Fjúff þetta eru rosalegar spurningar
ég hugsa að ég versli fyrir um 10 þúsund á viku í bónus og sambærilegum búðum, þá er nammi inni í því.... sem er þarna seinna hjá þér.
3 í heimili
tók ekki slátur þetta árið nei en geri það nú oftast og það er nú aðalega af því lifrarpylsan er svo rosalega góð ;)
ég veiði ekkert, ég borða ekki villifuglakjöt almennt, finnst það ekkert spes nema kannski aðeins að smakka á grafinni gæs svona í forrétt, svartfugl finnst mér óæti og ég veiði aldrei lax eða silung þó mér finnist það mjög góður matur.
ég fæ fisk frítt, bæði roðlaust og beinlaust og svo allskonar öðruvísi, en ég þarf að kaupa mér lax eða silung ef mig langar að hafa það og það geri ég reglulega á sumrin því það er svo gott á grillið nammm.
ég fæ líka kind og lamb upp í vinnu, eða bara fyrir að vera ég! kaupi svo slatta af kjúlla í búðinni
ég setti niður kartöflur en ég hugsa að ég hætti því nema kannski bara einhverjar tíu, við étum svo lítið af kartöflum að þetta er bara til vændræða að eiga þetta, annars rækta ég allskonar krydd og grænmeti sem er rosa gott á sumrin en svo kaupir maður þetta á veturna
ég geri sultur já og alveg hellings af þeim
nammi er synd sem ég eyði of miklu í.... á föstudögum kaupum við nammi og gos, ætli við eyðum ekki svona 5 þúsund á mánuði í þetta sukk... (uss ekki segja neinum!!) áfengi fer reyndar í mjög litlu magni, ég kaupi mér rauðvín í fríhöfninni þegar ég fer í vinnuferðir og held þannig vínskápnum nokkuð góðum bara, sigtryggur er ekki liðtækur í áfengisdrykkju að neinu ráði svo þeir eru ekki margir þúsundkallarnir sem fara í áfengi á mánuði og margir mánuðir sem sleppa alveg við þau útgjöld
ekkert tóbak
bíllinn er mikið notaður, ég keyri 20 km á dag 5 daga vikunnar bara til að komast til og frá vinnu. svo eru amk 2 ferðir í nesið í viku á íþróttaæfingar sem gera þá 2x(2x14) svo er kannski ein ferð auka í nesið á viku, svona eitthvað sem gleymdist eða þarf að redda, svo gæti verið ca 1 ferð í mánuði í borgina, alls ekki meira samt, bíllinn fer líka í hesthúsið sem mér finnst reyndar sorglegt!! norðurferðir eru ca 3 á ári held ég núna undanfarið, mjög lélegt það!!
bensín kostnaður er rosalegur, líterinn kostar núna rúmar 220 krónur líterinn og bílinn minn er að eyða um 10 á hundraði í þessum akstri, fer neðar þegar við förum í borgina eða norður. en 10 er meðaltal hugsa ég. svo það eru nokkrir 10 þúsundkallar á mánuði
ég nota bílinn ekki mikið á hvanneyri en sigtryggur notar hann í hesthúsið
peningur í líkamsrækt er ekki mikill en áhugamálið hestamennska krefst gríðarlegs fjárútláts.
þetta eru mjög ónákvæm svör hjá mér enda er ég kannski ekki nógu dugleg að halda utan um þetta...
Afar óvísindaleg könnun
07. mars 2011 klukkan 09:54
Er að dunda í "dauða tímanum" við að setja upp smá reikningsdæmi og vantar smá aðstoð. Ef þú getur svarað þá væri það vel þegið "pæl" 
Hvað fer mikill peningur í matvæli og heimilisvörur á mánuði?
Hvað eru margir í heimili?
Tekur þú slátur?
Veiðir þú í kistuna?
Kaupir þú fisk í búðinni eða í blokkum?
En hvað með kjöt kaupir þú það í stórum slumpum t.d. beint frá bónda eða afurðarstöð?
Ræktar þú eitthvað sjálf/ur?
Býrðu til sultur, saft og vín?
Hvað fer mikill peningur í nammi og áfengi á mánuði?
Reykir þú eða tekur í nefið/vörina, hvað kostar það á mánuði?
Hvað notar þú bílinn mikið í mánuði?
Hvað eyðir þú miklu í bensín?
Þarftu að keyra allt eða er athöfnin að stökkva upp í bíl og keyra af stað orðin sjálfsögð?
Gætir þú keyrt minna?
Fer mikill peningur í líkamsrækt á þínu heimili?
Fullt af spurningum....já ég veit, ég veit en svörin verða ekki notuð í vísindalegum tilgangi. Nota þau einungis til að pæla í því hvers ég get vænst í mínu heimilisbókhaldi og kannski er leikurinn gerður einnig til að ÞÚ spáir í hvað þú ert að gera...og hvar eða hvort þú getir breytt einhverju hjá þér.

Berglind
#2
07. mars 2011 klukkan 15:03
eþ
60-80 þús
2+
Nei
Nei
Búðum
Allt í smávöruverslunum
já kartöflur, rófur, grænmeti að sumri ...
nei ekki mikil neysla á slíku hér
5000 ca
Nei
Mikið
60þús
Ef ég þarf ekki að hafa neitt meðferðis get ég lallað innan staðar (sjaldan án bagga)
Sjálfsagt með því að breyta lífsmynstrinu, fara ekki í sund og sleppa hestamennskunni
Ekki miðað við ánægjuna

#3
07. mars 2011 klukkan 22:08
Sigga Júlla
Ætli ég geti ekki átt von á að dæmið lýti svona út hjá mér:
Matur 100 þús (+ fáum fisk oftast gratis)
Kemst vonandi í göngur í haust og get þá e.t.v. unnið fyrir einum lambskrokk :)
Rækta sjálf grænmeti eins og ég hef aðstöðu til
Geri slátur
Bý til sultur
Bensín 25-50 þúsund (fer svolítið eftir búsetu)
Áfengi og nammi 10 þúsund
Líkamsrækt - stefni á að kaupa árskort í íþróttamiðstöðina í Borgarnesi fyrir alla fjölskylduna, en samkvæmt verðskrá sem liggur á netinu eru það 83400 kr á ári eða tæplega 7 þúsund á mánuði.
Þetta gerir á mánaðarbasis um 150-160 þúsund krónur og þá er allt hitt eftir (leiga eða húsnæðislán, tryggingar og svo framv.)

#4
08. mars 2011 klukkan 08:59
2) 5
3) Nei
4) Nei
5) Í blokkum þegar mér gefst færi á...annars í búðinni.
6) Kaupi kjöt beint frá bónda í gegnum afurðastöðina. Kjúkling og svínakjöt kaupi ég úr búð. (Kjöt er sem sagt lambakjöt nema annað sé tekið fram) ;)
7) Nei...dreymir samt alltaf um að rækta mitt eigið grænmeti og kartöflur :)
8) Bjó til krækiberjahlaup fyrir 2 árum síðan...á enn til pínu. Rifsberjahlaup og rabarbarasulta næst á dagskránni.
9) Ætli það fari ekki ca 2-4 þúsund kall í nammi og áfengi á mánuði...svona ef maður skiptir því jafnt yfir árið...ef það nær því þá...drekkum hrikalega lítið og ég er hætt að borða nammi þannig að það er ekki keypt brjálæðislega mikið af því heldur :)
10) Engin tóbaksnotkun af neinu tagi á heimilinu...
11) Nota bílinn of mikið, sérstaklega innan staðar.
12) Þar sem þetta er bensínhákur þá förum við með svona ca 50 þúsund kall í bensín á mánuði. Ætlum samt að kaupa okkur sparneytnari bíl, tala nú ekki um ef ég fer að vinna utan staðar eða aðstæður breytast hjá okkur á annan hátt.
13) Þarf að keyra til að kaupa í matinn, sækja á íþróttaæfingar og til að fara í heimsóknir utan staðar. Þar af leiðandi erfitt að komast hjá því að keyra mikið. Reynum að labba eins mikið og við getum innanstaðar, en skutlum/náum í strákana á bíl í leikskólann ef veðrið er hrikalega vont.
14) Tjah...já, en ekki mikið minna...
Vonandi hjálpar þetta eitthvað...veit ekki hvort við erum eitthvað að eyða meir en aðrir, mér finnast upphæðirnar eitthvað svo háar...en það er reyndar allt orðið ógeðslega dýrt í dag...