Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

veðurlýsing og hversdagslegt miðvikudagsblogg

09. mars 2011 klukkan 08:16
Úfff, sú sjón sem blasti við mér þegar ég leit út um gluggan í morgun var ekki eins og ég hvaði vænst. SNJÓKOMA!!! ohhhh mér finnst þetta alveg vera komið nóg en okey, lítum á björtu hliðarnar - það verður mun betra skíðafæri, brautirnar verða skemmtilegri þegar nýr snjór er í þeim því um leið og sólin fer að skína þá fer að myndast svell og þá getur verið agalega leiðinlegt að skíða. 
Ég tók mér göngutúr seinnipartinn í gær í vinnuna til Gunnu, við gengum svo í áttina að Dröbak og náði ég þá tæplega 7 km í göngu í gær. Við komum svo hingað heim og ég eldaði fisk mmmm og svo leið kvöldið með honum excel félaga mínum og endaði svo við sjónvarpið með Desperate Housewifes. Ég náði að haga mér skikkanlega í mataræðinu, borðaði 2 appelsínur, 1 banana, kornfleks og mjólk, 2*brauð með osti, skyr með smá rjóma, fisk-hrísgrjón-salat, slatta af vatni og allt of mikið af kaffi.
Haukur fór að vinna í nótt, kom heim snemma í morgun og var að fara af stað aftur bara rétt í þessu. Núna snjóar og svo á að fara að rigna eitthvað smá á morgun og svo fer sólin að skína og hitatölur næstu viku eru í kring um 6°C  þá kemur vorið (skulum við vona) Smile
Í dag ætla ég að vinna í verkefninu mínu, taka eina hlaupaæfingu inni á bretti (nenni ekki að hlaupa úti í snjókomunni). 
Ég er búin að fá mér kornfleks og mjólk, tek svo ávöxt um tíuleytið, skyr, rjóma, brauð, ost og ávöxt í hádegi, ávöxt seinnipartinn og svo tók ég gúllas úr frystinum þannig að það verður súpa eða pottréttur í kvöld.  
Eigið góðan dag Wink
 
Berglind
hérna er allt orðið hvítt aftur, það er ekki að spyrja að veðrinu á Íslandi, einn daginn er komið vor í loft og næsta dag er hörku vetur ;)
Það er reyndar alveg yndislegt veður núna, sól rosalega mikið kalt og þar af leiðandi lítill vindur. Sigtryggur sagði í hádeginu, afhverju getur veturinn ekki bara verið svona á Íslandi, ekki alltaf þessar endalausu umhleypingar. Afhverju var janúar t.d. allur lágskýaður með rigningu og roki, akkúrat þegar okkur vantaði snjó til þess að lífga upp á skammdegið. NEI það er ekki í boði.
Ég sagði honum að hann gæti flutt með mér aftur til Noregs ef hann vildi vetur um vetur ;) var það ekki bara gott hjá mér....
Ég hefði verið til í göngutúr með ykkur Gunnu maður lifandi! bið að heilsa henni næst þegar þú hittir hana
gangi þér vel í skokkinu
#1
09. mars 2011 klukkan 14:50
 
Jóna Lind
sæl mín kæra, langt síðan ég hef litið við (hvað þá bloggað sjálf) en ég þarf að fara að taka þig til fyrimyndar hvað varðar mataræðiið og ávextina...er dottin í etthvað bölvað nammiát núna !!
#2
10. mars 2011 klukkan 07:25

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.