Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

veikindi og vinna

03. febrúar 2011 klukkan 17:58
Þórður Logi er veikur. Urðum vör við óeðlilega þreytu eftir skíðatúr á sunnudagsmorguninn, þá kom í ljós að litli kall var kominn með hita. Hann var heima á mánudaginn og í gær en þá hélt ég að hann væri að koma til. Fyrir kvöldmat í gær skruppum við Haukur á skíði og þegar heim kom var Þórður Logi sofnaður og hitinn hafði hækkað aftur. Þannig að hann fór ekkert í leikskólann í dag og fer líkelga ekkert á morgun heldur því hann er það slappur í dag. En það er svosem ágætt að hann taki út veikindi núna á meðan ég er enn hér heima við. Hefði verið verra ef það hefði gerst í næstu viku þegar ég verð á Íslandi. 
Það er leiðindarpest að ganga hér, fólk fær hita og liggur lengi - veit um nokkra sem hafa legið í viku Undecided 

Við prófuðum semsagt að skíða á nýjum stað í gær, fórum í svokallaða "lysloypa" upplýst skíðagöngubraut út í skógi. Það var ansi hart færi, slóðirnar lélegar og fullt af bröttum brekkum. Ég er svo mikil hæna að ég er ekki að þora að láta mig gossa niður, sérstaklega þar sem sporin eru orðin léleg og jafnvel beygja í brekkunni. Ég plægði flestar brekkurnar og gekk niður tvær því mér leyst ekkert á þær. Jebb algjör hæna!!! Merkilegt hvað maður verður ragur með aldrinum Embarassed
Ég reikna ekki með að fara á skíði í dag, ætla hins vegar í langan göngutúr með Pálínu núna seinnipartinn og Ísak (maður Pálinu) og Haukur ætla á skíði. 

Annars eru nýjar fréttir af mér - ég er komin með framtíðarvinnu, byrja í sumar - þannig að manni líður ansi vel með það að flytja til Íslands í sumar í sumar í sumar.....!!!! Vá hvað tíminn líður hratt. Við þurfum því að fara að leita að húsnæði, íbúð eða hús sem rúmar fjagra manna fjölskyldu og bílskúr óskast til leigu í Borgarnesi eða nágrenni.

Jæja ætla að skella mér í að lesa um rules for land use, land use change and forestry .....
Góðar stundir.
 
Magga
Vonandi batnar Þórði Loga fljótt og vel...ekki gaman að vera veikur...

Og geggjað að fá ykkur aftur í landshlutann! Vonandi bara losnar eitthvað í nágrenni Borgarness ;)

Til lukku með vinnuna enn og aftur :)
#1
03. febrúar 2011 klukkan 18:05
 
Magga
Var aðeins að lesa yfir bloggið þitt aftur og mér leikur forvitni á að vita eitt...af hverju þarf íbúðin/húsið að rúma fjögurra manna fjölskyldu OG bílskúr?? :þ

Tíhí...kveðja, Magga útúrsnúna ;)
#2
04. febrúar 2011 klukkan 20:07

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.