Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

draumur

24. febrúar 2011 klukkan 09:58

Þá sit ég hér yfir bókum og blaðagreinum, spái og spegúlera. Febrúar er að verða BÚINN!!!! Hvað varð af honum?? 
Næstu dagar verða svipaðir hér, læra, lesa, skrifa,  hreyfa sig, elda kvöldmat, þvo þvott......þarf að spíta í lófana og koma fleiru á blað Laughing og standa mig í öllu hinu líka. 
Dreymdi í nótt að ég var að verja ritgerðina mína, ósköp vinalegt til að byrja með, sat á móti leiðbeinandanum mínum og ætlaði að spjalla bara um efnið, held við höfum verið með kaffi. En þá var allt í einu komið fullt af fólki við borðið sem vildi heyra hvað ég hafði að segja og ég ekki með neina sérstaka kynningu. Man sérstaklega eftir Hafdísi Sturlaugs en hún klappaði mér á öxlina og sagði að það gæti verið sniðugt að vera með power point þegar maður ver ritgerð, svo man ég ekki hvernig stóð á því að prins póló kom þarna við sögu en allavega virðist ég hafa lifað þessar hremmingar af. Boðskapur: Það sem ekki drepur mann styrkir mann. Ég skil ekki hvað ég er eitthvað kvíðin út af þessu verkefni ......dæs!

Í dag ætla ég að sitja hér við borðið, fara með Stefán Snæ til tannsa í hádeginu (ganga þangað 4 km), vesenast í þvotti í pásum, fara á gönguskíði, skokka eða í spinning seinnipartinn og elda fisk í kvöld.
Eigið góðan dag. 
 
Berglind
já og hafðu prins póló með þér í vörnina þá reddast þetta ;)
#1
24. febrúar 2011 klukkan 12:05
 
Hafdís
Takk fyrir síðast
Leitt að valda þér angri en ég fullyrði samt að það er betra að hafa ppshow þegar maður ver MS-ritgerð.
#2
24. febrúar 2011 klukkan 16:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.