Þrjú ný albúm
24. desember 2010 klukkan 04:21
Þorláksmessa 2010 - brot af því sem við gerðum í dag....
Þórður ROKKAR 19. des 2010 - foreldrarnir veikir og Þórður slapp í myndavélina....
Laufabrauðsgerð 18. des 2010 - við fórum til Askim og áttum þar góðan dag með frænkum og fjölskyldum...
ÖLL ÞESSI ALBÚM ER AÐ FINNA HÉR
Annars hefur Þorláksmessan hér hjá okkur liðið ljúflega við bakstur og skreytingavinnu og að auki skelltum við hjónin okkur í Landnámssetrið til að snæða skötu með góðu fólki; þeim Sveinbirni, Vildísi, Betu og Einari sem er starfsmaður KB og tók þátt í leikritinu með okkur. Núna sit ég við tölvuna, sötra ískaldan Thule á meðan Sigurjón eldar fiskinn.....sem sagt, allt eins og það á að vera! Við munum svo eyða aðfangadegi og jóladegi í Reykjavík, hjá tengdó og foreldrum mínum - snæðum hamborgarhrygg, hangikjöt með tilbehör og endum jóladagskvöld á að spila Fimbulfamb, en það er árviss hefð í minni fjöldskyldu. Njótið jólanna elsku vinir, þið eruð í hug okkar og hjarta.
Jólakveðja, Þórunn Harðar.