rútína
06. október 2006 klukkan 13:30
Það er alveg merkilegt hvað ég hugsa mikið þegar ég er að keyra.....og það er eitthvað svo rosalega gáfulegt, síðan þegar ég sest niður við tölvuna þá man ég bara ekkert hvað það var sem ég ætlaði að skrifa. Sama á við þegar ég er að fara að sofa, ég hugsa í hundrað hringi....spurning um að fá sér digtafón
Annars er allt við það sama, vinna, skutla, elda, þvo, sofa...... og allt í rútínu og þ.a.l. 100% DDV.
Það var reyndar saumó á miðvikudagskvöldið, rosalega hollur og góður saumó, það var æðislegt túnfisksalat í boði mmmm. Innihaldið: túnfiskur, rauðlaukur, paprika og kotasæla alveg geggjað.
Oddný Steina kom og fékk gistingu hjá okkur hún var að fara á Strandirnar að skoða sauðfjárbú m.t.t. mastersverkefnisins. Í gær kom Elín Bergs færandi hendi frá USA kom með tvo boli og tvennar buxur á Þórð Loga..... hún er líka að byrja í master. Nú vantar bara að Ingibjörg fari að láta sjá sig...... (vorum mikið saman þessar fjórar á háskólaárunum). Annars hittumst við alltaf fyrir aðventu og skellum okkur í Garðheima og verslum okkur í aðventukransa, förum svo í Mosfellsbakarí og kaupum eitthvað djúsí með kaffinu og förum svo upp í Mosfellsdal (heim til Elínar) og gerum kransana, gaman að svona hefðum.
Meira síðar

Ætli þetta sé í ættinni, þetta að hugsa mög gáfulega hluti og síðan þegar á að fara festa þetta gáfulega niður á blað þá kemur bara memory empty...!!!!
Annars sit ég bara hér heima í allt of stóra sloppnum mínum og er að mana mig í að læra aðeins áður en ég læt það eftir mér að fara út að njóta haustsins.
Það er alltaf gaman að fá að njósna um þig á þessu bloggi:-)
Knús og kossar,
þín litla systir