Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

uppbygging, samvera, ævintýri

04. janúar 2011 klukkan 11:00
Jæja þá er enn eitt árið skriðið af stað. Það er ávallt þannig að við tímamót eins og áramót, horfir fólk yfir farinn veg og spáir í framtíðina. Þetta með að horfa til baka yfir farinn veg er auðvitað nauðsynlegt þó það hafi verið ansi fyrirferðarmikið í lífi fólks frá því að "hrunið" skall á að hreinlega að gera meira en að horfa yfir farin veg heldur að velta sér upp úr fortíðinni með tilheyrandi reiði og sárindum. Sérfræðingar segja að þetta sé hluti að svokölluðu sorgarferli. En okey, nú er komið enn eitt árið, það er árið 2011 - ár uppbyggingar. Ég skora á fólk að horfa fram á veginn, hætta að hugsa um fortíðina - hugsum um hvernig við viljum bæta okkur og vera góðar fyrirmyndir fyrir börnin okkar. Við gerum það ekki með því að kúra inní einhverjum fortíðarþráhyggjuapparati - það er ekki okkur, börnunum okkar né fólkinu sem við umgöngumst gott.
Uppbygging, samvera, ævintýri......gaman að vera til Smile

Í gær fórum við Þórður Logi í gönguferð með Pálínu og Írisi á útivistarsvæðinu við Sognsvann í Oslómarka, á meðan tóku karlarnir okkar skíðaæfingu fyrir Birkebeiner. Það var fullt af fólki á svæðinu, ýmist á gönguskíðum, hlaupandi eða gangandi. Börnin voru með, á skíðum, snjótþotum, í s.k. pulk. Nokkrir voru að dorga í gegn um ísinn. Fólk var að nýta umhverfið, njóta veðurblíðunnar og þess sem þetta svæði hefur upp á að bjóða. Ýmist með nesti, eða grillaði sér pylsur já eða fór í veitingasöluna á svæðinu og fékk sér eitthvað þar. Já það er ýmislegt hægt að gera í frítímanum sem kostar ekki mikla peninga. Það er bara að fólk sjái möguleikana í því umhverfi sem það býr í. Fyrir okkur Pálínu var þetta skemmtileg vinkonustund, fyrir börnin var þetta frábært tækifæri til að leika í nýju umhverfi, vinastund og mömmustund og fyrir karlana okkar var þetta frábær æfing.
Læt þetta ekki vera lengra að sinni.
Hafið það gott Wink njótið augnabliksins.
 
Magga
Skynsamleg ábending Sigga, eins og búast mátti við frá þér :) Það þarf ekki að kosta mörg þúsund krónur að eiga notalega stund saman og gæði samverustundanna eru ekki mæld í peningum.
Er einmitt búin að ákveða að gleyma því óáhugaverða við fortíðina og einbeita mér að framtíðinni. Hún er það sem skiptir máli. Þar sem það er ekki hægt að breyta fortíðinni þá er um að gera að nýta sér reynsluna (mistökin) úr henni og gera betur í nútíð og framtíð.
Knús í hús!
#1
05. janúar 2011 klukkan 04:45

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.