Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

komin "heim" til Norge

12. febrúar 2011 klukkan 09:00
Jæja þá er ég aftur komin í holuna mína. Fór í sutta ferð til Íslands. Skrifaði undir ráðningarsamning (verð seint þreytt á að segja frá því), ég mun hefja störf sem héraðsfulltrúi Landgræðslunnar á Vesturlandi og Vestfjörðum í sumar þegar við verðum flutt heim. Ég kíkti líka á Mógilsá, sat þar í þrjá daga og græjaði ýmislegt varðandi vinnu í verkefninu mínu. Ég var á Hvanneyri í þrjár nætur, hélt til hjá Þórunni vinkonu minni. Hitti fullt af fólki, fór tvisvar í sund og tók smá göngutúr um Hvanneyrina. Smakkaði allskonar berjavín, borðaði þjóðlegan mat og hafði það gott. Þegar ég var á Mógilsá gisti ég hjá Lilju og Bjarna. Fór einu sinni á kaffihús með Lilju og eitt kvöldið fór ég út að borða með Ingu Dóru. Lilja klippti mig, minnkaði vindmótstöðuna verulega og ég er mjög sátt við það, auðvitað fór ég líka í Aveda búðina og keypti sjampó og krem - snilldarvörur. Síðan verslaði ég svona helstu nauðsynjar eins og flatkökur, harðfisk, slátur og svona auk þess að kaupa slatta af nammi. Ég varð samferða Guðrúnu og Gísla út á völl (en þau voru á leið til Stavanger til að skemmta á þorrablóti en stoppuðu eina nótt hér hjá okkur). Áætlunin var að fara í loftið kl 7:35 en það frestaðist um nokkra tíma vegna óveðurs sem gekk yfir landið. Eyddi slatta af peningum í Fríhöfninni, ótrúlegt hvað manni finnst allt ódýrt þegar maður umreiknar yfir í norskar uhummmm!!! Við lentum hér í Noregi uppúr klukkan þrjú í þessu líka fína veðri, sól, frost og stilla. Keyrðum heim, fengum okkur kaffi og tókum svo gönguferð um háskólasvæðið á meðan pizzudeigið hefaðist en það var ekkert verið að breyta út af pizzagerðarvananum þetta kvöld. Komum hér heim, freðin eftir göngutúrinn, ég græjaði pizzurnar, við fengum okkur rauðvín og svo var prins póló í desert. Algjörlega í anda matarklúbbsins að fá sér smá prins póló. Guðrún og Gísli flugu svo til Stavanger núna í morgun, stutt en skemmtilegt stopp hjá þeim hjónum.
Helgin verður annars nýtt til að púsla sér saman, nota góða veðrið og snjóinn og njóta.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.