já um að gera að næla sér í járn og vítamín.
gangi þér vel í nammibindindinu.
ég keypti magnó sem ég ætla að borða á morgun ásamt banananum sem ég fæ mér í morgunmat. EN ég þarf að velja einn í viðbót ef ég á að halda í við þig.... tveir eru mjög hefðbundin tala hjá mér, fer samt stundum hærra!
hvernig ávexti borðar þú helst?
mánudagur
14. febrúar 2011 klukkan 14:43
Í dag er ég þreytt. Vaknaði klukkan sjö, fór í sturtu, fékk mér morgunmat og arkaði á einn fyrirlestur. Kom heim uppúr tíu, mér til mikillar skelfingar var ekkert kaffi til og engin mjólk heldur og það má ekki gerast þegar framundan er tölvurín. Þannig að ég fór í búðina - verslaði inn það sem vantaði og fór heim. Kom heim borðaði skyr með rjóma, flatköku með hangikéti, nartaði í smá harðfisk, stalst í lakkrís og drakk kaffi .......og ég enn þreytt. Járntöfluboxið og c vítamínið var komið mjög innarlega í skáp, ég teygði mig í það og fékk mér eina töflu af hvoru, nú skal tekinn kúr næstu vikurnar. Ég þarf á allri mögulegri orku og einbeitingu að halda næstu vikurnar.
Seinnipartinn ætla ég að taka hlaupatúr á meðan Þórður Logi verður í dansi.
Í dag byrja ég í nammibindindi.
Í kvöld ætla ég að elda hakk og rófufranskar, með þessu verður létt og góð hvítlaukssósa (sýrður rjómi, marinn hvítlauksrif, smá pipar og salt).
Á morgun ætla ég að passa mig á að innbirða a.m.k. 3 ávexti.

Berglind
#2
14. febrúar 2011 klukkan 21:32
Sigga Júlla
Magga: Like á nammibindindið :) jú, jú þú verður bikinihæf í sumar - gúdd lökk tú jú tú!
Berglind: Ég er mjög íhaldssöm í ávöxtum. Appelsínur og ferskjur eru algengar sem og bananar síðan finnst mér gott að brytja niður epli og strá smá kanil yfir og borða (kanill er snilld, jafnar blóðsykurinn).
Melónur, kiwi, jarðaber, ananas,perur eru allt ávextir sem mér þykja góðir en ég tek svona skorpur í.....mmmmmm mangó er æði en er stundum svolítið dýrt á Íslandi?

#3
14. febrúar 2011 klukkan 22:07
eþ
hvað eru RÓFUfranskar?
#4
15. febrúar 2011 klukkan 22:18
Sigga Júlla
Rófufranskar eru rófur skornar niður í strimla (eins og franskar kartöflur). Hent í poka sett örlitla olíu út í og salt og/eða eitthvað krydd... pokinn hristur og innihaldið sett svo á ofnplötu. Bakað svo í ofninum í svona 30-40 mín
#5
15. febrúar 2011 klukkan 23:44
Byrjaði í nammibindindi kl. 12:34 í dag (hey, töff...1234 ;) Tók ekki eftir því áðan) og hef ákveðið að hafa það ótímabundið. Er búin að fá stuðningsaðila í þetta þannig að þetta á eftir að verða lítið mál :) Er líka búin að ákveða að þessu ótímabundna nammibindindi mun fylgja mjög svo ótímabundin hreyfing :) Aldrei að vita nema maður verði bikiníhæfur í sumar!! :o
Gangi þér rosalega vel í öllu því sem þú stefnir að í framtíðinni :)
Kv. Magga