það sem við höfum brasað síðustu daga.....
23. febrúar 2011 klukkan 20:16
Næstum vika frá síðasta bloggi og síðan þá hef ég verið ansi víðförul.
Á afmælisdaginn minn byrjuðum við Þórður Logi á að fara til tannlæknis en hann var boðaður í eftirlit og hitti það á daginn minn. Eftir það tókum við, ásamt gestunum okkar (Þórhildi, Elvari, Ernu og Arnari), lestina inn til Osló. Gengum týpískan túristahring: úr lestinni á Nasjonaltheatret stasjon, gengið út á Karl Johann upp að höllinni, niður á Akerbrygge, Akershusfestning (kastalinn), Karl Johann, Operuhúsið, Oslo sentralstasjon og lestin heim. Sáum hermenn og fullt af fólki undirbúa skreytingar á Karl Jóhann fyrir setningarhátíð HM í skíðum. Sá Sonju drottningu þegar hún keyrði fram hjá okkur fyrir framan höllina, hún vinkaði - ég vinkaði á móti
Við fórum á kaffihús, í túristabúð og í kryddbúðina á Karl Jóhann þar sem ég birgði mig upp af allskonar kryddi og rúsínum og apríkósum mmmm. Þegar heim var komið var Haukur kominn heim eftir rúmlega sólarhringsvinnutörn. Hann og drengirnir gáfu mér afmælisgjöf en það var útivistardót: Lítil steikarpanna, ferðakoddi og tréstaup. Þarna um kvöldið gerði ég pizzu eins og alltaf á föstudögum.
Á laugardaginn fórum við til Ski og Dröbak, Stefán Snær fékk að ráða hvað var í matinn þá um kvöldið en það var ekta norskur matur kjöttkaker, kartöflur og brún sósa + salat og hindberjasulta.
Á sunnudaginn brunuðum við til Budor. Við vorum búin að leigja æðislega íbúð, en hún var sem höll. Þrjú svefnherbergi og baðherbergi á efri hæðinni, stofa, borðstofa, eldhús og klósett niðri - algjör lúxus. Við fórum í göngutúr seinnipartinn þennan dag, skoðuðum aðstæður og sváfum yfir sjónvarpinu um kvöldið.
Á mánudaginn fórum við á gönguskíði, Elvar og Arnar prófuðu gönguskíði og Þórhildur og Erna voru í sleðabrekkunni. Eftir hádegi fórum við til Elverum og skoðuðum skógarsafnið. Við elduðum hreindýr og elg um kvöldið, steiktum hreindýravöðvan heilan í ofni en elgvöðvinn var sneiddur í þykkar sneiðar og steiktur á pönnu, með þessu voru möndlukartöflur, salat og sveppasósa með lauk og rauðvíni jammmmí jammí. Þetta tókst rosalega vel hjá okkur.
Í gær tókum við daginn snemma. Við Haukur vorum á svigskíðum allan daginn, Þórður Logi var á gönguskíðum og renndi sér á sleða inn á milli, Erna renndi sér á sleða, Arnar hélt áfram að æfa sig á skíðunum, sömuleiðis Elvar. Þórhildur prófaði gönguskíði og tók nokkra hringi. Flottur dagur í alla staði.
Stefán Snær var ekki mjög hrifinn af þessu fríi, var mest inni, hékk í tölvu og horfði á myndir, þvinguðum hann aðeins með okkur út en hann sýndi þessu lítinn áhuga. Ferðin í skógarsafnið stóð upp úr að hans mati.
Í dag tókum við daginn snemma, pökkuðum og gengum frá íbúðinni (þurftum ekki að þrífa) og keyrðum til Gardemoen, þangað vorum við komin um hálf tólf, kvöddum gestina okkar og héldum áfram heim.
Haukur fór að vinna hálftíma eftir að við komum heim. Við Þórður skelltum okkur í göngutúr í kuldanum, þvottavélin er á fullu og svo er alltaf heilmikið verk að ganga frá eftir ferðalög.....
Á morgun kafa ég ofan í verkefnið mitt, tek skokktúr eða gönguskíðatúr, fylgi Stefáni Snæ til tannlæknis en verkefnið mitt verður AÐAL á morgun......
HM í skíðaíþróttum var sett í Osló núna í kvöld og sjónvarpið er yfirfullt af allskonar þáttum í tengslum við það......heia Norge!!!
Á afmælisdaginn minn byrjuðum við Þórður Logi á að fara til tannlæknis en hann var boðaður í eftirlit og hitti það á daginn minn. Eftir það tókum við, ásamt gestunum okkar (Þórhildi, Elvari, Ernu og Arnari), lestina inn til Osló. Gengum týpískan túristahring: úr lestinni á Nasjonaltheatret stasjon, gengið út á Karl Johann upp að höllinni, niður á Akerbrygge, Akershusfestning (kastalinn), Karl Johann, Operuhúsið, Oslo sentralstasjon og lestin heim. Sáum hermenn og fullt af fólki undirbúa skreytingar á Karl Jóhann fyrir setningarhátíð HM í skíðum. Sá Sonju drottningu þegar hún keyrði fram hjá okkur fyrir framan höllina, hún vinkaði - ég vinkaði á móti
Við fórum á kaffihús, í túristabúð og í kryddbúðina á Karl Jóhann þar sem ég birgði mig upp af allskonar kryddi og rúsínum og apríkósum mmmm. Þegar heim var komið var Haukur kominn heim eftir rúmlega sólarhringsvinnutörn. Hann og drengirnir gáfu mér afmælisgjöf en það var útivistardót: Lítil steikarpanna, ferðakoddi og tréstaup. Þarna um kvöldið gerði ég pizzu eins og alltaf á föstudögum.Á laugardaginn fórum við til Ski og Dröbak, Stefán Snær fékk að ráða hvað var í matinn þá um kvöldið en það var ekta norskur matur kjöttkaker, kartöflur og brún sósa + salat og hindberjasulta.
Á sunnudaginn brunuðum við til Budor. Við vorum búin að leigja æðislega íbúð, en hún var sem höll. Þrjú svefnherbergi og baðherbergi á efri hæðinni, stofa, borðstofa, eldhús og klósett niðri - algjör lúxus. Við fórum í göngutúr seinnipartinn þennan dag, skoðuðum aðstæður og sváfum yfir sjónvarpinu um kvöldið.
Á mánudaginn fórum við á gönguskíði, Elvar og Arnar prófuðu gönguskíði og Þórhildur og Erna voru í sleðabrekkunni. Eftir hádegi fórum við til Elverum og skoðuðum skógarsafnið. Við elduðum hreindýr og elg um kvöldið, steiktum hreindýravöðvan heilan í ofni en elgvöðvinn var sneiddur í þykkar sneiðar og steiktur á pönnu, með þessu voru möndlukartöflur, salat og sveppasósa með lauk og rauðvíni jammmmí jammí. Þetta tókst rosalega vel hjá okkur.
Í gær tókum við daginn snemma. Við Haukur vorum á svigskíðum allan daginn, Þórður Logi var á gönguskíðum og renndi sér á sleða inn á milli, Erna renndi sér á sleða, Arnar hélt áfram að æfa sig á skíðunum, sömuleiðis Elvar. Þórhildur prófaði gönguskíði og tók nokkra hringi. Flottur dagur í alla staði.
Stefán Snær var ekki mjög hrifinn af þessu fríi, var mest inni, hékk í tölvu og horfði á myndir, þvinguðum hann aðeins með okkur út en hann sýndi þessu lítinn áhuga. Ferðin í skógarsafnið stóð upp úr að hans mati.
Í dag tókum við daginn snemma, pökkuðum og gengum frá íbúðinni (þurftum ekki að þrífa) og keyrðum til Gardemoen, þangað vorum við komin um hálf tólf, kvöddum gestina okkar og héldum áfram heim.
Haukur fór að vinna hálftíma eftir að við komum heim. Við Þórður skelltum okkur í göngutúr í kuldanum, þvottavélin er á fullu og svo er alltaf heilmikið verk að ganga frá eftir ferðalög.....
Á morgun kafa ég ofan í verkefnið mitt, tek skokktúr eða gönguskíðatúr, fylgi Stefáni Snæ til tannlæknis en verkefnið mitt verður AÐAL á morgun......
HM í skíðaíþróttum var sett í Osló núna í kvöld og sjónvarpið er yfirfullt af allskonar þáttum í tengslum við það......heia Norge!!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
Vááá hvað hefur verið gaman hjá ykkur - ELGKJÖT - hvernig bragðast það???!!!
#1
24. febrúar 2011 klukkan 11:14