Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

það sem á daga okkar hefur drifið...

17. janúar 2011 klukkan 22:00
Vika síðan ég bloggaði síðast Embarassed Hef bara ekki verið í skapi til að blogga, nóg að gera í skólanum, nóg að gera í vinnunni hjá Hauk og fullt að gera hjá strákunum. Ég er í foreldraráði í leikskólanum og skipulögðum við jólatréskemmtun sem var haldin síðasta þriðjudag kl 17-19. Fínt að hafa þetta bara beint eftir leikskóla á virkum degi, svolítið seint reyndar en þetta var fín samvera. Fjölskyldurnar komu með eitthvað á hlaðborð og var það fyrirfram ákveðið að skipta því eftir deildum hverjir kæmu með brauð-mat eða tertur-kökur á hlaðborðið. Skemmtunin gekk aðallega út á það að borða og taka þátt í loddi. Jólasveinninn og það að dansa í kring um jólatréð tók ca 15 mínútur af heildardagskránni. Skemmtileg reynsla.
Núna um helgina fórum við til Elverum, gistum þar hjá vinum okkar og fórum bæði á laugardag og sunnudag á skíði í Budor sem er í ca hálftímafjarlægð. Við borðuðum góðan mat, spjölluðum og höfðum gaman. Á föstudagskvöldið þegar við komum til Elverum drifum við fullorðna fólkið okkur í smá gönguskíðatúr og það var æði (ég mundi eftir að teipa á mér hælana). Knús Oddný, Ola og Svavar fyrir skemmtilega helgi.

Semsagt lífið hefur gengið sinn vanagang hjá okkur hér en óneitanlega hefur hugurinn leitað ótt og títt heim síðustu tíu daga. En amma hans Stefáns Snæs lenti í skelfilegu bílslysi og heyjar mikla baráttu á gjörgæslu í bænum. Ýmislegt hefur flögrað í gegn um hugann, við höfum reynt að tala sem mest um þetta hér á heimilinu, langar til að vera heima, en hvað getum við ss gert? Sendum því bara fullt af orku, styrk og hlýjum hugsunum. Okkur hlakkar til að hitta Jónínu ömmu og alla hina ættingjana okkar og vini sem okkur þykir óendanlega vænt um - í sumar þegar við komum heim Smile 
Munið að halda vel utan um þá sem ykkur þykir vænt um, stórt knús kæru bloggvinir.
 
Magga
Úff...hvað er í gangi þessa fyrstu daga þessa árs?? Ofboðslega mikið af slæmum fréttum sem maður heyrir allt í kringum sig :/ Vona að amma hans Stefáns nái sér fljótt og vel.

Knús í hús!
#1
17. janúar 2011 klukkan 22:36
 
Tedda
Knús á ykkur öll.... já ekki spurning við verðum að vera duglega að halda utanum hvort annað :)
#2
18. janúar 2011 klukkan 07:36
Gaman að eiga góða helgi með góðum vinum, ég hefði svo gjarnan viljað deila þessari helgi með ykkur á skíðum. Oddný er höfðingi heim að sækja.
En það er satt hjá þér, við verðum að vera dugleg að halda utan um hvort annað, tala saman og vera góð hvert við annað, þá líður okkur svo miklu betur, njótum lífsins svo miklu betur og getum betur tekist á við þær hindranir sem á vegi okkar verða.
#3
18. janúar 2011 klukkan 08:46
 
Jóna Lind
knús á þig mín kæra...
#4
18. janúar 2011 klukkan 12:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.