Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

sunnudagur

13. febrúar 2011 klukkan 16:48
Jæja, þá er helgin að verða búin og ég hef lítið gert annað en að slappa af með körlunum mínum. Veðrið hefur verið dásamlega fallegt en agalega kalt brrrr. Ég er agaleg, hef ekki komið mér út að hreyfa mig neitt en stefni á að skella mér á brettið seinnipartinn á morgun. Ég er eitthvað orkulaus en ég held að það sé e.t.v. skortur á hollu fæði sem orsakar það en svo gæti það líka verið að ég þurfi að taka vítamín og járn "kúr". Núna verð ég að taka á honum stóra mínum og beita mig járnaga á öllum sviðum.....Laughing

Norðmenn völdu sitt framlag í júróvísjón í gærkvöldi - við erum ágætlega sátt við það en lögin sem voru núna í lokakeppninni voru öll vel frambærilegt á júróvísjónmælikvarða og í rauninni var mjög erfitt að velja eitthvað eitt, en þetta sem var valið er svona grípandi og verður líklega vinsælt á dansstöðum. 

Í kvöld verður kjúklingur, kryddaður með svörtum pipar og ferskri sítrónu - bakaður í ofni og meðlætið verður salat og hrísgrjón.  

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.