já Sigga mín, ef Sveinn syngur með Karlakórnum á næsta ári þá förum við sko á tónleikana, hann er snillingur drengurinn. Vonandi að Haukur fái eitthvað jólafrí svo þið getið notið jólanna saman nú ef ekki þá njótið þið þeirra bara enn betur næst.
Heyrumst á morgun.
Kveðja mamma
Ţorláksmessa
23. desember 2010 klukkan 19:14
Eins og ég gaf í skin í gær þá var ekkert farið til Osló. Við skelltum okkur í smá leiðangur til Svíþjóðar í staðin - verslaði smá í matinn, keypti rúllukragaboli á Þórð og skó, púrtvín í sósuna og smá nammi
Núna í morgunsárið ætlar Lydía að koma og klippa Þórð, Benni, Halla og börn ætla að kíkjaí smá kaffi og síðan stefnum við Þórður á að taka jólarúnt til Dröbak. Ég minnist lítið á eiginmanninn í bloggunum þessa dagana en hann er vant við látinn, vinnur út í eitt og sést varla, mér leiðist hvað hann getur lítið tekið þátt í undirbúningi jólanna með okkur
Núna er ég að hlusta á jólakveðjurnar enlangar reyndar til að benda ykkur á að hlusta á óskastundina sem var síðasta föstudag en síðasta lagið er "Ó helga nótt" í flutningi karlakórs Reykjavíkur og litli frændi hann Sveinn Dúa syngur einsöng - er mjög stolt af honum - hér er hlekkur á Óskastundina.
Seinnipartinn eða í kvöld ætla ég að sjóða hangikjötið og skreyta jólatréið.

Sú ráđagóđa
#2
23. desember 2010 klukkan 21:35
Það er leitt hvað Haukur hefur verið að vinna mikið undanfarið, loksins þegar þú ert komin í frí, en vonandi fær hann eitthvað frí um jólin. Hafðu það sem best í dag. Ég heyri í þér á Skype á morgun. Hér verður afmæliskaffi í fyrramálið þannig að við hringjum þegar mamma og pabbi verða mætt ;)