Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

jamm og jćja

31. október 2006 klukkan 16:04

Hér eru  nokkur atriði sem ég vil að séu á hreinu:

Ég fer í vigtun í kvöld.
Ég geri mér grein fyrir að ég hef ekki staðið mig vel síðustu tvær viku, m.a. vegna Dublinarferðar og "útafkeyrslu" á föstudaginn.
Ég verð ánægð ef vigtin hefur staðið  í stað.
Næstu vikur, alveg þangað til ddv-námskeiðinu er lokið (man ekki alveg, 5. eða 12. des) verða túrbóvikur.
Það verða að vera farin 10 kíló fyrir jól.
Vera jákvæð, það er fyrir öllu.
Passa upp á nætursvefninn, það er grennandi að sofa vel....(heyrði þetta í Ísland í bítið í morgun)

Hlæjandi Hlæjandi Hlæjandi Hlæjandi Hlæjandi Hlæjandi Hlæjandi

Eigið góðan dag og munið eftir að brosa, kem vonandi með nýjar, góðar tölur í kvöld eða á morgun Koss

á beinni leiđ!!!

30. október 2006 klukkan 17:20
Halló, þið eruð svo æðislegar dúllurnar mínar, bregðist manni ekki, TAKK FYRIR STUÐNINGINN!
Já það er bara svona stundum keyrir maður útaf en eins og Heiða sagði þá þýðir ekkert að halda áfram að keyra utanvegar, heldur á maður að drífa sig aftur upp á veginn. Ég er semsagt komin aftur, ferskari sem aldrei fyrr Hlæjandi
Þessi vika verður nokkuð strembin vinnulega séð, vegna veikindanna í síðustu viku er margt sem býður mín. Þarf að vinna í skipulagningu á utanlandsferðinni sem skógarbændur fara í næsta sumar, klára framkvæmdarskráningar sumarsins, síðan var ég að senda frá mér efni til ritstjóra Skessuhorns um starfsemi Vesturlandsskóga og ætli ég verði ekki að fara að uppfæra eitthvað á heimasíðunni....þannig að það er í nógu að snúast....en það er svo gaman. Svo kemur maður heim og þá er það heimalærdómurinn, þvotturinn, rykið, bleyjuskipti og eldamennskan....og síðan er maður bara búin á því og fer snemma í rúmið með góða bók eða....  hugsa um það hvað það væri æðislegt að hafa heimilishjálp sem kæmi einu sinni í viku og tæki allt í gegn, jamm þannig er venjulegur dagur í lífi mínu!! Nema eitt er ekki eins og venjulega, ÞVOTTAVÉLIN MÍN ER BILUÐ!!!!! arg! Öskrandi

útafkeyrsla, púff

28. október 2006 klukkan 01:13
Já, núna þegar þetta er skrifað er ég bara að springa. Ástæðan er sú að ég var á námskeiði og gleymdi að gera ráðstafanir varðandi kvöldmatinn. Þegar ég kom heim var maðurinn minn búinn að gera viðeigandi ráðstafanir, panta pizzu!!! Jamm og ég fékk mér þrjár sneiðar og tvær brauðstangir, púff.....síðan fékk ég mér 300 grömm af grænmeti svona til að eitthvað væri rétt.....púff.....og ég er sprungtGráðugur  Það er eins gott að efasemdarfólkið sjái mig ekki núna, þ.e. fólkið sem er alltaf að draga þennan nýja lífsstíl í efa. Það þýðir ekkert að naga sig í handarbökin út af þessari útafkeyrslu, nú er bara að bretta upp ermar og gera allt 100% hér eftir!

Lasarus

26. október 2006 klukkan 18:34
Já hann herra Lasarus er enn heima hjá mér!! Þórður Logi er ennþá kvefaður en svo til hitalaus. Stefnt var á að hann færi á morgun í dagvistunina en þá kom sms frá dagmömmunum og þær tilkynntu að það yrði lokað í dag og á morgun vegna veikinda....það eru bara flestir stubbarnir veikir semsagt. Við hjónakornin skiptum með okkur verkum tökum hálfa daga í vinnunni þessa vikuna, jamm svo er bara að krossa fingur og vona að Stefán Snær sleppi við þennan flensufjanda.
Ég var með saumó í gær. Bauð upp á sveppapaté, skyrtertu og eplapæið góða úr Vikunni, kaffi, te, sykurlaust gos (allt DDV vænt) og smá súkkulaði og doritos (fyrir sukkarana í hópnum). Þetta var bara frábært, þó ég segi sjálf frá Glottandi
Ég laumaðis á vigtina í morgun...veit það er ekkert að marka þar sem þetta er baðvigtin og klukkan var bara 10 eða eitthvað svoleiðis og ég er vön að fara í vigtun í Borgarnesi eftir kvöldmat....meira röflið í mér....en hvað um það þá virðist ég vera að léttast, þrátt fyrri sukkið og svínaríið um síðustu helgi....EN þetta kemur allt saman í ljós næsta þriðjudagskvöld því þá er vigtun!!!!!!! oooooo get eiginlega ekki beðið.
Það er vinnuhelgi framundan, það er námskeið fyrir skógarbændur á Vesturlandi seinnipartinn á morgun og á laugardag, ég verð þar....eitthvað að skipta mér af eins og vanalegaGlottandi Svo stendur til að gera slátur um helgina, það er bara sýnishorn af slátri, bara til að fá  smá smakk. Og ætli ég taki nú ekki eitthvað í jóladagatalið sem ég var að kaupa mér, þær í föndurbúðinni pöntuðu það fyrir mig fyrir meira en mánuði síðan og það var loksins að koma núna, klára það ekki fyrir þessi jól, stefni bara á næstu (það er 45 x 60 cm)!!
Nóg í bili Hlæjandi karlinn kominn heim og ég þarf að fara að vinna.

Tenglar

24. október 2006 klukkan 15:59
Ég er búin að bæta nokkrum tenglum við, látið mig vita ef þið viljið láta mig fjarlægja eða bæta ykkur við. Glottandi
Það voru kleinur á kaffistofunni áðan, mikið rosalega kölluðu þær á mig!!!! EN ég náði að standast freistingunaSaklaus

Hundrađ prósent

24. október 2006 klukkan 13:30
Jæja þá er alvaran tekin við. Ég náði 100% degi í gær, það var pínu erfitt því ég bara nennti ekki að elda. Það reddaðist rétt fyrir horn og ég féll ekki í freistingar. Þórður Logi er lasinn, hann var með mikinn hita og kvef þegar við komum heim og skiptumst við á að vera með hann heima. Hitinn var um 38,5 í gær og vonandi veður  hann ekki hærri í dag. Stefán Snær er í prófum þessa dagana þannig að mikill tími fer í að hjálpa honum að undirbúa sig fyrir þau en hann hefur mikinn metnað og vill læra. Þeir sem þekkja til vita að það  er greinilegt að það er af sem áður var......... en hann Stefán Snær hefur verið heldur á eftir í öllu sem viðkemur námi og hefur skólagangan verið blóð sviti og tár, því viðhorf hans til skóla og náms hefur ekki verið gott.
Þess vegna er ég mjög ánægð með að hann vilji læra og vilji gera vel Glottandi

Dublin

23. október 2006 klukkan 14:40
Jæja þá er ég komin aftur, ca einu kílói þyngri EN hress og endurnærð eftir kærkomið frí Brosandi
Þetta var bara gaman. Við röltum heilmikið um fórum á pöbba og í búðir....sáum að því gátum við ekki sleppt þegar við sáum verðlagið. Haukur verslaði helling af gallabuxum og peysum, síðan var Stefán Snær dressaður upp en ekki veitti af drengurinn er að stækka svo mikið. Þórður Logi fékk minnst en hann er ágætlega settur fatalega séð. Ég keypti mér skó, mjög vandaða og fína vetrarskó, nærföt og peysu. Auðvitað keypti ég KJÓL æðislegan, ég tróð mér í hann en hann verður fínn um jólin Glottandi hann er fjólublár algjört æði!
Síðan röltuðum við í Guinness storehouse. Það var mjög gaman, kíktum á safnið og fórum síðan á efstu hæð í byggingunni en þar er útsýnisstaður og þar fékk maður sér einn Guinness og naut þess að horfa yfir borgina. Við vorum heppin með veður þannig að útsýnið var frábært. Á leiðinni heim tókum við konurnar hestvagn og það var heilmikið ævintýri, karlarnir ætluðu að labba heim en við komumst að því  á leiðinni á Temple Bar að þeir tóku taxa og ætluðu að vera komnir á undan okkur, voða fyndnir!!
Við gerðum vel við okkur í mat og drykk í þessari ferð, fyrsta kvöldið fórum við á indverskan stað, hann var svona lala. Föstudagskvöldið var æði þá fórum við á steikhús Shanahan´s (minnir að það sé skrifað svona) ég hef aldrei farið svona flott út að  borða, maturinn og þjónustan var ÆÐI, reikningurinn var svolítið hár (280 evrur fyrir okkur hjónin) en.....ha maður er ekki um hverja helgi í Dublin. Mæli með þessum stað hann er við Stephens Green.
Laugardagskvöldið var kvöld vonbrigðanna, fórum á veitingastað sem er í eigu Bono í U2 maturinn var ekkert spes, þjónustan léleg,  afundnir og leiðinlegir þjónar og frekar dýrt miðað við kvöldið áður (200 evrur fyrir okkur hjónin)....og svo var hann Bono ekki þarna!! arg...grín!
Pöbbarnir voru æði og írska kássan sem ég fékk mér á Gallagher´s rétt eftir að við komum á fimmtudaginn var snilld!
Kannski skelli ég inn myndum úr ferðinni við tækifæri.

NÆSTA MÁL Á DAGSKRÁ ER 100% DDV......NÚ Á AÐ TAKA Á ÞVÍ  Glottandi

Er alveg í losti....

18. október 2006 klukkan 13:16
Hlæjandi já ég verð að segja það ég er bara í losti...og  rosalega, æðislega, svakalega ánægð...jejejjejejjejejjejejejjejjeje hvað haldið þið að vigtin hafi sagt í gærkveldi. Það er sko öruggt að nú verð ég að standa mig í Dublin! Það fóru semsagt -1,9 til viðbótar. Kíkið á undirsíðurnar, "þyngd og BMI" og "markmið".....ooooooo ég er svo montinnBrosandi

Síðan er það næsta mál á dagskrá. Það er Dublin á morgun! Þannig að það verður nóg að gera í dag. Ég ætla reyndar að reyna að hætta klukkan þrjú í vinnunni til að klára að gera drengina klára en Haukur ætlar að skutla þeim norður í Skagafjörð til mömmu og pabba en þar verða þeir í góðu yfirlæti fram á sunnudag. Þórður Logi fær að fara með ömmu sinni í vinnuna í  leikskólanum á Hólum og Stefán Snær fær að fara í grunnskólann á Hólum með frændsystkinum sínum.

Þessi Dublinarferð er jómfrúarferð matarklúbbsins en við erum búin að vera í matarklúbb síðan 1999, samtals tíu manns....þó misgáfulegir þannig að það er spurning um að einhverjir séu bara hálfir Ullandi (smá lókalhúmor) En þetta verður spennandi og örugglega mjög gaman.
Ég mun líklega ekki blogga aftur fyrr en eftir helgi og þá með ferska ferðasögu í farteskinu.

Ef ég hef tíma seinna í dag þá mun ég láta taka mynd af mér, svona til að sýna muninn fyrir og eftir 6,4 kg!!! Glottandi

Dćs

17. október 2006 klukkan 15:07
Já í dag dæsi ég bara. Dagurinn í gær var mjög erfiður bæði andlega og líkamlega. Keyrðum norður í gærmorgun fórum að jarðaförinni svo var brunað út í Laufás þar sem fjölskyldan og vinir hittust. Boðið var uppá kaffi og "þurrabrauð" eins og Inga frænka orðaði svo skemmtilega. Hitti fullt af ættingjum sem maður hefur lítið sem ekkert hitt síðan í síðustu jarðaför, já ég veit....en því miður þá er það bara svona. Síðan brunuðum við aftur suður á leið og vorum komin heim um klukkan hálf tíu.....og ég var komin í rúmið korteri seinna....jamm og meira dæs. Það er óskaplega fallegt haustveður úti, það hefur gránað í fjöll og sólin skín. Lífið gengur sinn vanagang og því best að fara að vinna. Set inn nýjar tölur í fyrramálið Glottandi

Sunnudagur

15. október 2006 klukkan 21:41
Ó já núna er sunnudagur. Ég hef afrekað að gera ekkert af því sem ég ætlaði að gera í dag. Ég ætlaði t.d. að taka húsið í gegn, ég ætlaði í laaangan göngutúr með Þórunni og ég ætlaði að þvo þvott. Eina sem ég hef gert í dag er að næra mig, drekka kaffi og svo henti ég jú reyndar í eina vél....það er allt og sumt. Úti er rok og rigning ekkert skemmtilegt veður.
Ég hef staðið mig svona lalala í mataræðiðnu núna um helgina, ég var á námskeiði í Hveragerði á föstudag og laugardag, borðaði engan sykur, jebbs þó voru kleinur og svoleiðis í boði í kaffipásum, maturinn var ekki eftir bókinni en ég fór varlega í hann og fékk mér mikið grænt með...þannig að þetta slapp allt. Ég er alls ekkert ósátt við sjálfa mig og það er fyrir öllu. Aðfaranótt laugardagsins gisti hópurinn á hótel Eldhestum, fínasta hótel, mæli með því. Fékk mér einn lítinn bjór fyrir svefnin, já ég veit það er svindl en það var Egils Gull en ég bara varð að smakka hann, held það sé íslenskt bygg í honum......jamm maður verður að smakka allar íslenskar landbúnaðarafurðir sem koma á markaðinn, get ekki verið þekkt fyrir annað, landbúnaðarmenntuð manneskjan!

Svo er það jarðaförin á morgun.
Læt heyra í mér aftur á þriðjudag og pottþétt á miðvikudag en þá eru væntanlegar nýjar tölur Glottandi

Lítiđ ađ gerast...

13. október 2006 klukkan 16:39
.......það er þetta með hreyfinguna....það gerist ekki mikið hjá mér en það koma tímar og koma ráð Glottandi

Athygli

13. október 2006 klukkan 13:58
Eitt kvöldið í vikunni þá var ég í hópi kvenna og auðvitað var farið að tala um uppskriftir....en ekki hvað!! Þá var einhver sem sagðist hafa séð svo æðislega uppskrift af köku hjá einum átaksbloggara, gott mál EN þá segir ein konan "já þú meinar hjá einhverri athyglissjúkri"!!!!! Ó já þetta sagði hún.......og þá fór ég að hugsa og margar spurningar hafa vaknað í kjölfarið. Er ég athyglissjúk af því ég legg spilin á borðið og er í átaki frammi fyrir bloggheimum? Hvað segið þið hinar um þetta, eruð þið líka athyglissjúkar. Ég tek það fram að konan hefur ekki hugmynd um bloggið mitt og það getur vel verið að hún hafi slegið þesu hugsunarlaust fram en kommon! Hissa

Að öðru, það eru annasamir dagar framundan og ekki víst ég geti bloggað mikið á næstunni en ó þó!! Er að fara í Hveragerði í dag á námskeið, verð þar líka á morgun. Sunnudagurinn verður tekinn í það að þrífa heima hjá mér en á mánudaginn er jarðaför, vinna þriðjudag og miðvikudag og Dublin á  fimmtudag.....jebbs. 

Á mánudaginn förum við norður á Akureyri á jarðaför elskulegrar frænku minnar hennar Dúu minnar en hún lést sl sunnudag eftir áralanga baráttu við krabbamein, kona á besta aldri, frábær frænka og hagleikskona mikil. Ég á örugglega eftir að segja ykkur eitthvað frá henni Dúu þegar minningarbrotin koma upp í hugann. Þið sem þekkið mig vitið hvað hún var mér kær.

Sjáumst síðar og eigið góða helgi Brosandi

Freistingar

11. október 2006 klukkan 19:16
Freistingar hafa verið á hverju strái þessa dagana. Maður hefur þurft að taka á honum stóra sínum til að láta ekki glepjast af þeim öllum. Þessar freistingar hafa t.d. verið í formi útlandasúkkulaðis á kaffistofunni. Það er nefnilega þannig á kaffistofunni minni að það eru óskrifuð lög að allir þeir sem fara til útlanda koma með nammi á kaffistofuna. Þessi siður er að ég held allsstaðar í heiðri hafður...... og þessu vil ég breyta! Ég veit að auðvitað er það mitt val að fá mér en þetta er bara svo andsk erfitt stundum. Þegar ég kem heim frá Dublin þá mæti ég með epli.....æðislega vinsæl!!  Ég hef staðist þessar freistingar en mikið rosalega hefur það verið erfitt. Sérstaklega í gær þá leið mér ekkert rosalega vel þegar ég kom úr vinnunni og langaði þá til að fá mér eitthvað til að lækna "báttið" mitt.........og arg hvað átti ég að fá mér? Ég byrjaði á þvi að rífa niður epli og þurrsteikja á pönnu með slatta af kanil mmmmm rosalega gott EN þetta var ekki nóg....þá gerði ég rótsterkt kaffi og flóaði fjörmjólk og þeytti, stráði síðan kanil yfir og drakk mmmmm þvílík nautn!! Annars hef ég staðið mig ágætlega í mataræðinu, reyni að peppa aðra bloggara upp eða öllu heldur að argast í þeim Fýldur ég er svo rosalega skemmtileg stundum, ég sé alltaf lausnir á öllum vandamálum hjá öðrum en yfirleitt ekki mínum vandamálum. Núna þjáist ég af heimþrá á mjög háu stigi, þetta hellist alltaf yfir mig á haustin, þó mismikið....reyndar byrjaði þetta óvenju snemma þetta árið eða í vor!!! En hvað um það þá er ég komin á fremsta hlunn með að setja kofann á sölu og sækja um vinnu í minni heimasveit......Jæja en þá er best að hætta að jagast hér, eiginmaðurinn verður heima í kvöld og þá get ég nöldrað í honum, ef hann verður ekki mjög móttækilegur þá jagast ég meira í ykkur á morgun Glottandi

p.s. súkkulaðið á kaffistofunni kláraðist í hádeginu, eins gott að það fari enginn að koma frá útlöndum á morgun!

Hann á afmćli í dag...

10. október 2006 klukkan 13:57
...hann Árni Gísli bróðir og hann er 22 ára....það er svooo stutt síðan maður var að vesenast með hann, skipta á honum og dressa hann upp í allskonar múnderingar. Það var ekkert leiðinlegt að fá eina svona lifandi dúkku til að leika sér með Hlæjandi TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ BRÓSI

Gleymdi ađ segja....

09. október 2006 klukkan 19:35
....að ég er búin að bæta einni undirsíðu við sem ég kalla hreyfingu, kíkið á. Hlæjandi

Pönnukökur mmmm!

08. október 2006 klukkan 16:38
Mér hefur gengið ágætlega að fara eftir DDV en þó koma erfiðir dagar....eins og t.d. í fyrradag, þá fór ég upp í sveit að vinna og var boðið í kaffi sem var okey NEMA í boði voru upprúllaðar pönnsur!! Jamm og þær voru svo girnilegar, kölluðu á mig, báðu mig að borða sig....jebbs svo ég fékk mér 4 eða 5 stk. OG ÉG SÉ EKKI EFTIR ÞVÍ, ég krossaði bara í extra grúppuna og einn ávöxt!!!! (svona til að réttlæta þetta). Um kvöldið var ég áfram á einhverju flippi, langaði svo mikið í eitthvað hræðilega djúsí. Ég brá á það ráð að elda svakalega einfaldan kjúlla með fullt af allskonar grænmeti og hvítlaukssósu mmmm og ég varð svo södd að löngun mín í eitthvað óhollt hvarf og þar með reddaðist það Glottandi
Einmitt þennan pönnukökudag þá hringdi Edda í mig og plataði mig með sér í stafgöngu, rétt fyrir kvöldmat, við tókum u.þ.b. hálftímagöngutúr og það var æði!!
Dagurinn í dag er ekkert skipulagður, fyrir utankvöldið en þá fer ég á Friendtexkynningu heima hjá Hvönninni, Sigrún Sólmunds sem starfar hjá Kristínu vigtarráðgjafa ætlar að koma með fötin og kynna þau fyrir okkur, það verður gaman.

haustlitir

06. október 2006 klukkan 16:31
 Haustlitirnir eru svo æðislegir núna. Ég mæli með því að fólk noti góða veðrið og fari út og njótið haustsins Brosandi Tók rúnt í gær naut litanna í botn og gat meira að segja tínt krækiber...ekkert frostbragð.

rútína

06. október 2006 klukkan 13:30
Það er alveg merkilegt hvað ég hugsa mikið þegar ég er að keyra.....og það er eitthvað svo rosalega gáfulegt, síðan þegar ég sest niður við tölvuna þá man ég bara ekkert hvað það var sem ég ætlaði að skrifa. Sama á við þegar ég er að fara að sofa, ég hugsa í hundrað hringi....spurning um að fá sér digtafón Tala af sér 
Annars er allt við það sama, vinna, skutla, elda, þvo, sofa...... og allt í rútínu og þ.a.l. 100% DDV.
Það var reyndar saumó á miðvikudagskvöldið, rosalega hollur og góður saumó, það var æðislegt túnfisksalat í boði mmmm. Innihaldið: túnfiskur, rauðlaukur, paprika og kotasæla alveg geggjað.
Oddný Steina kom og fékk gistingu hjá okkur hún var að fara á Strandirnar að skoða sauðfjárbú m.t.t. mastersverkefnisins. Í gær kom Elín Bergs færandi hendi frá USA kom með tvo boli og tvennar buxur á Þórð Loga..... hún er líka að byrja í master. Nú vantar bara að Ingibjörg fari að láta sjá sig...... (vorum mikið saman þessar fjórar á háskólaárunum). Annars hittumst við alltaf fyrir aðventu og skellum okkur í Garðheima og verslum okkur í aðventukransa, förum svo í Mosfellsbakarí og kaupum eitthvað djúsí með kaffinu og förum svo upp í Mosfellsdal (heim til Elínar) og gerum kransana, gaman að svona hefðum.
Meira síðar Hlæjandi

Ný tala

04. október 2006 klukkan 03:04
Jeij Svalur Hvað haldið þið? Það stefnir í að fyrsta markmiðið standist...vantar bara 500 gr í 5 kíló. Það fóru semsagt 1,8 kg síðan í síðustu vigtun ó já kíkið bara á "Þyngd og BMI".......jamm, ég er bara rosalega ánægð með þetta, þetta er bara frábært Hlæjandi og svo er bara að halda áfram.
Kvittið endilega í gestabókina eða kommentið.

flakk

03. október 2006 klukkan 16:25
Það hefur ekki farið mikið fyrir færslum hjá mér undanfarna daga en það er vegna þess að það hefur verið mikið flakk á mér. Laugardagurinn var reyndar rólegur, skellti mér í göngutúr um "bæinn" kom m.a. við út í fjóskennslustofu en þar fór fram námskeið í tálgun, mjög spennandi. Við tókum sunnudaginn snemma og brugðum okkur til Reykjavíkur (ég og drengirnir) fórum í morgunkaffi til Herdísar og Einars, brugðum okkur síðan í eina búð í Kringlunni og brunuðum svo heim á leið og enduðum í miðdegiskaffi hjá Þórunni H. Í gær fór ég svo aftur suður og tók flug til Egilsstaða á fund (ath. í hádeginu var boðið upp á lambakjötsrétt!! Gráðugur) var ekki komin aftur heim í kotið mitt fyrr en rétt fyrir miðnættið.....oooooo mikið var erfitt að vakna í morgun. Dagurinn í dag lofar góðu, ég slæpist náttúrulega í vinnunni og blogga en ég vinn það upp. Síðan er bara spennandi hver tala dagsins verður, það er sko vigtun í kvöld....dararæ!Glottandi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.