síðustu dagar...
02. febrúar 2011 klukkan 13:56
Æfingar janúarmánaðar:
Hlaup: 10,3 km (jebb ég veit, lélegt) - 2 skipti
Hjól: 144 km - 8 skipti
Ganga: 11,5 km - 2 skipti
Skíðaganga: 17 km - 3 skipti
Annað: ------- - 4 skipti
Semsagt 19 æfingar, 182,8 km í allt. Markmiðið fyrir janúar var 150 km í einhverri hreyfingu og það tókst og vel það.
Ég fór ekki nema þrisvar á gönguskíði í janúar (skammast mín fyrir hversu sjaldan það var) en svo ég finni "afsökun" þá get ég sagt ykkur það að gönguskíði og gönguskíði eru ekki það sama. Prófaði "ný" skíði um helgina þ.e. notuð Fischerskíði og sá það að skíðin mín eru drasl sem renna ekkert í samanburði. Við Haukur fórum svo saman í smá túr í gær (ég á "nýju") en nú er hann farinn að geta farið á skíði í rólegheitunum en verður að passa sig í brekkum.
Ég ætlaði að hlaupa inni á bretti núna eftir áramótin, fékk hlaupaprógramm frá Evu og er ekki að standa mig í að fara eftir því - vel alltaf spinningtíma í staðin fyrir hlaupabrettið. Reyndar er orðið það hlýtt að ég get vel farið út að skokka og það er mikið skemmtilegra. Ég vil nefnilega hafa gaman að þessu, nenni ekki að eyða frítímanum í eitthvað sem mér þykir leiðinlegt. Markmið febrúarmánaðar er að fara 200 km - allt í bland á hjóli, skíðum, hlaupandi, gangandi eða syndandi.
Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur. Við fórum til Jónu Lindar og Muggs á fimmtudagskvöldið. Haukur var á örnámskeiði í skíðasmurningu hjá Muggi. Við Jóna náðum spjalli um heima og geima, við borðuðum æðislegt kjúklingasalat og krakkarnir ærsluðust. Skemmtilegt kvöld en mikið vorum við öll þreytt þegar heim var komið.
Haukur tók svo fram Fischerskíðin sem okkur áskotnuðust, keypti nýjar festingar á þau og tók þau í gegn, ég prófaði þau svo um helgina og segi að ég hafi kynnst nýrri íþrótt, ég rann!!!!!
Solla vinkona frá Hvanneyri og Telma Sól dóttir hennar komu í heimsókn yfir helgina. Við kíktum til Ski, fórum í H&M, KappAhl og Lindex og fleiri búðir strax á fyrsta degi (föstudaginn). Tókum því rólega hér í Åsi, fórum í göngutúra, á skíði, borðuðum góðan mat og höfðum það gott. Fórum í bíltúr til Dröbak og einnig til Vestby þar sem við krúsuðum í gegn um Norwegian Outlet. Þær mæðgur fóru svo heim í gær, sælar eftir fína afslöppunarhelgi.
Það var tekin ákvörðun fyrir helgi um að ég færi til Íslands í nokkra daga til að vinna í verkefninu mínu, koma tölunum öllum á rétt form og byrja útreikninga. Er búin að mæla mér mót við Brynhildi leiðbeinanda minn og við ætlum að vinna saman í þessu í þrjá daga. Það er fínt að komast aðeins heim og fá svona púst - ég þarf alveg á því að halda. Þannig að ég næ því að hitta einhverja ættingja og vini. Ætla þó ekkert norður, hef engan tíma til þess, verð aðallega á stór Reykjavíkursvæðinu og í Borgarfirðinum.
Gummi mágur varð afi um helgina, sem þýðir að litla systir mín er orðin "ská" amma
og ég því ömmusystir 
Þessi vika byrjar ekki vel hjá yngsta manni hann fékk hita á sunnudaginn og var með hita í gær og þarf því að vera heima í dag.....og missir af skíðaskólanum
Stefán Snær er eins og allir unglingar (eða flestir) upp og niður - skapsveiflur ógurlegar en er alltaf bara litli drengurinn minn inn við beinið
Haukur er að koma til í fætinum, keyrir samt ekkert dráttarvél alveg strax, þannig að hann verður ekkert í snjómokstri alveg á næstunni.
Læt þetta duga í bili
Góðar stundir.

Góðar stundir.Já Sigga skíði og skíði er ekki alltaf það sama, flott hjá þér að eignast almennileg Ficher skíði og þá getur þú loksisn farið að skíða almennilega :o) Takk fyrir frábært kvöld, virkilega gaman að fá ykkur í heimsókn og á örmámskeiðið hehe. Og Magga Muggur er algengt gælunafn á vestfjörðum fyrir menn sem heita Guðmundur
#2
03. febrúar 2011 klukkan 02:31
Og fyndið...þetta er þriðji maðurinn sem ég heyri um/þekki sem er kallaður Muggur :) Ætli þetta sé algengt gælunafn??
Kv. Magga