Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Þegar upp er staðið...

17. mars 2011 klukkan 20:31
....alveg ágætis dagur.

Ég var svo agalega ánægð með skokktúrinn í gær að mitt fyrsta verk í morgun, eftir að hafa skutlað Þórði Loga á leikskólann, var að fara út að skokka. Kom svo heim og fór að grufla í "R" það gekk ekki betur en svo að mér fannst að við hvert skref framm á við var eins og ég rynni aftur um tvö Embarassed Líkt og gerist stundum í fjallgöngu, en ég ákvað að taka mér hvíld en toppinum skal ég ná, það tekur nefnilega stundum svolítið á taugarnar að ná þangað sem maður vill en þá þýðir ekkert að gefast upp, með viljann að vopni þá eru manni allir vegir færir. Eða er það ekki??!!! 

Í kvöld fórum við á foreldrakvöld í Ås ungdomsskole, þar sem krakkarnir í öllum bekkjardeildunum í 9. bekk voru að sýna uppskeru eftir 9 daga vinnu í svokölluðu "utdanningsvalg". En þá velja krakkarnir sér grúppu til að vinna í og tengist sú grúppa því sem þau vilja fást við í framtíðinni. Þarna voru allskonar grúppur, verkfræði-og tæknigrúppa, nýsköpunargrúppa, fyrirtækjagrúppa,  útivistargrúppa, tónlistargrúppa, kvikmyndagrúppa og leik-og dansgrúppa. Stefán valdi að vinna í músikgrúppu og gerðu þau verkefni eða söngleik með leiklistar-og dansgrúppunni. Þetta var ástarsaga, þar sem hinu ýmsu tónlistarstefnum var blandað inní og eiginlega kannski of langt mál að fara með það. Ég tók upp nokkur videó og setti eitt inn á fésið en það er flutningur þeirra á "Haba haba" sem er norska framlagið í júróvísjón þetta árið. Semsagt svaka stuð hjá okkur í kvöld. 

Um hádegisbil á morgun munum við leggja af stað í Hafjell en það er eitt af flottari skíðasvæðunum hér í Noregi, staðsett upp í Lillehammer. Við verðum í hyttu með tveimur öðrum fjölskyldum og ætlum að hafa það gaman, njóta þess að renna okkur á skíðum og slaka á. Vá hvað ég hlakka til!!! 

 
Berglind
góða helgi
#1
18. mars 2011 klukkan 10:32

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.