Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

venjulegur morgun

22. mars 2011 klukkan 06:41
Fyrsti venjulegi morguninn í laaangan tíma!!! Vaknaði klukkan 6:20 og viti menn, Haukur var heima!! Hafði ekki farið í útkall í nótt eins og tja ótrúlega marga morgna undanfarið. Manni bregður bara!! Þannig að morgunrútínan var ansi þægileg, klæða, borða, nesta og fara. Haukur og Þórður Logi fóru út úr dyrunum kl 7:05 og þá er dagurinn framundan hjá mér, ekkert skutl og vesen, bara að græja ýmislegt hér heima, henda í þvottavél  og setjast við tölvuna og byrja að vinna. 
Það er mikil vorstemming hér, 10°C í gær og sól og það sama er upp á teningnum í dag. Snjórinn hefur minnkað alveg rosalega síðustu daga, ég gæti trúað að með þessu áframhaldi verði hann allur farinn eftir tvær vikur.  
 
Ég fór út að skokka í gær, Gunna kom og við byrjuðum á að ganga niður á Ekornveien og athuga með Bríeti, gengum svo út á skógarstíginn meðfram teinunum og byrjuðum að skokka þar. Færið var ansi þungt og blautt, mikið krap, vatn og drulla. Þetta var mjög hressandi túr, ég var rennadi í fæturna þegar heim var komið en að sama skapi ferlega fersk.
Það er enginn skokktúr á planinu í dag en það gæti samt alveg farið svo að maður bryti daginn upp einhverntíman og taki sér göngutúr. Þórður Logi fer heim með vini sínum í dag og verður sóttur um sjö leytið þannig að ég ætti að ná langri rispu í vinnu og þarf líklega alveg á fersku lofti og fullt af sólargeislum að halda.  
Eigið góðan dag, nú ætla ég að fá mér gott kaffi. 

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.