Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

vinkonutjatt

21. mars 2011 klukkan 19:22
Ég var að tala við vinkonu mína á msn núna rétt í þessu og eins og vera ber þegar við ræðum saman þá er ýmislegt í umhverfinu tekið fyrir; pólitík, alþjóðasamfélagið, efnahagsmálin, vinnan, fjölskyldan, frítíminn og hlaup - ætla nú ekki að kópera öll samskiptin en þetta er brot af því sem er að brjótast um í manni þessa dagana, allt þetta kom t.d. til umræðu:
Ég er ennþá mjög upptekin af ástandinu í Japan, ótrúlegt alveg, ég er ekki að komast yfir þessar hamfarir allar. 
Ég er líka rosalega leið yfir því að norsðmenn skuli taka þátt í stríði. 
Mér finnst fólk ótrúlega fljótt að taka afdrifaríkar ákvarðanir og auglýsi eftir hugtakinu "málamiðlun" er fólk búið að gleyma því? Er pólitík ekki svipuð og hjónaband, eða ætti hún ekki að vera það, samstarfsverkefni? (þarna var ég að tjá mig um fréttir dagsins úr pólitíkinni).

Spurning um að fá forstjóra Coca cola til að stjórna Íslandi í nokkur ár?....eða Bill Gates..?? 

Kraftaverkin eru allt í kring um okkur, systir mín er ófrísk.
Við vinkonurnar erum báðar að æfa hlaup, pepp, pepp, pepp, pepp!!
Hlakka til að fá mér prins póló í forrétt fyrir næsta matarklúbb......og kannski líka kók í gleri Smile 

Klem og knús!!
 

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.