Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Gleđileg jól og takk fyrir okkur!!

25. desember 2010 klukkan 21:18
Aðfangadagur hófst á róelgu nótunum hér, kósístund hjá okkur Þórði Loga en Haukur var að vinna. Við vorum boðin í möndlugraut til Benna og Höllu og þegar heim var komið byrjaði ég að undirbúa matinn. Við borðuðum síðan klukkan sex, Sigríðarsúpu með harðsoðnum eggjum í forrétt, léttreyktan lambahrygg með heitu rauðkáli, rósakáli, brúnuðum kartöflum og sósu í aðalrétt og eftirrétturinn var konfekt en við stóðum á gati og höfðum ekki lyst á ís. 
Pakkarnir voru teknir upp undir  hátíðarmessunni á Ruv1. 
Í aðalhlutverki var Þórður Logi en hann fékk að ráða í hvaða röð pakkarnir voru teknir upp og Haukur las á.
Drengurinn var frekar vonsvikin en hann fékk eiginlega ekkert dót, einn lítill playmokassi, skautar, bangsi, lopapeysa, dvd og svo fullt af bókum. Það sem hann var mest hugfanginn af var þó skóladótið sem hann fékk en það var mappa full af stærðfræðitengdum verkefnum. Við gáfum honum skautana en hann var búinn að óska sér þá. Okkur fannst hann þó taka þessu öllu með ró en ég held að það hafi ekki margir fimm ára krakkar setið með foreldrunum og lesið á kortin í staðin fyrir að skoða jóalgjafirnar sínar. 
Við fullorðna fólkið fengum líka helling og held ég að bókastaflinn sem við fengum dugi okkur næstu árin. 
Stefán Snær er hæstánægður með jólin í Danmörku, fékk fullt; dvd, tölvuleik, geisladiska, föt og miða á musicfestival í Jelling í lok maí Laughing

Við enduðum aðfangadagskvöld á að kíkja í kaffi til Bríetar og Björns, fullorðna fólkið spilaði Fimbulfamb og börnin léku sér, vorum ekki komin heim fyrr en um hálf eitt leytið. 

Áður en ég sofnaði byrjaði ég á "Enn er morgunn" eftir Böðvar Guðmundsson Laughing

Í morgun var svo "ræs" klukkan níu, Þórður Logi fór að horfa á barnatímann og leysti svo nokkur stærðfræðiverkefni - ég kíkti yfir jólabréfin og skoðaði jólakortin betur. 
Við ætlum núna að hita upp matinn frá því í gær og demba okkur svo út á skíði eða skauta Smile Seinnipartinn munum við svo bruna til Askim í jólahangikjötið til Stínu móðursystur og fjölskyldu.

KÆRAR ÞAKKIR FYRIR JÓLAGJAFIRNAR - TAKK FYRIR JÓLAKORTIN OG ÖLL BRÉFIN Laughing 
Vona að allir njóti hátíðanna - gleðilega hátíð!!
 
Jóna Lind
Gleðileg jól kæra vinkona, hér í Bærum var líka notarlegur aðfangadagur, skíði, matarundirbúningur, íslens jólamessa, góður matur, fullt af pökkum og bara notarleghet
#1
26. desember 2010 klukkan 03:39
 
Magga
Takk fyrir jólakortið mín kæru :) Okkar kemur í pósti öðru hvoru megin við áramótin ;) Erum voðalega slök í þessu þetta árið.

Frábært að þið höfðuð það gott um jólin. Það gerðist reyndar á okkar heimili að við foreldrarnir vorum farin að bíða eftir að drengirnir væru búnir að borða á aðfangadag! Þeir voru svo ansi duglegir að leika sér með dótið sitt, enda fengu þeir líklega ívið meira en Þórður Logi.

Vonandi hafið þið það sem best áfram!

Knús í kotið!

Magga og co
#2
27. desember 2010 klukkan 12:08

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.