Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

hversdagslegt helgarblogg

10. janúar 2011 klukkan 04:30

Skil ekki alveg þessa bloggþurrð hjá mér, finnst ég vera að endurtaka mig í gríð og erg. Það mætti halda að það sé ekkert að ske í lífinu okkar hér í Noregi. 
Strákarnir dafna vel, Haukur hefur nóg að gera í sinni vinnu og námið hjá mér skríður áfram. Virku dagarnir eru skipulagðir frá morgni til kvölds; vakna, taka til nesti, keyra á leikskóla, fara í skólann og svo seinnipartinn; sækja á leikskólann, fara í búð, elda, fara í íþróttir, þvo þvott, lesa sögu og fara að sofa. Helgarnar eru afslappaðri en eiginlega hefjast þær síðdegis á föstudögum, því samkvæmt hefðinni þá er gerð pizza á föstudögum og ekki inn í myndinni að breyta því. Í gærmorgun fórum við Haukur ásamt Bríet í smá gönguskíðatúr, ákváðum að drífa okkur áður en snjókoman yrði mjög þétt og slóðirnar myndu hverfa. Þetta var fínasti túr, við fórum um 6 km  og uppskar ég þessi líka svakalegu hælsæri - alveg merkilegt að ég skuli ekki hafa framkvæmt fyrirbyggjandi aðgerðir og teipað mig áður en við fórum af stað, en það er alltaf hægt að vera vitur eftirá. Í hádeginu biðu okkur svo amerískar pönnukökur og kaffi hjá Birni - ekki slæmur endapunktur það á skíðagönguferðina. Seinnipartinn brunuðum við svo til Vestby í Norwegian Outlet til að leyta að snjóbuxum og úlpu á Stefán Snæ, við kíktum í ýmsar merkjabúðir t.d. Stormberg, Bergans, Norröna og enduðum í Helly Hansen búðinni þar sem við fundum þennan líka fína galla á drenginn. Haukur fór svo að vinna í gærkvöldi og er enn, það er nóg að gera í snjómokstri hér, svo mikið er víst. Samt er eitt sem mér þykir ákaflega undarlegt, það er að síðan í haust hefur salti verið dreift á göturnar og göngustíga , það er saltað fyrir snjókomur til að varna því að snjórinn sitji fastur og allt gott um það að segja en ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði, sjáið til.
Nema hvað að mokstursmenn eru mjög misjafnir með það hversu mikið þeir dreifa af salti og hreinlega hafa margir bruðlað allasvakalega með það. Það er nefnilega komið í ljós, allt í einu núna, þegar veturinn er rétt hálfnaður að saltbirgðirnar eru næstum búnar, ekki bara hér í Noregi, heldur í allri Evrópu. Það sem er líka mjög merkilegt við þetta er að þetta kom öllum svo á óvart, það var eins og enginn vissi hvað væri mikið til af salti - birgðabókhaldið eitthvað skrítið Undecided
Í dag erum við áfram á rólegu nótunum hér heima - við ætlum út í snjóinn á skíði og snjóþotu, ég þyrfti að ná hlaupaæfingu, verð að sjá til hvernig hælsærið hefur það. Það verður eldaður fiskur í kvöld og heimilið gert klárt fyrir erilsama viku. Næsta helgi er fríhelgi hjá Hauk og ætlum við í smá ferðalag, stefnan verður tekin til Elverum í næturgistingu og dögunum verður eytt á skíðum í Budor. Alltaf gaman að hafa eitthvað svona til að stefna að og brjóta upp hversdagsleikann.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.