Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

annir og appelsínur

29. september 2006 klukkan 20:34
Jæja þá er þessi vinnuvika senn á enda. Ég hef farið 100% eftir DDV þessa viku og finn heilmikinn mun á mér. Í kvöld ætla ég að grilla nautakjöt og bera fram með því fjölbreytt úrval grænmetis og svo ætla ég að gera tzaziki-sósu með því mmmm. Helgin er lítið plönuð nema Herdís vinkona var að hvetja mig til að heimsækja sig á morgun og það getur vel verið að ég leggi land undir fót og bregði mér til höfuðborgarinnar. Mánudagurinn verður strembinn en ég þarf að fara suður og taka flug austur á Egilsstaði á fund, síðan mun ég koma aftur í bæinn um kvöldið og verð að öllum líkindum ekki komin heim í rúmið mitt fyrr en um miðnætti. OG síðan á þriðjudagskvöldið verður langþráð vigtun, hlakka svo til......þarf virkilega að standa mig í mataræðinu þangað til...tek með mér fullt af gulrótum og ávöxtum á fundinn Ullandi 
Góða helgi!
 
Oddný Steina
Frétti af blogginu þínu og vildi bara kvitta fyrir mig! En hvar er lambakjötið kona?? það er svo hollt þú veist ;o) !!!
#1
02. október 2006 klukkan 16:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.