Goda ferd heim og til hamingju med nyja jobbid! Hvenær er svo sidasti sens ad heimsækja ykkur i Norge? Finnst timinn bara fljuga fra mer og eg er einhvernveginn alltaf å eftir sjålfri mer. Postarnir herna inni eru lika dagsettir 6.feb.. er thad ekki ørugglega å morgun?! ;))
Kvedja fra Kbh
síðasta vika og Ísland í dag
06. febrúar 2011 klukkan 15:18
Þórður Logi var heima alla vikuna - ótrúlega þrálátur hiti sem barnið var með. Ég sat hér heima, komst ekki yfir að gera það sem ég ætlaði mér og fer því illa undirbúin heim.
Geðheilsunni var nú samt bjargað í upphafi vikunnar þar sem ég fékk símtal frá Landgræðslunni um að ég hefði verið valin úr hóp umsækjenda um stöðu héraðsfulltrúa á Vesturlandi og Vestfjörðum.
Ég komst út á skíði, í göngutúr og skokktúr í vikunni þannig að það er í plús. Það má því segja að þessi vika hafi verið í plús þegar upp er staðið. Sko fyrir mig. Því það eru öllu leiðinlegri fréttir af manninum mínum. Hann byrjaði að vinna á fullu í vikunni sem varð til þess að hnéð á honum bólgnaði upp, hann hitti svo lækninn í fyrrakvöld sem skrifaði upp á tveggja vikna veikindafrí + bólgueyðandi áburð + sjúkraþjálfun.
Núna er ég að klára að gera mig klára fyrir Íslandsferð. Flýg í dag til eyjunnar. Ætla að hitta systur mínar í dag, hitti svo Þórunni í kvöld og ætla að vera hjá henni á Hvanneyri á morgun. Síðan er ég að fara á fund í nýju vinunni og heilsa upp á gamla vinnustaðinn á mánudag og svo tekur við vinna við lokaverkefnið, verð staðsett á Mógilsá en ætla að gista hjá Lilju vinkonu í bænum. Flýg svo til baka til Norge á föstudag. Markmiðið er að komast í sund sem oftast, nýta ferðina að sjálfsögðu í botn og kaupa slátur og harðfisk handa köllunum mínum.
Góðar stundir.

Elva
#2
07. febrúar 2011 klukkan 00:52
Elva
..ok en ef eg er ad skrifa thetta 7.feb thå er jeg loksins buin ad nå sjålfri mer og meira ad segja komin fram ur ;))
#3
07. febrúar 2011 klukkan 00:54
Frábært að heyra með vinnuna, ekki eins skemmtilegt að heyra með veikindi Þórðar Loga eða hnéð á Hauki...vonandi ná þeir sér fljótt og vel.
Gangi þér annars rosalega vel og góða skemmtun á Íslandinu sem stendur sko alveg undir nafni núna ;)
Knús!