Hreyfing
19. september 2006 klukkan 15:55
Þvílík orka! Ég er núna búin að fara eftir DDV matarprógramminu í tvær vikur og það sem ég finn mest fyrir það er aukin orka. Ég er vön að fara á fætur klukkan sjö á morgnanna en nú er svo komið að ég er vöknuð fyrr. Þá er það næsta mál á dagskrá það er að fara að hreyfa sig....er að velta því fyrir mér að fara út að skokka eða labba fyrir sjö. Ætla að hugsa þetta aðeins, svona hvernig ég ætla að hafa þetta. Þetta er í lagi núna á meðan það er ekki mjög dimmt á morgnanna en annars verð ég að þræða upplýstar götur. Stóri hringurinn (sem kallaður er hér í þorpinu) er ekki upplýstur en hann er hæfilega langur eða um 4 km.
Svo er vigtun í kvöld....spennandi!!
Svo er vigtun í kvöld....spennandi!!
Ingibjörg
blessuð "gamla" þú átt nú eftir að fara létt með þetta Sigga mín, hvorki ég né Oddný til að spilla þér með húkkulaðirúsínum og fíneríi....
#1
19. september 2006 klukkan 16:12