Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Pönnukökur mmmm!

08. október 2006 klukkan 16:38
Mér hefur gengið ágætlega að fara eftir DDV en þó koma erfiðir dagar....eins og t.d. í fyrradag, þá fór ég upp í sveit að vinna og var boðið í kaffi sem var okey NEMA í boði voru upprúllaðar pönnsur!! Jamm og þær voru svo girnilegar, kölluðu á mig, báðu mig að borða sig....jebbs svo ég fékk mér 4 eða 5 stk. OG ÉG SÉ EKKI EFTIR ÞVÍ, ég krossaði bara í extra grúppuna og einn ávöxt!!!! (svona til að réttlæta þetta). Um kvöldið var ég áfram á einhverju flippi, langaði svo mikið í eitthvað hræðilega djúsí. Ég brá á það ráð að elda svakalega einfaldan kjúlla með fullt af allskonar grænmeti og hvítlaukssósu mmmm og ég varð svo södd að löngun mín í eitthvað óhollt hvarf og þar með reddaðist það Glottandi
Einmitt þennan pönnukökudag þá hringdi Edda í mig og plataði mig með sér í stafgöngu, rétt fyrir kvöldmat, við tókum u.þ.b. hálftímagöngutúr og það var æði!!
Dagurinn í dag er ekkert skipulagður, fyrir utankvöldið en þá fer ég á Friendtexkynningu heima hjá Hvönninni, Sigrún Sólmunds sem starfar hjá Kristínu vigtarráðgjafa ætlar að koma með fötin og kynna þau fyrir okkur, það verður gaman.
 
Tótan
Gvöööð hvað ég er ánægði með pönnsurnar þínar, er búin að vera að leita að réttlætingu, en hei! Komið: EXTRA! Ég sá líka vörumerki í Bónus sem heitir EXTRA þar var m.a. nammikex og sonna. Get ég ekki bara borðað það og mergt extra?? hehe væri kúl á erfiðum tímum!

Síjúleiter
#1
09. október 2006 klukkan 02:17
úffff ég skil þig vel frænka ... það er ekki hægt að sniðganga pönnsur!!!

ég get ekki betur séð en að þú sért að standa þig með príði þrátt fyrir smá pönnsur - þær fóru í stafagöngunni ;)

á þó alltaf eftir að gefa mér tíma og lesa um í hvaða kúr þú ert, já ef þetta er kúr !!! einn daginn kemur sá tími ... en þanga til keep on going ;)
#2
09. október 2006 klukkan 02:42
frænka, þetta er kúr sem danskurinn bjó til ...ég kýs reyndar að kalla þetta breyttan lífssttíl!! hehehe en ef þú vilt kynna þér þetta þá er slóðin: http://www.weightconsultants.com/is/
#3
09. október 2006 klukkan 13:21
Já ég skil þig fullkomlega, pönnukökur eru stórhættuleg freisting. En mér finnst þú rétt á þessu og gott að þú dattst bara ekki í það um kvöldið og náðir að bjarga þér fyrir horn.
#4
09. október 2006 klukkan 13:31

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.