tilraunaeldhúsið
25. september 2006 klukkan 16:17
Þessi helgi var nú ansi róleg hjá mér. Ég gekk reyndar stóra hringinn á laugardaginn með Sirrý það var hressandi og veðrið
það var algjör draumur. Síðan stússaði ég aðeins í garðinum, uppskar kartöflurnar, púrrulaukinn og klippti steinseljuna. Annars gerðist víst lítið fyrir utan að það var brjálað að gera í eldhúsinu. Á föstudaginn var Stefán búinn að panta að það yrðu eldaðir hammarar, ég gerði það með glöðu geði, bjó til buff og steikti. Þeir sem vildu gátu haft hammarana hefðbunda með sósu og brauði en ég gerði hvítlaukssósu fyrir mig, mikið rosalega var það gott og sleppti brauðinu. Með þessu var slatti af fersku grænmeti og síðan bjó ég til hinar margrómuðu rófufranskar mmmmmm mikið rosalega eru þær góðar!! Eldaði skötusel á laugardagskvöldið. Tók hann og velti upp úr mjólk og síðan hveiti sem var kryddað með karrý, tandoori, pipar og jurtasalti, steikti á pönnu. Síðan tók ég rosalega mikinn hvítlauk og setti á pönnu og blandaði svo rækjum út á, kryddaði þetta með karrý, hellti gromsinu yfir skötuselinn jammíjammí mikið hrikalega var þetta gott með haug af fersku og soðnu grænmeti
Svo í hádeginu í gær gerði ég groms sem Kristín var búin að benda okkur á á fundi um daginn, tók brauð og tætti það niður, 300 gr grænmeti (ég var með sveppi og papriku) skorið í spað hrærði svo einu eggi saman við 75 gr kotasælu og 1 dl fjörmjólk kryddaði með pipar og hellti yfir og inn í ofn.....rosagott, mæli með þessu nema ég ætla næst að hafa meira úrval af grænmeti og ég held það sé algjör nauðsyn að hafa lauk eða hvítlauk.
Núna sit ég heima með litla stubbinn minn, hann er lasinn, ekkert alvarlegt bara kvef, hósti og smá hiti. Úti er sól og blíða, það eru svona skilyrði að mér finnst allt vera skítugt....spurning um að draga bara fyrir gluggana svo sólin komist ekki inn!! Annars tek ég kannski fram tuskuna þegar drengurinn sofnar og ræðst á eldhúsið...ætlaði hvort eð er að gera hausthreingerningu einhverntíman, jólahreingerningin í fyrra varð bara kattarþvottur og var frestað til vorsins en í vor var svo gaman að vera í garðinum að vorhreingerningin varð líka bara kattarþvottur svo núna gengur þetta víst ekki lengur!!! Annars er haustið ekki nærri því búið laaangt í fyrsta vetrardag

http://lena.bloggar.is
Lena
Um að gera að vera nógu duglegur í tilraunaeldhúsinu!
#1
27. september 2006 klukkan 03:03
hvönnin
Já þetta hljómar vel með skötuselinn. Já og hreingerningar hvað, ég er svo svakalega heppin að vera löglega afsökuð vegna vatns skorts ;)
#2
27. september 2006 klukkan 16:29