Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Freistingar

11. október 2006 klukkan 19:16
Freistingar hafa verið á hverju strái þessa dagana. Maður hefur þurft að taka á honum stóra sínum til að láta ekki glepjast af þeim öllum. Þessar freistingar hafa t.d. verið í formi útlandasúkkulaðis á kaffistofunni. Það er nefnilega þannig á kaffistofunni minni að það eru óskrifuð lög að allir þeir sem fara til útlanda koma með nammi á kaffistofuna. Þessi siður er að ég held allsstaðar í heiðri hafður...... og þessu vil ég breyta! Ég veit að auðvitað er það mitt val að fá mér en þetta er bara svo andsk erfitt stundum. Þegar ég kem heim frá Dublin þá mæti ég með epli.....æðislega vinsæl!!  Ég hef staðist þessar freistingar en mikið rosalega hefur það verið erfitt. Sérstaklega í gær þá leið mér ekkert rosalega vel þegar ég kom úr vinnunni og langaði þá til að fá mér eitthvað til að lækna "báttið" mitt.........og arg hvað átti ég að fá mér? Ég byrjaði á þvi að rífa niður epli og þurrsteikja á pönnu með slatta af kanil mmmmm rosalega gott EN þetta var ekki nóg....þá gerði ég rótsterkt kaffi og flóaði fjörmjólk og þeytti, stráði síðan kanil yfir og drakk mmmmm þvílík nautn!! Annars hef ég staðið mig ágætlega í mataræðinu, reyni að peppa aðra bloggara upp eða öllu heldur að argast í þeim Fýldur ég er svo rosalega skemmtileg stundum, ég sé alltaf lausnir á öllum vandamálum hjá öðrum en yfirleitt ekki mínum vandamálum. Núna þjáist ég af heimþrá á mjög háu stigi, þetta hellist alltaf yfir mig á haustin, þó mismikið....reyndar byrjaði þetta óvenju snemma þetta árið eða í vor!!! En hvað um það þá er ég komin á fremsta hlunn með að setja kofann á sölu og sækja um vinnu í minni heimasveit......Jæja en þá er best að hætta að jagast hér, eiginmaðurinn verður heima í kvöld og þá get ég nöldrað í honum, ef hann verður ekki mjög móttækilegur þá jagast ég meira í ykkur á morgun Glottandi

p.s. súkkulaðið á kaffistofunni kláraðist í hádeginu, eins gott að það fari enginn að koma frá útlöndum á morgun!
Líst mér á þig kella mín,
Á ég að athuga með vinnu fyrir ykkur?????
Væri bara gaman að fá ykkur hingað í heimasveit. Hef óvissar heimildir um að á kaffistofunni í Hólaskóla komi starfsmenn einungis með dökkt súkkulaði, sem er sko aðeins hollara en hitt...!!!!
Knús og kossar,
Guðrún litla systir
#1
11. október 2006 klukkan 20:24
 
Hildur i sverige
Þú ert goðið mitt, ég vildi að ég hefði svona mikla sjálfstjórn. Flottur árangur og ég lofa að bjóða þér uppá e-ð annað en súkkulaði ef þú kemur í heimsókn ;)
#2
11. október 2006 klukkan 23:15
Takk fyrir gott pepp. Gaman að sjá hvað þú stendur þig vel í sjálfsöguninni. Ég veit að ég get þetta, hef gert það áður svo eins og þú segir þá er bara að koma sér í gírnn og hætta þessu væli;) Gangi þér áfram vel. Kem til með að kíkja á þig eftir getu. Kveðja Bíbí
#3
12. október 2006 klukkan 00:15
Æi hvað ég skil þig hvað varðar heimþrána, auðvitað vil ég ekki missa þig úr sveitinni en ég bara skil þig svo vel. Þegar ég kem í mína sveit þá fæ ég alltaf þessa tilfinningu að hér eigi ég heima og þar líður mér svo vel. En þetta gengur vonandi fljótt yfir, jólastússið fer að taka yfirhöndina og þá lagast allt. Ég dáist af þér að standast þessar freistingar á kaffistofunni, ég er viss um að ég væri búin að fá mér.
Ég heyri í þér á morgun
Góða nótt
#4
12. október 2006 klukkan 03:14
 
Tótan
ÚFF kannast við heimþránna! En vonandi tekst okkur að gerast alvöru staðarbúar;) og finna okkur heima hér:)

Upp með viljann

Tóta
#5
12. október 2006 klukkan 04:18
Hildur það er ekkert EF heldur ÞEGAR ég kem í heimsókn!!!
#6
12. október 2006 klukkan 13:42
skyldi þetta vera hefð á öllum vinnustöðum?? Ég er reyndar svo heppin núna að vera á vinnustað sem að hefur ekki svona reglu...
#7
12. október 2006 klukkan 19:19

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.