Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

já já það held ég bara....

06. janúar 2011 klukkan 09:26
Stefán Snær kom heim í gærkvöld, ég sótti hann á Gardemoen í "hríðarbil". Mikil gleði með það á heimilinu. Mér finnst hann alltaf hafa stækkað svo þegar hann kemur heim úr svona ferðum......enda kannski ekki furða þegar menn eru að verða fimmtán!!!!!
Ég er byrjuð í skólanum á fullu, næstu þrjár vikurnar eru undirlagðar af anatómíu, er að læra að greina trjákubba, taka sýni af trjám og greina í smásjá, læra hvernig þetta er allt byggt upp. Það er mjög gaman, svo tek ég próf og held svo áfram í þessum kúrs fram á vorið, með mastersritgerðinni. Kannski ekki alveg æskilegt, hef víst alveg nóg að gera en ég held að það sé jákvætt að hafa stundum eitthvað annað til að brjóta upp skorpurnar. En semsagt það er í nógu að snúast. Kúrs (með prófi í lok jan og aftur í maí), ritgerð skil 15. maí og svo tek ég lítinn lestrarkúrs í júní og munnlegt próf úr honum í lok júní plús munnlegt próf úr ritgerðinni. 
Haukur er með frí aðra hvora helgi fram á vor og erum við á fullu í að plana þessar helgar, ýmist hyttuferðir eða gestakomur. Ég skráði mig í DNT eða norska ferðafélagið og ætla að vera dugleg að nýta mér þau hlunnindi sem því fylgir. Það þýðir ekkert annað en brjóta upp hversdagsleikann og gera eitthvað skemmtilegt. 

Hreyfingin er á sínum stað, svolítið dugleysi í gangi í kring um hátíðirnar en núna er ég komin með æfingaprógram frá henni Evu og eftir því verður farið. Það má því segja að nú sé hafið formlega æfingatímabilið fyrir næsta hálfa maraþon. Ætla að hlaupa á eftir og taka einn zumbatíma í framhaldinu. 
spennandi plan, spáðu hvað það er stutt síðan þú fórst út, síðan við sátum á skrifstofu vesturlandsskóga og hringdum ut í SiÅs til að redda íbúðinni.
Tíminn líður svo hratt þegar maður hefur nóg fyrir stafni. Gangi þér vel á lokaspretti mastersnámsins, þetta er alveg að hafast, og þá taka bara við ný spennandi ævintýri.
bið að heilsa körlunum þínum
#1
07. janúar 2011 klukkan 03:24

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.