Ekki alveg 100%
Við fjölskyldan fórum norður í Skagafjörð um helgina. Tókum okkur frí í vinnu frá hádegi á föstudag og brunuðum af stað. Ferðin gekk vel, fórum beint í kaffi til tengdó og auðvitað var hún með svoleiðis kræsingar að borðið svignaði (næstum því sko)...ég fékk mér kaffi og síðan bara eina appelsínu! Ég hefði ekki trúað því að ég gæti þetta, hef ekki fundið fyrir sykurlöngun í eina mínútu. Síðan vildi tengdó að við borðuðum hjá henni og það var allt í lagi en það voru kjötbollur og nóg var til af grænmetis/ávaxtasalati, er samt ekki viss um að hlutfall grænmetis hafi verið nóg en eigum við ekki bara að segja að þetta hafi verið 90% DDV dagur. Í gær fór dagurinn vel af stað, ég mamma og yngri stubburinn minn fórum á Akureyri við fórum frænku minnar og borðuðum þar í hádeginu, skyr brauð og tómatar lágu þar (en örugglega ekki nógu mikið af tómötum). Þegar við vorum komnar heim í sveitina þá fór mamma að gera kvöldmatinn til en það var hangikjöt!!!!! EN það var boðið upp á DDV rauðkál, Bonduelle grænar baunir (ekkert Ora), soðnar rófur, blómkál, belgbaunir, sykurbaunir og baunaspírur....mmmmmm þetta var rosagott en svindl dagsins var uppstúfur og rjómi en í desert voru ferskir ávextir og ber í einhverju rjómagutli en ég fékk mér reyndar mjög lítið af því. Laugardagurinn var semsagt ca 70% og enn og aftur enginn sykur freistaði. Dagurinn í dag er síðan 100% borðuðum morgunmat í sveitinni minni en fórum síðan til tengdó í hádeginu í kjötsúpu, brunuðum síðan heim á leið.
Svona var semsagt helgin okkar! Ný vinnuvika að hefjast og maður farinn að skipuleggja matinn, ætli það verði ekki fiskur í hvert mál eftir allt þetta kjötát, geri svona frekar ráð fyrir því. Síðan er vigtun á þriðjudag, bíð spennt eftir því.