Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

próf, jól og HEIMFERÐ

12. desember 2010 klukkan 17:36
Alveg merkilegt hvað hugurinn ber mann langar leiðir þegar maður á að vera að lesa fyrir próf!!!!
Vá hvað ég hlakka til þegar þessari törn er lokið. Á morgun er próf í SKOG300, skogplanlegging það gildir 50% af lokaeinkun en ég er komin með alveg ágætis einkunnir fyrir verkefnin og ekki yfir neinu að kvarta - hef lært helling og er nú að reyna að summera vitneskjuna upp - það gengur svona allt í lagi og breytir varla einn lestrardagur til eða frá miklu þegar öllu er á botninn hvolft. Ég er nefnilega ekki þessi ekstreme prófatýpa sem leggst yfir bækurnar og innbirði allt sem í þeim stendur á nó tæm korter í próf, nei það hefur aldrei virkað hjá mér kannski sem betur fer. Nei ég læri mest á því að mæta í fyrirlestra og glósa og lesa mig í gegn um efnið í rólegheitum. Það að hlusta á fyrirlestra, og skrifa og skrifa og skrifa er minn námsstíll. Ég get ekki skilið fólk sem getur sleppt fyrirlestrum eða sleppt því að glósa, sér í lagi þegar maður er að læra á öðru tungumáli en sínu móðurmáli. En svona er þetta misjafnt, sem betur fer kannski, ef við værum öll að gera eins værum við væntanlega með sömu eiginleikana og það er ekki það sem við viljum, við þurfum að vera misjöfn annars held ég að ekkert muni fúnkera.
En allavega núna er ég að renna yfir glósur og fyrirlestra fyrir morgundaginn, það gengur alveg bærilega Wink 
Síðan er ég að fara í próf á föstudaginn og eftir það er ég komin í jólafrí.
Þá verður ýmislegt brallað, við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt, t.d. er stefnan að gera laufabrauð með frænkunum hér í Norge, fara til Osló og fá stemminguna beint í æð, hitta vini, fara á skauta, fara á skíði, baka kannski smá, föndra, spila, hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu, lesa, já - njóta lífsins Laughing En þangað til ætla ég að njóta þess að fara yfir efni fyrir próf og krossa svo putta og vona að ég hafi lært eitthvað í vetur Wink

Fyrir utan það að hafa hugsað um jólafríið í "próflestrarpásunum" þá hef ég hugsað heim, það er bráðum bara hálft ár í flutninga heim á eyjuna og ekki laust við spenning - er búin að senda fyrirspurn um eina vinnu, fer að halda áfram í þeim pakka uppúr jólum, vona að hlutirnir fari að skýrast bráðlega. Þoli ekki óvissu og ekki heldur unglingurinn á heimilinu sem hefur ákveðnar meiningar um heimflutningamál. Vildi á margan hátt að það væri enn 2007 og vinnurnar biðu manns í bunum og maður þyrfti ekki hafa fyrir því að sækja um, ég er týpísk veimiltíta, finnst ég ekki vera merkilegri en einhver annar og kann ekki að koma mér á framfæri.....vil fá tilboð og ekkert kjaftæði EN það er nú ekki raunin árið 2010 og alveg örugglega ekki 2011 - það er auðvitað ekkert vit að ætla að flytja heim EN jú, þar slær hjartað, á Íslandi er mitt HEIMILI.
 
Sú ráðagóða
Hefði viljað vera hjá ykkur um hátíðarnar en svona er þetta það er ekki alltaf hægt að taka frý á sama tíma, aðrir þurfa líka frí, en við komum bara til með að njóta næstu jóla enna betur en ella. Varðandi vinnu, þá er ég viss um að þið fáið einhversstaðar vinnu, það eru margir skógarbændur á Vesturlandi sem vilja fái þig aftur og kostir manna spyrjast út þannig að þú getur verið bjartsýn. ( Ef þú færð ekki vinnu í þinni grein þá færðu allavega ræstingarnar í leikskólanum :)
Kveðja mamma
p.s.
Þórður ég sendi þér uppskriftina að jólateinu á morgun.
#1
12. desember 2010 klukkan 18:19
 
Magga
Já, það verður aldeilis gott að hafa ykkur í "akstursfæri" aftur ;) Ekki beint hægt að droppa við núna :D Gangi þér vel í prófum, atvinnuleit og jólaundirbúningi mín kæra :D
#2
12. desember 2010 klukkan 19:10
verum bara íslensk og segjum "þetta reddast" þið fáið pottþétt vinnu, kannski ekki drauma vinnuna strax en það má alveg skipta seinna og breyta til.
Gangi þér vel í seinustu prófunum
#3
12. desember 2010 klukkan 22:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.