saumó, fundur, veisla, keppir
21. september 2006 klukkan 16:42
Verð að laumast til að gefa smá skýrslu. Reikna ekki með að komast í að blogga fyrr en á morgun, er að fara í feltvinnu eftir hádegið og á morgun....ohh það er svo gaman í svona góðu veðri. 
Fór á fund í Kleppjárnsreykjaskóla í gær en það var verið að kynna námsefni vetrarins hjá 5. bekk. Lýst vel á þetta þau eru ekki nema 9 í bekknum og kennarinn er indælis kona sem ætlar að leggja mikla áherslu á íslenskukennslu m.a. stafsetningu og ljóð. Það finnst mér frábært. Eftir fundinn brunaði ég í saumó og stóð mig svona lalala þar, fékk mér sprite zero og svo freistaðist ég í Doritos og salsa mmmm og enn sem fyrr ekkert sætt (nema það er örugglega sykur í sölsunni). Var frekar löt að prjóna en ég er að prjóna aðra lopapeysu á mig...hin er orðin svo slitin sem ég prjónaði í fyrra því ég er bara alltaf í lopapeysu...ohhh svo hlýtt og gott.
Það gerðist líka ýmislegt í vinnunni í gær, minn ágæti yfirmaður bauð mér og hinum starfsmanninum hjá verkefninu (Vesturlandsskógum) í veislu....jamm við fengum boðskort þar sem okkur var boðið ásamt mökum í veislu í kvöld (21.sep) til að samfagna honum og unnustanum í tilefni af því að þeir eru að fara að staðfesta samvist sína hjá sýsló!
Semsagt brjálað að gera hjá mér (og ég slugsa bara og blogga....)
já og síðan setti ég inn tvær "fyrimyndir" af mér...þær eru frekar lélegar en ég held að keppirnir og rassinn fari ekkert framhjá neinum!!
Nú styttist í hádegismat, er með 300 gr. salat, 50 gr af kjúlla, 25 gr.feta og 3 tsk olía með kryddi....mmmrosagott
Fór á fund í Kleppjárnsreykjaskóla í gær en það var verið að kynna námsefni vetrarins hjá 5. bekk. Lýst vel á þetta þau eru ekki nema 9 í bekknum og kennarinn er indælis kona sem ætlar að leggja mikla áherslu á íslenskukennslu m.a. stafsetningu og ljóð. Það finnst mér frábært. Eftir fundinn brunaði ég í saumó og stóð mig svona lalala þar, fékk mér sprite zero og svo freistaðist ég í Doritos og salsa mmmm og enn sem fyrr ekkert sætt (nema það er örugglega sykur í sölsunni). Var frekar löt að prjóna en ég er að prjóna aðra lopapeysu á mig...hin er orðin svo slitin sem ég prjónaði í fyrra því ég er bara alltaf í lopapeysu...ohhh svo hlýtt og gott.
Það gerðist líka ýmislegt í vinnunni í gær, minn ágæti yfirmaður bauð mér og hinum starfsmanninum hjá verkefninu (Vesturlandsskógum) í veislu....jamm við fengum boðskort þar sem okkur var boðið ásamt mökum í veislu í kvöld (21.sep) til að samfagna honum og unnustanum í tilefni af því að þeir eru að fara að staðfesta samvist sína hjá sýsló!
Semsagt brjálað að gera hjá mér (og ég slugsa bara og blogga....)
Nú styttist í hádegismat, er með 300 gr. salat, 50 gr af kjúlla, 25 gr.feta og 3 tsk olía með kryddi....mmmrosagott
Flott hjá þér að vera komin með myndir (þó þær séu hreyfðar) - skil nú bara ekkert í því hvar þú nærð í þessa keppi sem sjást á myndunum - ég sé þá alla vega ekki dags daglega . . .
Baráttukveðjur :-)