annir og appelsínur
Góða helgi!
stuð stuð stuð
tilraunaeldhúsið
Núna sit ég heima með litla stubbinn minn, hann er lasinn, ekkert alvarlegt bara kvef, hósti og smá hiti. Úti er sól og blíða, það eru svona skilyrði að mér finnst allt vera skítugt....spurning um að draga bara fyrir gluggana svo sólin komist ekki inn!! Annars tek ég kannski fram tuskuna þegar drengurinn sofnar og ræðst á eldhúsið...ætlaði hvort eð er að gera hausthreingerningu einhverntíman, jólahreingerningin í fyrra varð bara kattarþvottur og var frestað til vorsins en í vor var svo gaman að vera í garðinum að vorhreingerningin varð líka bara kattarþvottur svo núna gengur þetta víst ekki lengur!!! Annars er haustið ekki nærri því búið laaangt í fyrsta vetrardag
sól sól skín á mig
Mataræðið gengur svona allt í lagi fyrir utan "staðfestasamvistirveisluna" þar var ýmislegt framandi í boði t.d. smjördeigsbaka með túnfiski, rúsínum, ólífum og kryddi, brauðterta með majo, blönduðu grænmeti og kjúlla, röndótt hlaupterta, marsipanterta með vanillukremi og ostar í úrvali. oooog ég smakkaði allar sortir!!! ooooooog svo drakk ég bjór hmhmhmhhm jamm ég veit aaaaarggggggg
Síðan á að taka helgina með trukki og malla eitthvað girnó, kannski baka ég eitthvað DDV vænt, hver veit
Að lokum, til hamingju með afmælið pabbi og Steinunn Hj.
saumó, fundur, veisla, keppir
Fór á fund í Kleppjárnsreykjaskóla í gær en það var verið að kynna námsefni vetrarins hjá 5. bekk. Lýst vel á þetta þau eru ekki nema 9 í bekknum og kennarinn er indælis kona sem ætlar að leggja mikla áherslu á íslenskukennslu m.a. stafsetningu og ljóð. Það finnst mér frábært. Eftir fundinn brunaði ég í saumó og stóð mig svona lalala þar, fékk mér sprite zero og svo freistaðist ég í Doritos og salsa mmmm og enn sem fyrr ekkert sætt (nema það er örugglega sykur í sölsunni). Var frekar löt að prjóna en ég er að prjóna aðra lopapeysu á mig...hin er orðin svo slitin sem ég prjónaði í fyrra því ég er bara alltaf í lopapeysu...ohhh svo hlýtt og gott.
Það gerðist líka ýmislegt í vinnunni í gær, minn ágæti yfirmaður bauð mér og hinum starfsmanninum hjá verkefninu (Vesturlandsskógum) í veislu....jamm við fengum boðskort þar sem okkur var boðið ásamt mökum í veislu í kvöld (21.sep) til að samfagna honum og unnustanum í tilefni af því að þeir eru að fara að staðfesta samvist sína hjá sýsló!
Semsagt brjálað að gera hjá mér (og ég slugsa bara og blogga....)
Nú styttist í hádegismat, er með 300 gr. salat, 50 gr af kjúlla, 25 gr.feta og 3 tsk olía með kryddi....mmmrosagott
Tala vikunnar
Nú er eins gott að maður haldi rétt á spöðunum því næsta vigtun verður ekki fyrr en eftir 2 vikur þ.e. 3. okt. Við skutlurnar verðum bara að vera duglegar að peppa hvor aðra upp og styðja. Svo þarf ég að drífa mig í að gera eitthvað í myndamálum.....þetta gengur bara ekki lengur
Hreyfing
Svo er vigtun í kvöld....spennandi!!
Hugs, hugs
Var að bæta Lenu í tenglahópinn. Jæja verð að hlaupa upp á kaffistofu í mat.....ég er sko með grænmetissúpu og 2 egg og brauð mmmmm namminamm!
Ekki alveg 100%
Við fjölskyldan fórum norður í Skagafjörð um helgina. Tókum okkur frí í vinnu frá hádegi á föstudag og brunuðum af stað. Ferðin gekk vel, fórum beint í kaffi til tengdó og auðvitað var hún með svoleiðis kræsingar að borðið svignaði (næstum því sko)...ég fékk mér kaffi og síðan bara eina appelsínu! Ég hefði ekki trúað því að ég gæti þetta, hef ekki fundið fyrir sykurlöngun í eina mínútu. Síðan vildi tengdó að við borðuðum hjá henni og það var allt í lagi en það voru kjötbollur og nóg var til af grænmetis/ávaxtasalati, er samt ekki viss um að hlutfall grænmetis hafi verið nóg en eigum við ekki bara að segja að þetta hafi verið 90% DDV dagur. Í gær fór dagurinn vel af stað, ég mamma og yngri stubburinn minn fórum á Akureyri við fórum frænku minnar og borðuðum þar í hádeginu, skyr brauð og tómatar lágu þar (en örugglega ekki nógu mikið af tómötum). Þegar við vorum komnar heim í sveitina þá fór mamma að gera kvöldmatinn til en það var hangikjöt!!!!! EN það var boðið upp á DDV rauðkál, Bonduelle grænar baunir (ekkert Ora), soðnar rófur, blómkál, belgbaunir, sykurbaunir og baunaspírur....mmmmmm þetta var rosagott en svindl dagsins var uppstúfur og rjómi en í desert voru ferskir ávextir og ber í einhverju rjómagutli en ég fékk mér reyndar mjög lítið af því. Laugardagurinn var semsagt ca 70% og enn og aftur enginn sykur freistaði. Dagurinn í dag er síðan 100% borðuðum morgunmat í sveitinni minni en fórum síðan til tengdó í hádeginu í kjötsúpu, brunuðum síðan heim á leið.
Svona var semsagt helgin okkar! Ný vinnuvika að hefjast og maður farinn að skipuleggja matinn, ætli það verði ekki fiskur í hvert mál eftir allt þetta kjötát, geri svona frekar ráð fyrir því. Síðan er vigtun á þriðjudag, bíð spennt eftir því.
Magni flottastur
Gærdagurinn var 100% dagur hjá mér og stefnir í að þessi dagur verði það líka, mér gengur svo vel að fara eftir þessu prógrammi þegar rútínan er í lagi. Er svolítið hrædd við helgina því við ætlum að fara norður í Skagafjörð og líka að kíkja aðeins á Akureyri en norðurferðirnar einkennast af endalausum matarboðum og látum....EN ég ætla að halda mínu striki!
mont, mont
Tilraun 1!
Ástæðan er sú að ég byrjaði í DDV fyrir viku síðan. Eins og einhver sagði (las það einhversstaðar) þá er ég líka sérfræðingur í að fitna, hef alveg síðan á unglingsárum verið yfir kjörþyngd en ég veit að ef ég tek ekki í taumana núna þá á þetta bara eftir að versna. Ákvörðun mín að ganga til liðs við DDV er mjög meðvituð en það sem hefur veitt mér óendanlega trú á þessu eru átaksbloggarar en ég hef bókstaflega legið yfir bloggsíðum þeirra og finnst ég bara þekkja þessar hetjuralveg heilmikið! Ég á nokkrar vinkonur sem eru að breyta um lífsstíl eins og ég og ætla ég að gera allt sem ég get til að styðja þær og "peppa" þær upp.
Ég ætla að setja inn myndir og fleira næstu daga....vonandi!