spennandi tímar
muna bara að njóta þess sem maður er að gera hvort sem það er stressandi eða ekki, það kemur ekki aftur og ekki hafa áhyggur af því sem maður kemst ekki yfir að gera, það getur maður gert seinna.
gangi þér vel í prófinu á morgun, jólaknús í litlu íbúðina við Skogveigen
Farin að sjá fyrir endan á stressinu....
16. desember 2010 klukkan 18:14
Heimilið er komið á yfirsnúning af stressi og spennu!! Ég er stressuð vegna þess að nú er prófatímabilið en síðasta próf þessarar annar er á morgun. Stefán Snær er spenntur vegna þess að það styttist í að hann fari til pabba sín í Danmörku, Haukur vegna þess að hann veit aldrei hvenær hann er að vinna og hvenær ekki, hvenær hann fer að sofa og hvenær honum er óhætt að vaka og svo að lokum er það yngsti maðurinn á heimilinu sem er klárlega að komast á jólatilhlökkunaryfirsnúning!! Við Haukur tölum um það það gæti farið svo að þessi jól verði jólin sem Þórður "fer á límingunum" eins og gerðist hjá Stefáni jólin 2001 eða 2002, man ekki alveg hvor jólin það var en þá var hann svo spenntur að hann brjálaðist við matarborðið á aðfangadagskvöld!!!!
En varðandi prófin hjá mér þá er það ekkert betra að mínu mati að prófin dreifist mikið - það eykur bara álagið og spennuna og maður lærir ekkert meira eða betur - eða allavega ekki ég.
Ég hef litið komist í ræktina þessa vikuna, en á milli þess sem ég lít í bækur er maður að reyna að sinna drengjunum. Við fórum til SKi seinnipartinn í gær og keyptum jólaföt á Stefán, jólagjöfina hans og jólagjafirnar fyrir dönsku fjölskylduna. Síðan skoðuðum við skauta fyrir Þórð en hann er að láta sig dreyma um skauta í jólagjöf - spurning hvað við gerum
Íbúðin er varla hægt að kalla íbúð lengur, hún minnir meira á svínastíu og hlakka ég mikið til að taka skurk í að taka til og þrífa.
Já, klukkan 16:00 á morgun er prófum lokið og þá ætla ég að gera allt!!! En fyrst og fremst að sofa og lesa mmmm (nú er ég dreymin á svip) - fæ svo handrit af myndskreyttri barnabók sem ég ætla að lesa fyrir Þórð Loga en við erum búin að lesa hana ómyndskreytta, hlakka til að sjá myndirnar
Á laugardaginn verður frænkuhittingur með laufabrauðsgerð - hlakka mikið til
Á sunnudaginn fer Stefán Snær til Danmerkur en hann verður þar í rúmlega tvær vikur. Síðan er stefnan að komast á skíði á sunnudaginn þegar búið er að keyra á flugvöllinn 
Jæja, ætla núna að fara að lesa grein sem ber heitið "Ungdom og tradisjonell bruk av naturen" og þar á eftir "Naturopplevelsens kvaliteter" - fullt af skemmtilegu efni sem maður les í skólanum
Eigið góðan dag og góða helgi!!!

Ekkert jólastress hér enda hvorki próf né börn.