Ég er svo hjartanlega sammála þér! Við erum að væla út af einhverjum anskotans smámunum (í flestum tilfellum), en þegar allt er skoðað höfum við hér á Íslandi það bara alveg ljómandi gott. Hús sem eitthvert gagn er af, hreint og gott vatn beint út krananum, rafmagn til að sjóða grjónin okkar hvenær sem er sólarhringsins o.s.frv.
Mikið vildi ég að við færum nú að horfa á jákvæðu hliðarnar, allt það góða sem við höfum og getum gert!!!!
andskotans væl!!!
15. mars 2011 klukkan 12:35
Lækum á vefsíður og deilum þeim jafnvel líka sem eru stútfullar af væli!!! Grrrrr nú er ég svo brjáluð hvað er að gott fólk??? (og ég er þar ekkert undanskilin)
Eigið þið virkilega svo um sárt að binda??? Áttið þið ykkur á því að það að búa í húsi eru forréttindi, það að einhver talar um þig eru líka forréttindi því þá er allavega munað eftir þér, það að geta farið í búðina og keypt salt og hafragrjón og skrúfað svo frá krana til að fá vatn það eru forréttindi og svona gæti ég lengi talið áfram. Hugur minn er hjá fólkinu sem er virkilega að fá að glíma við vandamál sem það ræður ekki við eins og t.d. krabbamein. Hugur minn er hjá fólkinu sem býr í Japan. Ég er þakklát fyrir að ég á grjón og salt, get skrúfað frá krananum til að fá vatn, leigi íbúð sem er uppistandandi og er við góða heilsu.
Ég er hætt að taka þátt í þessu að "like"a og "share"a á einhverjar vælugreinar ojjj!!!
Dagurinn í dag: Nú leik ég mér í "R" tölfræðiforritinu og fer síðan í dekur (sem eru forréttindi) þ.e. að láta skrapa af mér líkþorn, hlaup eru einnig á dagskránni og Despó í kvöld. Ég er mjög þakklát fyrir það að hafa tækifæri til að eiga svona frábæran dag, ég vona að þið séuð ánægð með ykkar daga. KNÚS!
p.s. En vá nú er farið að gjósa í ofanálag þarna í Japan

Ragnhildur Helga Jónsdóttir
#2
15. mars 2011 klukkan 13:01
Sverrir
Mikið er ég sammála þér þarna, frænka kær. Vel mælt!
#3
15. mars 2011 klukkan 13:39
Magga
Já...þú hefur nokkuð til þíns máls. Allt of mikið af neikvæðum fréttum og einblínt á það neikvæða alltaf hreint. Er alveg sammála þér í því, en þar sem ég flokkast sem einn af vælukjóunum oft og tíðum þá finnst mér helvíti fúlt að vanlíðanin og umhverfisaðstæður þurfi að vera af þeirri stærðargráðu sem þú nefnir til þess að maður geti farið að "væla". Maður getur bara haft það helvíti skítt án þess að náttúruhamfarir komi þar nokkuð við sögu og þótt að maður hafi allt sem maður þarf til að uppfylla líkamlegar þarfir manns. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það eru margir sem hafa það verr og líður verr en mér, bæði líkamlega og andlega, en ég áskil mér samt rétt til að eiga mína slæmu daga þegar mér sýnist svo. Ég er reyndar farin í læknismeðferð við mínum "veikindum" ef veikindi skyldi kalla (í sumra augum er þetta bara aumingjaskapur) og vonandi næ ég mér upp úr þeim fljótt og örugglega. En þótt að þau séu ekki líkamleg þá getur maður samt haft það skítt og kvalist meir en maður hélt mögulegt. Og hananú :)
#4
15. mars 2011 klukkan 15:26
Silla
HEYR HEYR mín kæra!!!
Hugsum til þeirra sem minna mega sín og hættum þessu væli förum bara út að hlaupa!!! :Dhahahaha er ekki alveg í hlaupagírnum akkúrat núna, fjúk og snjór úti ógeðslegt veður pa island........ jakk
En peppkveðja til ykkar.
S.

#5
15. mars 2011 klukkan 17:30
Ólöf Sigurbjartsdóttir
Like :)
#6
15. mars 2011 klukkan 18:09
Sigga Júlla
Margrét "væl" er "væl" í minni orðabók. Ég sagði líka "Hugur minn er hjá fólkinu sem er virkilega að fá að glíma við vandamál sem það ræður ekki við eins og t.d. krabbamein" þarna hefði ég auðvitað geta nefnt eitthvað annað en krabbamein eða listað upp alla hina ýmsu sjúkdóma sem til eru....
Ég skil ekki hvernig þú getur fundið það út að ég sé að gera lítið úr þínum veikindum elsku kerlingin mín.
Þið hin takk fyrir lækið hehehe.

#7
15. mars 2011 klukkan 18:15
Magga
Kannski vegna þess að ég er ein af þeim sem finnst þetta vera ekkert nema væl og aumingjaskapur í mér ;) Ég meina kommon...ég er heilbrigð (að öðru leyti), á þak yfir höfuðið, mat á borðið, salt í grautinn og allt það :) Skil ekki af hverju ég er að væla þetta ;) Og ég meina þetta svo innilega!!!
En ekki þar fyrir...ég lækaði nú líka þessa færslu þar sem mér finnst þú hafa helling til þíns máls og ég pirrast líka yfir þessari endalausu neikvæðni í fréttum og bara þjóðfélaginu öllu...óþolandi alveg hreint og hvernig er hægt að ætlast til að þjóðin nái sér upp úr bölmóðinum ef það er tönglast á þessu endalaust!! Skileddeggi...
Knús á þig :)

#8
15. mars 2011 klukkan 20:16
Herdís Friðriksdóttir
Hæ Sigga Júlla,
Gaman að sjá loksins til þín, hef ekki heyrt í þér svo lengi.
Ég er sammála þér með vælið og finnst að það eigi að senda alla til Afríku í nokkra mánuði svona svo þeir finni hvað þeir hafi það gott hér. Eftir að ég kom þaðan um árið var það mikill lúxus í mínum huga að geta bara gengið um berfætt inni í íbúðinni og geta vaknað um miðjar nætur og skroppið á klóið án þess að það útheimti meiriháttar aðgerð.
En það koma dagar þar sem ég verð svo ótrúlega pirruð á þjóðarsálinni hérna og þá meina ég öllum að mér meðtalinni. Ég er t.d. alveg hætt að geta hlustað á pólitíkusa og finnst þeir upp til hópa fábjánar og eitthvað þaðan af verra.
En nóg um það. Hvað er að frétta af þér gamla mín og hvenær er von á ykkur á klakann? Hérna í Reykholti er nóg af húsnæði ef ykkur langar að koma hingað :) (Like á það!)
Heyrumst!
Herdís

#9
15. mars 2011 klukkan 22:00
Svo í staðinn fyrir væl þá má taka smá spangól, einkum næst þegar máninn verður fullur og fínn.