Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

um árskort í sund

08. mars 2011 klukkan 09:23

Í tengslum við bloggfærsluna í gær fór ég inn á vef Borgarbyggðar til að sjá verðskrá íþróttamiðstöðvarinnar en mér finnst sjálfsagt að taka þann mikilvæga póst sundferðir inn í dæmið þegar ég er að finna út kostnaðinn við að reka heimili. Ég var búin að heita á mína menn að þegar við flyttum heim þá væri okkar fyrsta verk að kaupa árskort í sund í nesinu. Verðskrána finnið þið hér
Árskort s.k. heilsukort (þreksalur, sund, spinning) fyrir mig og Hauk kostar 32.300 en bara árskort í sund myndi kosta 22.700 - ég tek dýrari kostinn í þetta dæmi þ.e. heilsukortið 2*32.300 = 64.600. Árskort í sund fyrir strákana 2*9400 = 18.800
Samtals mun ég greiða með glöðu geði  83.400 kr.
Til samanburðar ef ég mundi ekki kaupa svona árskort þá þyrftum við að borga 1640 krónur fyrir sundferð fjölskyldunnar, hvað þyrftum við þá að fara oft í sund til að árskortin borgi sig?? 51 skipti og við höfum yfirleitt stundað sund og íþróttahúsið í Borgarnesi mun oftar en það á ári. Allavega einu sinni í viku yfir vetrartímann og tja alveg óhikað að meðaltali þrisvar í viku þegar tekur að vora og fram á haust. Já ég held að þetta sé fjárfesting sem muni borga sig og af hverju þarf ég eitthvað að réttlæta það? Hvað skyldu þetta vera margir sígarettupakkar? Já eða rauðvínskútar?

Svo til gamans get ég frætt ykkur á því að Haukur og Þórður Logi fóru í sund í Askim hér um daginn, þeir borguðu 350 NOK fyrir skiptið 7 þús kall íslenskar!!!!! Það var þá sem ákvörðunin um árskortakaupin voru gerðCool

 
Magga
Já...það er ekki fyrr en maður býr erlendis sem maður uppgötvar hversu ofboðslega gott við íslendingarnir höfum það, með allar þessar sundlaugar sem kostar skít og kanel í. Vonum svo bara að þeir þurfi ekki að fara að kynda sundlaugarnar með eldsneyti ;)
#1
08. mars 2011 klukkan 09:58
 
Tedda
Ekki spurning um árskortið... það líka dregur mann líka óbeint til þess að nota aðstöðuna meira .. maður er jú búin að borga :)
En miðaðu þetta bara við sígarettupakkann... rauðvínskútana kaupirðu svo þann kostnað skaltu taka með í dæmið ;) hehehe....
#2
08. mars 2011 klukkan 10:58
 
Hafdís
Til að lækka kostnaðinn getur þú sótt um líkamsræktarstyrk til FIN (ef þú verður í því stéttarfélagi) og þá færð þú styrk um 20.000,- á ári. Það er ekki verra!
#3
08. mars 2011 klukkan 14:23
 
Sigga Júlla
Já það er mjög hvetjandi einmitt að eiga kort, þá nýtir maður sér þetta enn meir. Hafdís, það er auðvitað algjör snilld!!
#4
09. mars 2011 klukkan 08:51

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.