laugardagsstatus
04. desember 2010 klukkan 15:00
Dagurinn í dag er ósköp venjulegur laugardagur. Við Haukur fórum í ræktina í morgun, hjóluðum eins og við ættum lífið að leysa og fórum svo og lyftum lóðum - þessi tími hét SuperSpinPump, þá er hjólað í 45 mínútur, og gerðar æfingar með lóð og stöng sem miðuðust við að æfa efri hluta líkamans í 45 mínútur. Ansi góð kombinasjón.
Það er svo agalega kalt úti að við erum ekkert að þvælast í útihlaupum fyrst við erum í aðstöðu til að nýta okkur aðstöðuna, tímana og þjálfarana inni í Ås treningsenter. Núna er t.d. -17°C en það styttist í að það hlýni því það er afar dimmt yfir og og snjókomulegt þannig þá minnkar frostið eitthvað en svo skilst mér að það eigi nú að aukast aftur í næstu viku.
Ég er að fara í fyrsta prófið á mánudaginn. Ætla að nýta það sem eftir lifir dags í dag í að æfa mig að reikna ýmis dæmi, koma skipulagi á gögnin sem ég má taka með mér í prófið
Haukur og drengirnir skruppu í bíltúr, þannig að nú er best að ég nýti næðið.
Semsagt:
Hreyfing - tékk.
Lærdómur - tékk.
Kvöldmatur......uuuuu held það verði steiktir kjúklingabitar með einhverju sem á eftir að ákveða.
Eigið góðan dag
Það er svo agalega kalt úti að við erum ekkert að þvælast í útihlaupum fyrst við erum í aðstöðu til að nýta okkur aðstöðuna, tímana og þjálfarana inni í Ås treningsenter. Núna er t.d. -17°C en það styttist í að það hlýni því það er afar dimmt yfir og og snjókomulegt þannig þá minnkar frostið eitthvað en svo skilst mér að það eigi nú að aukast aftur í næstu viku.
Ég er að fara í fyrsta prófið á mánudaginn. Ætla að nýta það sem eftir lifir dags í dag í að æfa mig að reikna ýmis dæmi, koma skipulagi á gögnin sem ég má taka með mér í prófið
Haukur og drengirnir skruppu í bíltúr, þannig að nú er best að ég nýti næðið.Semsagt: