Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

að éta eitthvað ofan í sig....

27. febrúar 2011 klukkan 21:11
Upp með húmorinn, rassinn og skapið!!!
Febrúar er að verða búinn!!! Fyrsti dagur marsmánaðar ekki á morgun heldur hinn, tveir og hálfur mánuður til ritgerðarskila, fjórir mánuðir til heimflutninga og svo erum við þvílíkt búin að plana ýmsilegt annað hér í úttlandinu. Við eigum eftir að fá nokkrar gestakippur, fara í einn skíðahyttutúr, taka þátt í eins og einu eða tveimur hlaupum, taka túr á Vestlandið og þetta er það sem er fastákveðið - svo er allt hitt sem við erum að spá í að gera en eigum bara eftir að taka endanlega ákvörðun um Wink

Við Bríet tókum þá ákvörðun um helgina að nú þyrftum við að fara að beyta hvora aðra hópþrýstingi og plana regluleg hlaup LOKSINS ætla ég að byrja á prógramminu sem Eva sendi mér í byrjun janúar.
Semsagt núna er vor í lofti (þrátt fyrir snjóinn) og það verður hlaupið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum ÚTI!!!!!
Ég stefni á að taka þátt í "Sentrumlopet" þann 7. maí og fara þá 10 km og svo er spurning með "Hadeland maraton"  og fara þá svokallað kvartmaraton 10,5 km - ég geri ekki ráð fyrir að treysta mér í hálft maraþon akkúrat þá, stefni bara að því eins og áður í Reykjavík í ágúst Laughing....Þið verðið bara að fyrigefa mér kæru lesendur en það að lesa um þessi plön mín aftur og aftur er líklega mjög þreytandi en svona nota ég bloggið til að veita mér aðhald og skipuleggja mig. 

Núna er HM í skíðagöngu og skíðastökki, haldið á Holmenkollensvæðinu í Osló, verðlaunaafhendingar og fjör á kvöldin niðrí miðbæ. Við fylgjumst með þessu - ótrúlega spennandi. Mamma og pabbi koma á fimmtudaginn og verða hjá okkur í þrjár nætur, við stefnum að því að taka laugardaginn frá fyrir HM og enda niðrí miðbæ í fjörinu þar, sjá verðlaunaafhendingar, flott tónlistaratriði og mannhafið Smile Eins og mér þótti skíðastökk spennandi íþrótt svona til áhorfs og skíðagana óspennandi þá hefur það aldeilis snúist við. Ég sé nefnilega ekkert jákvætt við að horfa á anorexíusjúklinga svífa í loftinu en þannig er þetta víst, það snýst um að vera sem léttastur og svífa sem lengst - sorglegt. Skíðaganga er hins vegar mjög heilbrigð íþrótt og til fyrirmyndar þó að auðvitað er eitthvað um steranotkun og svoleiðis vesen þar eins og í öðrum greinum EN já það sem fólk almennt talar um að það taki því eins að horfa á málningu þorna þá getur 50 km ganga verið æsispennandi. Já það er ýmislegt sem maður þarf að éta ofan í sig þegar maður kynnir sér málin og setur sig inn í þau. Þess vegna hef ég t.d. ekkert verið að tjá mig um Icesave.....maður er víst alltaf að reyna að bæta sig skoLaughing


p.s. Plan morgundagsins er: Fyrirlestur, vinna í verkefni, hlaup (5 km), elda fisk í kvöldmatinn og njóta dagsins/kvöldsins.
 
Berglind
það er ljómandi fínt að lesa um plönin þín, það er líka bara hvetjandi fyrir okkur hin sem lesum. Gangi þér rosa vel með þessi plön.
Vonandi gengur eitthvað í húsnæðisleitarmálum ég skal láta þig vita ef ég sé eitthvað.
#1
28. febrúar 2011 klukkan 11:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.