Hafjell - myndir
20. mars 2011 klukkan 18:55
Keyrðum af stað upp í Hafjell upp úr hádegi á föstudag. Byrjuðum á því að koma við í Lillehammer, í Håkons hall (Ólympíuhöllinni) en þar var heljarinnar sport "messa" auki þess að útdeiling startnúmera fyrir Birkebeiner var þar en Ísak vinur okkar fór í þá göngu í gær, Haukur hafði stefnt að því að fara líka en sá draumur var úti þegar hann lenti í vinnuslysi í lok janúar. Þarna versluðum við slatta af bráðnauðsynlegum útivistarfatnaði. Brunuðum síðan upp í Hafjell sem er 15 km norðan við Lillehammer. Æðislegt svæði, frábærlega staðsett hytta upp í miðju fjalli og maður festi skíðin á sig við útidyrnar og brunaði niður. Við vorum semsagt í hyttu með Pálínu, Ísak og dóttur þeirra og svo var vinafólk þeirra þau Kolla, Svenni og börn. Þórður Logi sló í gegn á nýju skíðunum, ótrúlegt hvað krakkinn var fljótur að ná þessu. Unglingurinn var hins vegar í hormónakasti og fór ekkert á skíði - það var bara ekki inní myndinni og hann hékk því bara í hyttunni. Skíðuðum í sex tíma í gær og fram að hádegi í dag. Keyrðum svo heim, fórum ekki hefðbunda leið á E6 heldur tókum Riksvei 4 um Gjøvik og Brandbu, semsagt hinu megin við Mjøsa (vatnið). Skemmtileg tilbreyting það.
Það voru teknar slatti af myndum, kíkið á þær hér.
Það voru teknar slatti af myndum, kíkið á þær hér.
Magga
Flottar myndir, rosalega fallegt þarna og Þórður Logi eins og atvinnumaður með skíðin :D Eins og hann hafi bara aldrei gert annað :D Og greinilegt að þið hafið skemmt ykkur vel :)
#2
21. mars 2011 klukkan 12:50
við fórum einmitt "hina" leiðina til baka þegar við skruppum til Lillehammer. Mjög sniðgt ;)