Afmæli!!
Í dag er fæðingardagur ömmu minnar. Hún hefði orðið níræð í dag ef hún hefði lifað. Ég minnist hennar alltaf sérstaklega á þessum degi. Eitt af því sem gert var á uppvaxtarárum mínum (nú hljóma ég eins og gömul kerling í bók eftir Guðrúnu frá Lundi) var það partur af jólaundirbúningnum að fara til Akureyrar þann 17. eða í kring um þá dagsetningu, versla inn, deila út jólagjöfum og fara í kaffi eða mat til ömmu.
Ég hugsa núna til pabba og systkina hans en núna í kvöld ætla þau og makar að borða saman á Akureyri. Það verður matur í anda ömmu Siggu. Sigríðarsúpa í forrétt, lambalæri með tilbehör (örugglega rauðkál nýsoðið, grænar baunir, rababarasulta...og og og) í eftirrétt en hin fræga eplakaka með rjóma. Sigríðarsúpan og eplakakan og soðið rauðkál eru hefðir sem hafa skilað sér á milli kynslóðanna því þetta hef ég alltaf á jólunum 
Ég hef alveg frá því ég byrjaði að blogga minnst á ömmu þennan dag og ætla ég ekki að breyta út af þeirri venju án þess að vera alltaf að endurtaka mig. En hún amma Sigga var hetja - sterk, flott og sjálfstæð
p.s. ég var í síðasta prófinu á þessari önn frá tvö til fjögur í dag - gekk vel - til marks um það hve prófatímabilið hefur mætt á heimilismeðlimum þá liggja báðir synirnir í sófanum og steinsofa og klukkan er bara fimm.