Það sást dráttarvél (e.tractor) í Reykjavík city!!!!!!
Þetta hér er mjög algeng sjón á götum Noregs, bæði snjórinn og ekki síður dráttarvélin. Það er næstum hægt að segja að hvert sem maður keyrir eitthvað þá sér maður svona farartæki, lendir á eftir svona tæki eða mætir því. Það þykir ekkert stórmál, auðvitað sneiða þeir sem þessi tæki keyra frá eins og aðalæðunum ef þeir eiga ekki erindi þangað eins og t.d. E6 (Evrópuvegur nr 6) en hér er það talið mikil gæfa að svona tæki séu til. Því nánast allar götur, plön og göngustígar eru mokuð með dráttarvélum. Ástæðan er m.a. sú að bændur eiga fullt af dráttarvélum sem þeir nýta lítið yfir vetrartímann, því geta þeir leigt þær til snjóruðningsfyrirtækja og fengið þar með innkomu (peninga) inn á vélina á þeim tíma sem hún vélin (fjárfestingin) væri annars bara lokuð inní geymslu. En þessi pistill átti reyndar ekkert að fjalla um þetta. Ætlaði bara að lýsa því hvað ég og Haukur urðum hissa þegar við sáum að allavega tveir íslenskir fréttamiðlar þóttu ástæða til að slá upp frétt um að það var dráttarvél í bænum (Reykjavík) í gærmorgun....úffff!! Hugsanlega tafði hún umferðina, ég veit ekki, en hvað ætli hún hafi tafist um margar mínútur? En kommon er þetta svona mikið stórmál?? Hvert stefnum við ef við getum ekki unnt einhverjum að keyra á dráttarvéllinni sinni inní Reykjavík? Hvað búa aftur margir þarna? Í Osló búa 600 þúsund manns, hér á okkar svæði s.k. Follo sem er sýslan sem Ås, Ski, Dröbak og fleiri bæir eru í búa í kring um 125 þúsund manns. Ég held ég sé nærri sveitinni, dráttarvélum og hægri umferð hér heldur en á Íslandi og spyr því er það alveg eðlilegt?
Af hverju þetta stress?