Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

sól sól skín á mig

22. september 2006 klukkan 22:45
Þá er hinn mikli feltvinnudagur búinn, byrjaði á því að fara með Þórunni P að gróðurgreina tilraunareiti á Hafnarmelum. Það gekk fínt, við komumst vel af stað og ætlum að taka tvo dagparta í næstu viku til að klára....er svo gaman að vinna úti í svona góðu veðri sól og blíða og meira að segja nær logn og það undir Hafnarfjalli!! Eftir hádegið fór ég síðan á einn bæ og skoðaði væntanlegt skógræktarsvæði. Á frekar von á að fara mikið út um allar koppagrundir í næstu viku að klára úttektir og annað.
Mataræðið gengur svona allt í lagi fyrir utan "staðfestasamvistirveisluna" þar var ýmislegt framandi í boði t.d. smjördeigsbaka með túnfiski, rúsínum, ólífum og kryddi, brauðterta með majo, blönduðu grænmeti og kjúlla, röndótt hlaupterta, marsipanterta með vanillukremi og ostar í úrvali. oooog ég smakkaði allar sortir!!! ooooooog svo drakk ég bjór hmhmhmhhm jamm ég veit aaaaarggggggg Öskrandi
Síðan á að taka helgina með trukki og malla eitthvað girnó, kannski baka ég eitthvað DDV vænt, hver veit Hlæjandi
Að lokum, til hamingju með afmælið pabbi og Steinunn Hj. Koss

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.