slysasaga
19. janúar 2011 klukkan 20:49
Það er alveg merkilegt hvað hlutirnir eru skrítnir stundum. Slæmar fréttir og góðar fréttir í bland og allt minnir það mann á hvað maður hefur það nú gott. Úff hvað ég er nú þakklát fyrir heilbrigða og hrausta syni og góðan mann, sem deilir með mér hinum ýmsu áhugamálum.
Fékk nett sjokk í dag þegar Haukur hringdi í mig úr vinnunni og sagðist hafa verið að slasa sig, svona líka rólegur. Til að gera langa sögu stutta þá var vinnufélagi hans í vandræðum með að festa dráttarvélarskóflu á vél og bað Hauk að tékka á því hvað væri, Haukur ætlaði að gera það og þá vildi það svo óheppilega til að skóflan datt á hann. Eftir að hafa hringt í læknavakt og verið vísað á heimilislækni (því hann var ekki við það að drepast), þá hringdu þeir í heimilislækninn sem svaraði ekki . Þeir keyrðu þá til hans og þar var biðstofan full en Haukur tróð sér framfyrir í röðina. Læknirinn vísaði honum á sjukrahúsið í Ski. Þar fór Haukur í rannsókn og myndatöku, beið svo í góðan tíma á meðan sérfræðingarnir skoðuðu myndirnar. Niðurstaðan: Haukur er ekki brotin en þeir óttuðust það, rétt fyrir ofan hné, en hins vegar slitnuðu vöðvafestingar. Hann fer svo aftur í rannsókn eftir viku, þegar bólgan hefur hjaðnað og þá verður tekin ákvörðun um framhaldið en semsakt nú er Haukur "sykemeldt" og verður því heima í allavega viku.
Eiginlega svolítið mikið að gera í skólanum hjá mér, verð að vera duglegri að hreyfa mig til að halda geðheilsu......
Jónína amma er enn á gjörgæslu, hænuskref í rétta átt......knús og fullt af hlýjum hugsunum til ykkar allra

Ása Dóra
Risaknús á ykkur !!!
#1
19. janúar 2011 klukkan 21:38
Tedda
Ahhh... já svona gerast slysin.. batakveðjur til Hauks og knús á ykkur öll.
#2
20. janúar 2011 klukkan 15:09
Jóna Lind
jahérna...ekki er þetta gott fyrir skíðamanninn, bestu kveðjur á liðið :o)
#3
20. janúar 2011 klukkan 15:49