stuð stuð stuð
27. september 2006 klukkan 18:10
Hæ, hó! Er aðeins að laumast hérna í vinnunni. Það var enginn fundur í Borgarnesi í gær þannig að engar nýjar tölur hér á bæ, því miður. Af því að enginn fundur var þá hittumst við þrjár, ég, Þórhildur og Þórunn H heima hjá mér. Ég hafði búið til súkkulaðibúðing (Oetker) og með honum voru hindber og sýrður rjómi.....mikið rosalega var þetta gott, jammíjammí! Annars gerist lítið hjá mér er að fara upp í sveit núna á eftir að líta á skóga, veðrið er æði og ég er æði og í banastuði...heheheh. Skrifa meira síðar
Frábært að sjá hvað þú ert í góðu skapi, það er ekki hægt annað í þessu veðri.