Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hreyfingaruppgjör febrúarmánađar

01. mars 2011 klukkan 11:10

Hlaup: 13,4 km 1:31 3 skipti
Ganga: 31,5 km 6:01 8 skipti
Skíðaganga: 21,3 km 3:03 4 skipti
Annað: -------- 6:00 1 skipti (svigskíði)

Semsagt 66,2 km farnir, 16 klst og 35 mín "eytt" í hreyfingu á 16 dögum. Þetta er frekar lélegt og engir hjólatúrar til að ná upp kílómetratölunni og allt of fáir hlaupadagar en markmið mánaðarins var að fara í heildina 200 km - því var ekki náð.
Markmið marsmánaðar er hins vegar að ná lágmark 15 km á hlaupum í hverri viku en það ætti að gefa 65 km yfir mánuðinn en ég tala um rúmlega 15 km á viku þannig að markmiðið er 70 km á hlaupum í mars. Síðan er markmiðið að nýta snjóinn til gönguskíðaiðkunnar, göngutúrar og jafnvel hjólatúrar verða í plús. 
 
Við Bríet hlupum fimm kílómetra í gær, vel búnar með gorma undir skónum og alles, leiðindarslabb á gangstígunum, vel blautar í fæturnar þegar heim var komið en mikið djööö var þetta gott - það er svo gaman að geta hlaupið úti, ekki þetta bítandi frost heldur hitastig um frostmark og ferskt loft, bara notalegt. Við erum semsagt að koma okkur í hlaupagírinn og nú verða fastar æfingar þrisvar í viku. Ein æfing með vaxandi hlaupahraða, önnur með sprettum og sú þriðja róleg en eitthvað lengri. Hlaupadagarnir eru mánudagar, miðvikudagar og föstudagar klukkan 16:30.

 
Magga
Aftur læk á þetta :)
#1
01. mars 2011 klukkan 13:54
 
Rakel
Hvernig er að hlaupa á gormum? Ekkert erfitt að venjast því?
#2
01. mars 2011 klukkan 21:18
 
Sigga Júlla
Mér finnst það fínt, ótrúlega þægilegt og það tók enga stund að venjast því - mínir heita Yaktrax Pro, sjá hér: http://www.yaktrax.com/pro
#3
01. mars 2011 klukkan 21:22
 
Eva
Já nú getur þú sett þér nýtt markmið, að hreyfa þig alla vega jafn mikið og ólétta konan!
Gangi þér vel, kv. Eva :)
#4
02. mars 2011 klukkan 15:55
 
Sigga Júlla
haha já Eva :)
#5
02. mars 2011 klukkan 17:07

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.