nýtt líf!!!
01. desember 2010 klukkan 23:59
Mikið rosalega er nú gott að vera byrjuð að æfa aftur. Mér finnst ég öðlast líf!!!! Ég finn líka hvað það er manni mikilvægt að komast út á meðal fólks, því hér sit ég heima og læri daginn út og daginn inn án samskipta við nokkurn mann. Ég ætla nú ekki að gera lítið úr því að auðvitað hef ég samskipti við manninn og drengina en maður þarf líka að komast meira út, skipta um umhverfi, eiga samskipti, tala norsku og svo framvegis. Þetta er einmitt það sem ég verð að passa mig á þegar ég fer í lokaritgerðarvinnu að sleppa ekki hreyfingunni, halda rútínu. Annars er ég farin að leita logandi ljósi að markmiði hreyfingarlega séð sem ég get einbeitt mér að, það er of langt í Reykjavíkurmaraþonið, Jökulsárhlaupið er ca mánuði fyrr en það er of langt í það líka. Verð að finna eitthvað hlaup til að stefna að sem væri í mars/apríl - held að það væri fínt. Ef einhver sem les þetta hefur einhverjar tillögur að hlaupaviðburði endilega að kommenta 
Í kvöld fór ég í Spin 2 tíma. Þetta er klukkutíma spinningtími, með fínni tónlist, góðum þjálfara og skemmtilegum hóp af fólki. Mikill sviti og og ófáar kaloríurnar sem fengu að fjúka. Stefán Snær fór líka í ræktina, skellti sér á hlaupabretti og fór svo í tæki, hann er að reyna að hafa það fyrir fasta reglu að fara í ræktina tvisvar í viku.
Já, þetta var blogg dagsins
góða nótt og sofið rótt