þriðjudagur
15. febrúar 2011 klukkan 16:03
Ég skokkaði ekki í gær, fór heldur í göngutúr með makanum en hann er í endurhæfingu eftir meiðsli og ekki þorandi að hann hlaupi mikið.
Í dag byrjaði ég daginn á góðum göngutúr, var að hugsa um að hlaupa og bjó mig þannig að ég gæti hvort heldur sem væri hlaupið eða gengið. Ég ákvað að fara meðfram teinunum en ef ég færi meðfram þeim að göngubrú nr tvö og til baka þá næði ég ríflega fimm kílómetrum. Þegar ég kom niður eftir sá ég að leiðin hafði ekki veirð mokuð nýlega og því ekkert spes að hlaupa þarna. Í staðin fyrir að snúa við og skokka um hálar götur bæjarins þá ákvað ég að taka röska göngu þarna í snjónum, semsagt 5,5 km á 49 mínútum og ég bara nokkuð sátt. Kom svo heim, fór í sturtu og settist við tölvuskrímslið, fór á einn fyrirlestur og sit nú enn og aftur við tölvuskrímslið.
Ég er búin að drekka allt of mikið kaffi í dag
held ég verði að fara að gera eitthvað róttækt í þeim málum - gengur ekki að liggja svona mikið í kaffinu þegar ég er hér heima. Spurning um að gera vatnið meira freistandi og kaupa kannski gott te 
Ég er búin að haga mér vel varðandi umgengni við sykur og sælgæti - ekkert svoleiðis farið inn fyrir mínar varir í dag
Búin með tvo ávexti (appelsínu og banana), á einn eftir - ætla að eiga hann inni í kvöld. Búin að taka inn járn og c vítamín töflur dagsins. Búin að hreyfa mig í dag.
Stefán Snær fer í fermingarfræðslu seinnipartinn, annað hvort ég eða Haukur fer með honum.
Haukur er allt annar í fætinum.
Þórður Logi fór í skíðaskólann í dag.
Læt þetta duga héðan í dag, góðar stundir.
Í dag byrjaði ég daginn á góðum göngutúr, var að hugsa um að hlaupa og bjó mig þannig að ég gæti hvort heldur sem væri hlaupið eða gengið. Ég ákvað að fara meðfram teinunum en ef ég færi meðfram þeim að göngubrú nr tvö og til baka þá næði ég ríflega fimm kílómetrum. Þegar ég kom niður eftir sá ég að leiðin hafði ekki veirð mokuð nýlega og því ekkert spes að hlaupa þarna. Í staðin fyrir að snúa við og skokka um hálar götur bæjarins þá ákvað ég að taka röska göngu þarna í snjónum, semsagt 5,5 km á 49 mínútum og ég bara nokkuð sátt. Kom svo heim, fór í sturtu og settist við tölvuskrímslið, fór á einn fyrirlestur og sit nú enn og aftur við tölvuskrímslið.
Ég er búin að drekka allt of mikið kaffi í dag
held ég verði að fara að gera eitthvað róttækt í þeim málum - gengur ekki að liggja svona mikið í kaffinu þegar ég er hér heima. Spurning um að gera vatnið meira freistandi og kaupa kannski gott te 
Ég er búin að haga mér vel varðandi umgengni við sykur og sælgæti - ekkert svoleiðis farið inn fyrir mínar varir í dag
Búin með tvo ávexti (appelsínu og banana), á einn eftir - ætla að eiga hann inni í kvöld. Búin að taka inn járn og c vítamín töflur dagsins. Búin að hreyfa mig í dag. Stefán Snær fer í fermingarfræðslu seinnipartinn, annað hvort ég eða Haukur fer með honum.