið eftir Eddu. Við tókum hálftíma í sundleikfimi (í innilauginni) en ég taldi það betra miðað við eymslin í hálsinum (vildi vera sem minnst úti í sundlaug að berjast um í rokinu og rigningunni). Þetta var ljúft, síðan sturta og heim, þangað var ég komin um hálf átta. Skóflaði í mig morgunmatnum (30 gr Cheriosi, 2 dl undanrennu, brauð með smyrju og hálfum banana) og aftur út og rölti í vinnuna.....og hér er ég, endurnærð og hress tilbúin að takast á við daginn
Og núna er kominn tími á kaffibolla!
Þar kom að því....
Áður en ég varð ófrísk af Þórði þá keyrði ég í Borgarnes 2-3 morgna í viku og fór í spinning, það var rosalega gott, eiginlega bara frábært. Edda mín fer í sund á hverjum morgni, í Borgarnes. Núna ætti ég að ákveða að fara með henni á morgnana, hún er margoft búin að bjóða mér með....já, ég held það bara, þá er það ákveðið.....nú syndi ég minnst 500 metra strax í fyrramálið.
Yfir og út.
Myndir
Takk fyrir innlitið á síðuna og muna að kommenta eða kvitta í gestabókina
Ekki slæmt, ha?
Á fundinum í kvöld var Kristín með hugmynd að kakódrykk, ég á ekki allt sem þarf í hann þannig að ég gerði aðra útgáfu af kakódrykk: 250 ml fjörmjólk (hálfur mjólkuskammtur), ég hitaði hana. Síðan tók ég 5 gr kakó, 10 gr. olíu (2/3 fituskammtur) og hrærði út í örlítið soðið vatn. Síðan blandaði ég þessu kakójukki saman við mjólkina og setti síðan nokkra dropa af sætuefni og balidropum út í......þetta er mjög gott