af möguleikum og meiðslum
26. janúar 2011 klukkan 20:12
Við erum farin að skoða alla möguleika á frakt og flutningi á okkur og dótinu okkar heim á eyjuna fögru í sumar. Möguleikarnir eru ýmsir, t.d.:
1. Flug fyrir fólkið - dót og bíll í gám.
2a. Sigling með Norrænu fyrir fólkið og bíl með þriggja nátta stoppi í Færeyjum - dót í gám.
2b. Sigling með Norrænu fyrir fólkið og bíl ekki með stoppi í Færeyjum - dót í gám.
2c. Sigling með Norrænu fyrir allt fólk, bíl, dót (en þá þurfum við að kaupa kerru).
3. Flug fyrir fólkið - dót í gám, bíll í Norrænu.
Held að möguleiki nr 2a hljóti flest atkvæði, við Stefán Snær erum talsmenn þess að heilsa upp á vini okkar í Færeyjum og ég held að við fáum okkar fram
Haukur fór til læknis í dag, það var mjög ánægjuleg ferð fyrir hann. Vöðvafestingarnar eru ekki slitnar (sem betur fer!!!) miklar bólgur í hné og vöðvafestingar marðar, hann á að taka viku voltaren kúr og vera heima. Semsagt, hann er búinn að vera heima "sykemeldt" í viku og verður allavega aðra viku í viðbót og þá verður staðan endurmetin.
Ég var í prófi í gær, við Haukur skruppum svo til Svíþjóðar í dag til að fylla á frystinn, búrskápinn og ísskápinn. Í fyrramálið fer ég á fund með leiðbeinandanum mínum, geri áætlun og fer á flug í verkefninu mínu.
Endalaus gleði hér á bæ, áfram Ísland og góðar stundir.

Steinunn
Er þá semsagt búið að taka fasta ákvörðun um heimkomu ?? :)
#1
26. janúar 2011 klukkan 20:31
Sigga Júlla
jebb....verðum að fara að heyrast Steinunn :)
#2
26. janúar 2011 klukkan 20:42
Jóna Lind
Mæli með stoppi í Færeyjum...er þó ekkert spennt yfir Norrænu en ferðin út í sumar var þó með skársta móti. Við keyrðum um í Færeyjum og það var mjög gaman.
#3
26. janúar 2011 klukkan 21:24
spennandi
möguleiki 2a hljómar vel, ég myndi kjósa hann, held ég!
Gott að læknisskoðunin var góð, eða amk ekki slæm, batakveðja á Hauk.
Gangi þér vel með ritgerðarsmíð, nú hefst sko aldeilis tími aga og staðfestu, en þú skipulagða kona reddar því nú alveg.
hlakka til að sjá ykkur, þó það verði líklega ekkert fyrr en í sumar
kv

#4
27. janúar 2011 klukkan 11:56
Ekki spurning, 2a!! Færeyingar munu taka vel á móti ykkur!
Batakveðjur í húsið og gangi þér vel með ritgerðina og allt það sem framundan er.

#5
02. febrúar 2011 klukkan 17:49