Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Athygli

13. október 2006 klukkan 13:58
Eitt kvöldið í vikunni þá var ég í hópi kvenna og auðvitað var farið að tala um uppskriftir....en ekki hvað!! Þá var einhver sem sagðist hafa séð svo æðislega uppskrift af köku hjá einum átaksbloggara, gott mál EN þá segir ein konan "já þú meinar hjá einhverri athyglissjúkri"!!!!! Ó já þetta sagði hún.......og þá fór ég að hugsa og margar spurningar hafa vaknað í kjölfarið. Er ég athyglissjúk af því ég legg spilin á borðið og er í átaki frammi fyrir bloggheimum? Hvað segið þið hinar um þetta, eruð þið líka athyglissjúkar. Ég tek það fram að konan hefur ekki hugmynd um bloggið mitt og það getur vel verið að hún hafi slegið þesu hugsunarlaust fram en kommon! Hissa

Að öðru, það eru annasamir dagar framundan og ekki víst ég geti bloggað mikið á næstunni en ó þó!! Er að fara í Hveragerði í dag á námskeið, verð þar líka á morgun. Sunnudagurinn verður tekinn í það að þrífa heima hjá mér en á mánudaginn er jarðaför, vinna þriðjudag og miðvikudag og Dublin á  fimmtudag.....jebbs. 

Á mánudaginn förum við norður á Akureyri á jarðaför elskulegrar frænku minnar hennar Dúu minnar en hún lést sl sunnudag eftir áralanga baráttu við krabbamein, kona á besta aldri, frábær frænka og hagleikskona mikil. Ég á örugglega eftir að segja ykkur eitthvað frá henni Dúu þegar minningarbrotin koma upp í hugann. Þið sem þekkið mig vitið hvað hún var mér kær.

Sjáumst síðar og eigið góða helgi Brosandi
 
Tótan
Nebbs! Engin athyglissýki!!!
Ég rakst á eina á ataksblogglista og þar er líkl hægt að tala um slíka veiki því bloggið er þessháttar. Mér finnst þú æði að geretta:)

Gangi þér vel um helgina og hafðu hana sem besta!

Síjú Tjúsdei (er ekki annars enskuæfing;) )
#1
13. október 2006 klukkan 22:30
þetta er pjúral egó hjá okkur - klárlega ... hehehee :) ... þetta er auðvita fyrir fólk sem talar aldrei saman en vill vita allt um það - alltaf gott að lesa fréttir en þurfa ekki að "svara" öllu ... nú er ég náttlega bara e-ð að bulla sko ;)

þú ert að standa þig vel ... "thumbs up" fyrir frænku

þú átt alla mína samúð

knússss
#2
14. október 2006 klukkan 04:40
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til þín vegna Dúu. Ég man eftir Dúu fyrst þegar að ég var krakki.

kveðja,
Lena
#3
15. október 2006 klukkan 18:09

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.